Fóstra - 01.10.1931, Síða 23

Fóstra - 01.10.1931, Síða 23
Fóstra. 1. hefti. I. ár. 21 Barnið, kennarinn, hesmilið. 20. öldin hefir oft verið nefnd öld barnanna, fyrst og fremst vegna þess, að á engu tímabili i sögu mann- kynsins hefir verið jafnmikið ritað, rætt og fram- kvæmt til heilla börnum. Afdrif þjóða og einstaldinga eru að miklu leyti undir því komin, hvernig rækt er lögð við kynslóð morgun- dagsins, börnin og æskulýðinn. Þetta er nú orðin stað- reynd, viðurkend, ekki einungis af einstökum útvöld- um, heldur af öllum almenningi flestra hinna ment- uðu þjóða. Þá hafa menn og lært að meta betur en áð- ur listrænt gildi æskunnar, yndisþokka hennar og kraft. Bernskan er undirbúningur undir fullorðnisárin, en hefir auk þess sinn tilgang í sjálfri sjer. Hún er glæsi- legasta tímabil mannsæfinnar, og hefir rjett til að fá að njóta sín vegna sín sjálfrar. Það þykir ef til vill kaldhæðnislegt að kalla 20. öld- ina öld barnanna hjer á landi, þar, sem harnafræðslan er í jafnmikilli niðurlægingu og raun ber vitni um. Þar, sem skólafyrirkomulagið er enn þann dag í dag sniðið að miklu leyti eftir dönskum miðaldafyrirmynd- um. Þar, sem launakjör kennaranna, leiðtoga barn- anna, eru verri en flestra eða allra annara starfs- manna þjóðarinnar og þar, sem kröfur um mentun barnakennara eru aðeins % eða jafnvel ekki nema % af því sem tíðkast meðal flestra menningarþjóða. Grundvallarþátturinn í þessu máli er mentun og kjör kennaranna. Maðurinn er langflóknasta fyrirbrigði, sem við þekkjum, hvort sem átt er við likama eða sál. Hann er tiltölulega nýlega orðinn rannsóknarefni

x

Fóstra

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.