Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 8

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 8
8 Námskeið á vegum forvarna- og fræðsludeildar víða um land UM6UÐAMfi{.UN Starfsfólk fyrirtœkja víða um land hefur fengið leiðbeiningar um hvernig bregðast á viðþegar eldur kemur upp. Tólfta starfsár forvarna- og fræðsludeildar LSS er runnið upp. Starfið hefur verið með hefðbundnu sniði, eldvarnanámskeið í stofn- unum og fyrirtækjum auk eldvarnavikunnar margrómuðu. Algengasta námskeiðsformið hefur verið svokallað .Almennt námskeið“ sem bæði er bóklegt og verklegt. Þar er farið yfir meðal annars hvernig forgangsraða skuli aðgerðum ef eldur kviknar, hvað valdi flest- um eldsvoðum, um hvað eldvarnir snúist en það er æði margt ef grannt er skoðað, til dæmis greiðar flóttaleiðir, viðvörunarkerfi sem mark er tekið á og starfsfólk sem hefur eitthvert gripsvit á eldvörnum. Kynntar eru helstu gerðir slökkvitækja, mikilvægi reyk- skynjara og annarra forvarna tíundað og síð- an útskýrt hvernig fólki beri að haga sínum gjörðum ef það þarf að yfirgefa byggingu sem er að reykfyllast eða brenna. I lokin er verkleg kennsla og æfing á handslökkvitæki. Einnig hefur verið boðið upp á styttri námskeið sem varða rýmingu húsa sérstaklega og leiðbein- endur hafa verið fyrirtækjum innan handar við ráðleggingar varðandi eldvarnir. Sú vinna hefur gjarnan verið unnin með aðstoð starfs- manna forvarnadeildar Slökkviliðs höfuð- borgarsvæðisins. Fjölmörg fyrirtæki heimsótt Að uppgötva eld á upphafsmínútum og rétt viðbrögð starfsfólks getur haft úrslitaáhrif á hvernig framvinda eldsvoðans verður og um leið tilvist fyrirtækisins ef illa fer. Leiðbeinendur hafa farið út á land til kennslu, oftast í mjög góðu samstarfi við slökkviliðin, og hafa allir að- ilar notið góðs af. Þeir staðir sem heimsóttir hafa verið utan höfuðborgarsvæðisins eru: Isa- fjörður, Akranes, Borgarnes, Egilsstaðir, Sel- foss, Vestmannaeyjar og Akureyri. Meðal fyr- irtækja sem heimsótt hafa verið eru: Land- spítali — háskólasjúkrahús, Landsbanki Is- lands, Islandsbanki, Samskip, Pharmanor, Vírnet, Borgarleikhúsið, Listasafn Islands, Þjóðmenningarhús, Morgunblaðið og Myll- an, svo eitthvað sé nefnt. Hjá deildinni starfa auk forstöðumanns þrír leiðbeinendur, Stefnir Snorrason, Sverrir Björn Björnsson og Sverrir Haukur Grönli sem allir eru reyndir slökkviliðs- og sjúkra- flutningamenn hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Jón Pétursson forstöðumaður Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.