Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 17
17
Fjölbreytt fagþekking
og reynsla við Eyjafjörð
Miöstöö fagþekkingar og reynslu í slökkvistarfi og sjúkraflutningum á
landsbyggöinni er óumdeilanlega að finna í byggðunum við Eyjafjörð,
einkum þó á Akureyri. Slökkviliðsmaðurinn beinir sjónum sínum að þessu
sinni sérstaklega að þeim sem lifa og hrærast í þessu fagi við Eyjafjörð.
Slökkviliðsstjórinn
Við heimsóttum öflugasta slökkvilið
landsbyggðarinnar, Slökkvilið Akur-
eyrar, og ræddum þar við nýja
slökkviliðsstjórann, Erling Júlínus-
son, og hans menn. Fyrr á árinu
voru einmitt 50 ár liðin frá því tekn-
ar voru upp fastar vaktir launaðra
starfsmanna hjá liðinu. Erling tók
við starfi slökkviliðsstjóra af Tómasi
Búa Böðvarssyni sem hafði gegnt
starfinu í næstum 30 ár.
Skólastjórinn
Akureyri styrkti faglega stöðu sína á
þessu sviði verulega þegar Sjúkra-
flutningaskólinn fluttist norður í lok
síðasta árs. Nýi skólastjórinn,
Hildigunnur Svavarsdóttir hjúkrun-
arfræðingur, er þegar farinn að út-
skrifa nemendur og hyggur á land-
vinninga fyrir hönd skólans.
Bílasmiðurinn
Síðast en ekki síst lá leið Slökkvi-
liðsmannsins til Ólafsfjarðar þar
sem fjöldi slökkvibíla landsins hefur
tekið á sig mynd í smiðju Sigurjóns
Magnússonar bílasmiðs. Hann hef-
ur með elju og mikilli hugmynda-
auðgi þróað yfirbyggingu á slökkvi-
bíla. Nýjasti dælubíll Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins kemur úr
smiðju Sigurjóns og er meðal flagg-
skipa fyrirtækis hans, MT-bíla.
Sjá bls. 18
Sjá bls. 24
Sjá bls. 21
Slökkviliðsmaðurinn