Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 13

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Blaðsíða 13
13 Öflug gæsla í fyrirtækjum og á heimilum Öryggismiðstöð Islands er framsækið öryggis- fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á heildarlausnum í öryggismálum, hvort heldur sem er fyrir fyrirtæki eða heimili. Fyrirtækið var stofnað 1995, sameinaðist Eldverk og Vörutækni árið 2001 og hefur frá því verið meðal leiðandi fyrirtækja á markaðnum hvað varðar vöruárval, þjónustu og vöruþróun. Starfsemi fyrirtækisins er fjölþætt en gróflega má skipta henni upp í þrjá flokka; öryggis- gæslu, öryggiskerfi og brunavarnir. Nú síðustu ár hefur innbrotum í fyrirtæki og heimili fjölgað jafnt og þétt. Skipulögð innbrot í heimahús um hábjartan dag er eitt- hvað sem við erum áþreifanlega vör við í dag og er þá í mörgum tilfellum búið að fylgjast með húsnæðinu og fjölskyldunni svo dögum eða vikum skiptir. Ef marka má tölur síðustu ára má gera ráð fyrir verulegri aukningu inn- brota bæði í fyrirtæki og heimili á komandi sumarmánuðum. Fjölskyldur halda að heiman í lengri eða skemmri tíma og það gefur inn- brotsþjófum betra næði og meiri tíma til að athafna sig, það er ef engar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar. Eins eru dæmi þess að fyrir- tæki loki svo vikum skiptir vegna sumarleyfa og því er hættan ekki síður fyrir hendi þar. Skilningur almennings á mikilvægi heima- gæslu hefur stór aukist enda eiga innbrot í heimahús sér stað nánast daglega hér á Iandi og stafar flestum heimilum hætta af innbrotsþjóf- um og eldsvoða. Heimilið og börnin okkar er það sem stendur okkur alltaf næst og það sem allt snýst um. Með heimagæslu Öryggismið- stöðvar Islands verndar þú friðhelgi heimilisins og eykur öryggi og öryggiskennd fjölskyldunn- ar. Heimagæsla dregur verulega úr líkum á inn- broti og aðkomu heimilismeðlima að innbroti. Að koma heim í fangið á innbrotsþjófum eða vakna við innbrot á heimili sínu er ógleyman- leg lífsreynsla sem fylgir manni alla ævi og verður aldrei bætt með tryggingum. Heimagæsla er þráðlaust öryggiskerfi fyrir heimili sem tengt er við stjórnstöð Öryggismið- stöðvarinnar. Stjórnstöðin vaktar boð frá kerfinu og sendir öryggisverði strax á vettvang ef boð um hættuástand berast. Stjórnstöð, ásamt tölu- borði og ýmsum skynjurum, er lánuð til við- komandi og er það sett upp með tilliti til þess hvað á að vakta hverju sinni. Stjórnstöðin býður einnig upp á fleiri möguleika sem lítið hafa verið notaðir hérlendis, en hún getur stjórnað inni- og útiljósum, heimilistækjum og haldið utan um textaskilaboð fyrir þann sem er á leiðinni heim ásamt ýmsu öðru. Aðeins er greitt mánaðarlegt þjónustugjald og innifalið í því er öll útkalls- þjónusta og reglulegt viðhald kerfisins. Brunagæsla er svo ný lausn sem Öryggismið- stöð Islands er að setja á markað um þessar mundir. Þetta er s.k. Brunagæsla, sem er bruna- viðvörunarkerfi fyrir fjöleignarhús. Brunagæsla felur í sér að sett er upp brunaviðvörunarkerfi með reykskynjurum í sameign og inn í íbúðir. Öryggismiðstöð Islands leggur til þann búnað sem til þarf, stjórnstöð og reykskynjara eftir þörfum hverju sinni. Hér er einnig aðeins greitt fast mánaðargjald, ekkert stofngjald. Brunavið- vörunarkerfið með öllum reykskynjurum er tengt öryggismiðstöð okkar sem vaktar kerfið alla daga, allan sólarhringinn, allt árið. Það tryggir að brugðist er við samkvæmt skil- greindri viðbragðsáætlun um leið og boð berast. Hætta á eldsvoða er alltaf fyrir hendi en marg- falt meiri þegar margir deila saman sameign og margar íbúðir eru í sama húsi. Brunagæsla ÖRYCGISMIÐSTÖÐ ISUNDS Þitt öryggi Brunaviðvörunarkerfi fyrir fjöleignarhús f= D 5 f= D i te, o nn 3 Brunagæsla felur í sér ... að sett er upp brunaviðvörunarkerfi með reykskynjurum í sameign og inn í íbúðir. Öryggismiðstöð íslands leggur til þann búnað sem til þarf, stjórnstöð og reykskynjara eftir þörfum hverju sinni. Öryggismiðstöð okkar vaktar kerfið alla daga, allan sólarhringinn, allt árið Aðeins er greitt fast mánaðargjald, ekkert stofngjald Verð á íbúð kr. 1.189,- Verð mv. 10 íbúða fjöleignarhús með 1 reykskynjara í hverri íbúð og 3 reykskynjurum í sameign. Borgartúni 31 105 Reykjavík sími 530 2400 www.oi.is Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.