Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Síða 12

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Síða 12
12 Slökkviliðið í Fremont var að endtirnýja allan bílaflota sinn þegar Haraldur og Björn voru þar á ferð. þekkjum hér. Hvíldaraðstaðan er þannig að allir eru saman í einum sal nema stöðvarstjór- inn sem hefur sitt eigið herbergi. Æfingaað- staðan er í sumum tilvikum staðsett þarna. Stöð níu hafði það hlutverk að sjá um reykköfunartæki og svo vel vildi til að þeir voru að taka í notkun ný reykköfunartæki, MSA í staðinn fyrir Scott. Skipt var um öll reykköfunartæki á öllum stöðvum í einu og sá okkar stöð um að koma þeim á stöðvarnar. MSA-tækin eru með einum sex lítra fíberloft- kút. Mælirinn er bæði með venjulegum loft- mæli og stafrænum mæli með ýmsum upplýs- ingum. Einnig er í mælinum hitaskynjari sem gefur frá sér aðvörunarhljóð, til dæmis þegar reykkafarinn er of lengi í of miklum hita. I öndunarmaskanum er sérstakur búnaður sem gerir það að verkum að þegar hann er ræstur með einum hnappi heyrist skýrt í rödd reykkafarans út úr maskanum. Síðast en ekki síst er í þar til gerðum vasa á öllum reykköfunartækjum loftslanga til að tengja milli reykköfunartækja þannig að ef annar reykkafarinn er orðinn loftlítill getur félagi hans strax gefið honum af sínum loft- birgðum. Það virkar þannig að loftmagnið á milli tækjanna jafnast. Ef annar er með 50 bör en hinn með 150 bör verða 100 bör á báðum tækjum. Allur bílaflotinn endurnýjaöur Slökkviliðið í Fremont var um þessar mundir að endurnýja allan bílaflota sinn þannig að hver stöð fékk nýjan slökkvibíl af Pierce-gerð. Einnig voru þeir að taka í notkun nýjan, sér- útbúinn bíl fyrir eituefnaslys og er hann meðal annars með rannsóknastofu, veðurstöð og jafnvel salerni. Einnig er hann með full- kominn tölvubúnað. Reykköfunartækin í þessum bíl eru öll með níu lítra loftkút. Slökkviliðið var ennfremur að fá alveg eins bíl sem var sérútbúinn sem björgunarbíll. Stigabílarnir eru tveir, af gerðinni Americ- an La France, og ná þeir um það bil 32 metra hæð. Tvo menn þarf til að aka þeim því ann- að stýri er að aftan. Við fengum leyfi til að prófa að stýra að aftan og var það skemmtileg upplifun. Stýrt er í öfúga átt við þá sem beygja á í. I þessum bílum eru klippur, glennur, loffpúðar og þess háttar. Allir bílar liðsins eru merktir með FDNY in Memory til minningar um slökkviliðs- mennina sem fórust 11. september 2001. Okkur kom verulega á óvart að allir lausir stigar voru úr timbri. Álstigarnir höfðu verið teknir úr notkun vegna þess að slökkviliðs- maður lét lífið þegar hann fékk rafmagnsstuð er hann var að leggja stiga að húsi. Hinum megin við húsið hafði rafmagnslína slitnað, snert húsið og leitt rafmagnið eftir þakrenn- unni. Golfvöllur er við hliðina á stöð níu og gaf golfklúbburinn slökkviliðinu sérstakan hnjaskvagn til að nota inni á vellinum ef með þyrfti svo ekki þyrfti að fara inn á völlinn með þunga bíla. GI.OFAXl HF ÁRMÚLA 42, 108 REYKJAVÍK SÍMAR 553 4236 & 553 5336 FAX 588 8336 Eldvörn er nauðsyn ELDVARNARHURÐIR Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.