Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Side 22

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2003, Side 22
22 MT-bílar smíðuðu þennan sérútbúna vinnubíl fyrir Rarik. fjarðarbæ um smíði nýs slökkvibíls fyrir slökkviliðið hér á staðnum. Það var sem sagt samið um hvað hann mætti kosta en ekki svo nákvæmlega um hvernig hann skyldi verða. Raunin varð sú að við smíðuðum ofan á GMC pallbíl, settum í hann lausa dælu, þús- und lítra tank og tilheyrandi búnað. Þessi bíll hefur reynst vel og er enn í notkun. Það var okkar leiðarljós frá upphafi að útbúa bíla sem henta hérlendis. Bílarnir eru hannaðir með það í huga að eigin þyngd verði sem minnst svo þeir geti tekið meiri búnað og vatn en venjulegir bílar, segir Sigurjón við Slökkvi- liðsmanninn. I framhaldi af þessu smíðaði Sigurjón nokkra smærri dælubíla sem eru í notkun á Ólafsfirði, Dalvík og víðar og standa vel fyrir sínu. A árunum 1993-1994 segir Sigurjón að nokkur óvissa hafi skapast um framtíð fram- leiðslunnar vegna umræðu sem þá var um sameiningu sveitarfélaga auk þess sem óvíst var hvernig fjármunum Brunabótafélagsins yrði ráðstafað. Sigurjón ákvað því að snúa sér að öðru um hríð. Eitt mót — Ég ákvað að sjá hvernig þessi mál þróuðust áður en lengra yrði haldið. Ég hélt hins vegar áfram að hugsa og teikna og kynna mér hvernig yfirbyggingu þessara bíla yrði best fyrir komið þannig að þeir gætu borið sem mest vatn og sem mestan búnað. Ég fór með- al annars utan til þess að kynna mér þessa hluti og koma mér upp samböndum. Árið 1998 byrjaði ég svo að smíða mót fyrir nýja yfirbyggingu á slökkvibíla. Ég smíðaði fýrst módel úr timbri sem leit út nákvæmlega eins og bíllinn átti að líta út og þróaði út frá því yfirbyggingu úr plasti. Síðan hef ég ekki litið um öxl. Það tók mig sjö mánuði að smíða mótið með því að vinna frá morgni til kvölds alla daga. Mótið var svo tilbúið árið 1999 og á þeirri grunnhugmynd byggir framleiðslan í dag, hvort sem um er að ræða slökkvibíla, vinnubíla eða aðra bíla. - Þetta var auðvitað erfitt og dýrt. Ég fékk hvergi fjármagn til þess að létta undir á þessu þróunarskeiði svo ég varð einfaldlega að lifa á vinnu konunnar á þessum tíma. Það var ekki fýrr en árið 2000 sem mér tókst að fá Ný- sköpunarsjóð og fleiri að fýrirtækinu sem fjárfesta og það hjálpaði mikið. Um sama leyti náðum við svo samningum við Ólafs- fjarðarbæ um að smíða ofan á tíu tonna Benz sem var staðgreiddur við undirskrift samn- ings. Nokkru áður hafði ég smíðað á Ford 550 og Dodge Ram sem fóru til Vestmanna í Færeyjum og til Hellu. Það munaði mikið um þetta á sínum tíma, segir Sigurjón. Vönduð og endingargóð vara AIls hafa nú orðið til rúmlega 20 bílar í smiðju Sigurjóns sem byggja allir á sömu hönnun á yfirbyggingu. Auk dælubíla fýrir slökkvilið hef- ur Sigurjón smíðað bíla fýrir björgunarsveitir, snjóbíl fýrir Björgunarsveitina Súlur á Akur- eyri og vinnubíl sem RARIK notar við vinnu á hálendinu. Hann er meðal annars útbúinn með sérstakri braut fýrir snjósleða. Yfirbygging Sigurjóns er öll úr plasti. Hið sama gildir um tankinn í bílunum. Einstakir hlutar yfirbyggingarinnar eru límdir saman þannig að á endanum er um að ræða eina ein- ingu svo engin hreyfmg er á yfirbyggingunni. Byggingarlagið og hönnunin er algerlega hug- mynd Sigurjóns og á sér ekki sinn líka. - Minn metnaður felst í því að framleiða vandaða og endingargóða vöru sem hentar þeim sem kaupa. Kaupandinn á að geta treyst því að allt virki eins og til er ætlast. Ég tel að þetta hafi komið á daginn. Bílarnir hafa reynst vel og menn eru ánægðir með það sem þeir fá frá okkur. Við leggjum til dæmis mikið uppúr því að öll vinnuaðstaða slökkvi- liðsmanna sé sem best, aðgengi að verkfærum sé gott og menn geti unnið í eðlilegri vinnu- hæð, segir Sigurjón. Kröfuharðir kaupendur Hann segir að framleiðslan sé farin að ganga vel en Sigurjón vinnur við framleiðsluna ásamt þremur öðrum starfsmönnum. Hann segist stefna að því að halda smíði slökkvibíla áfram en hyggst jafnframt auka umsvifin í smíði bíla fýrir aðra björgunaraðila og leita á ný mið, til dæmis í smíði sjúkrabíla. - Undanfarið ár höfum við verið að átta Sigurjón hefur smíðað nokkra bílafyrir minni slökkvilið. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.