Bændablaðið - 09.01.2020, Page 10

Bændablaðið - 09.01.2020, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202010 „Í nýliðnu óveðri kom augljóslega í ljós að núverandi dreifikerfi raforku á Norðurlandi er ekki á vetur setjandi. Sú staðreynd hefur reyndar lengi legið fyrir enda skort verulega á að eðlilegu viðhaldi á dreifikerfinu væri sinnt,“ segir í ályktun sem Framsýn, stéttarfélag hefur sent frá sér. Þar er lýst yfir megnri óánægju með aðgerðarleysi hins opinbera í raforkumálum. „Það er ólíðandi með öllu að fólk þurfi að búa við fjarskipta- og rafmagnsleysi sólarhringum saman árið 2019, svo ekki sé talað um atvinnulífið sem treysta þarf á örugga raforku,“ segir enn fremur í ályktun Framsýnar. Rafmagnsstaurar brotnuðu eins og tannstönglar Eins segir að tjón vegna rafmagnsleysis sé verulegt, það hlaupi á milljörðum króna. „Án efa hefði verið hægt að draga verulega úr tjóni af völdum óveðursins hefði eðlilegri innviðauppbyggingu verið sinnt í gegnum tíðina í stað þess að láta það sitja á hakanum. Vissulega er það athyglisvert að rafmagnsstaurar hafi brotnað eins og tannstönglar í óveðrinu, það hlýtur að segja töluvert um ástand þeirra.“ Fjárfesting sem skilar sér Framsýn segir að stjórnvöld verði að bregðast við þessum alvarlega vanda í samráði við raforkufyrir- tækin og íbúa þeirra sveitarfélaga sem búa við þessar óboðlegu að- stæður. Þá krefst Framsýn þess að ráðist verði í lagfæringar á dreifi- kerfinu þegar í stað svo aðstæður sem þessar endurtaki sig ekki. „Nú þegar ákveðin efnahagslægð er í þjóðfélaginu er fátt betra en að ráð- ast í uppbyggingu á raforkukerfinu á landsbyggðinni, það er fjárfesting sem skilar sér beint aftur til þjóðar- búsins.“ Loks þakkar Framsýn þeim fjölmörgu starfsmönnum sem unnu við að koma rafmagni í lag fyrir ómetanleg störf, oft við hættulegar aðstæður. „Það sama á við um þá björgunarsveitarmenn sem stóðu vaktina í óveðrinu. Þeim verður seint þakkað að fullu fyrir þeirra frábæra starf í þágu samfélagsins.“ /MÞÞ FRÉTTIR Dreifikerfi raforku á Norðurlandi ekki á vetur setjandi Staurastæður brotnuðu viða á Norðurlandi í óveðrinu í desember. Mynd / RARIK Sveitarstjórn Hörgársveitar: Gerir kröfur um að raflínum verði komið í jörð Sveitarstjórn Hörgársveitar segir í bókun að ljóst sé að þær loftlínur raforku sem enn eru í sveitarfélaginu hafi valdið mikl- um vanda og tjóni í óveðri sem gekk yfir landið í desember. Þær séu á engan hátt tilbúnar að mæta miklum vetrarveðrum eða hvass- virðri og staðsetning hluta þeirra í gegnum þéttan trjágróður sé ekki viðunandi. Í Hörgárdal og Öxnadal var raf- magnslaust í nær fjóra sólarhringa þar sem það skorti lengst. Standast ekki kröfur um raforkuöryggi „Því er algjörlega hafnað að farið verði í einhverjar framtíðarviðgerðir á þeim tveimur köflum loftlína í sveitarfélaginu sem nú brugðust. Krafan er að strax og hægt er verði þessum línum komið í jörð,“ segir sveitarstjórn Hörgársveitar og gerir þá kröfu að RARIK og Landsnet sjái síðan til þess að allar þær loft- línur rafmagns sem í sveitarfé- laginu eru, fari í jörð eins fljótt og mögulegt er. Á þetta við um allar sveitalínur, Dalvíkurlínu og núver- andi byggðalínu. Allar þessar línur eru komnar til ára sinna og ljóst að þær standast ekki þær kröfur sem nútímasamfélag gerir varðandi raf- orkuöryggi. Fjarskiptakerfi svæðisins þarf að yfirfara með því markmiði að aldrei komi upp sú staða að vegna skorts á fjarskiptum verði lífi stefnt í hættu. Það hefði getað gerst hér í sveitar- félaginu nú, þegar allt fjarskipta- samband lá niðri á ákveðnu svæði vegna rafmagnsleysis og neyðarafl var uppurið,“ segir m.a. í bókuninni. /MÞÞ Úr Hörgársveit. Sveitarstjórn Húnaþings vestra: Land innan marka sveitarfélagsins verði ekki hluti þjóðgarðs Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ítrekað ósk sína um að land innan marka Húnaþings vestra verði ekki hluti fyrirhug- aðs þjóðgarðs á miðhálendinu. Á þetta bæði við um land í beinni eigu sveitarfélagsins og þjóðlend- ur í afréttareign innan marka Húnaþings vestra. Sveitarstjórn hefur einnig áréttað að samkvæmt lögum er skipulags- vald, þ.e. vinnsla og samþykkt svæð- is-, aðal- og deiliskipulags í höndum sveitarfélaga. Það er því ekki í verka- hring ráðherraskipaðrar nefndar, ráðherra eða Alþingis að hafa með beinum hætti áhrif á skipulag sveitar- félaga með því að gera tillögu að legu þjóðgarðs á miðhálendinu innan marka þeirra. Ákvarðanir flytjast úr heimahéraði Áherslur er varða stjórnskipun þjóð garðs á miðhálendi Íslands fela í sér flutning á stefnumörkun, umsjón og rekstri frá sveitarfélögum til svæðis ráða. Þessar hugmyndir takmarka áhrif sveitarfélaga til þess að móta sér stefnu til að mynda hvað varðar uppbyggingu inn- viða, atvinnumál, landnýtingu og landvernd. Sveitarstjórn gagn rýnir að fyrirliggjandi texta drög feli í sér hugmyndir um færslu á valdheimildum sveitarstjórna til svæðisráða. Þannig flyst ákvarðanataka frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum sveitarfélaga til kjörinna fulltrúa annarra sveitarfélaga, embættismanna og hagsmunahópa. Sveitarstjórn leggur áherslu á að í dag ríkir engin óvissa um stjórn svæða innan marka sveitarfélagsins. Skerðing á valdheimildum Sveitarstjórn telur að fyrirliggjandi tillaga nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands feli í sér veru- lega skerðingu á valdheimildum sveitar félaga og réttindum íbúa þeirra. Í fyrirliggjandi texta drögum þar sem fjallað er um markmið með stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu er ekki lýst brýnni nauðsyn fyrir stofnun hans. Hugmyndir um stofnun þjóðgarðs á miðhálend inu virðast fyrst og fremst tilkomnar til þess að styrkja eignar- eða ráðstöfunarrétt ríkisins yfir landi á hálendi Íslands, segir í bókun sveitarstjórnar Húna- þings vestra. /MÞÞ Sveitarstjórn gagnrýnir að fyrirliggj- andi textadrög feli í sér hugmyndir um færslu á valdheimildum sveitar- stjórna til svæðisráða. Styrkur til mastersnáms í jarðvegsvistfræði og jarðvegsheilbrigði í lífrænni ræktun VOR - Verndun og ræktun, félag framleiðenda í lífrænum búskap, auglýsir styrk til mastersnema við Landbúnaðarháskóla Íslands til rannsókna. Verkefnið er á sviði jarðvegsvistfræði og miðar að því að kanna og bera saman smádýr, sveppi og örverur (með DNA greiningu) í jarðvegi sem annars vegar hefur fengið tilbúinn áburð og hins vegar sauðatað. Einnig verður mæld öndun í jarðvegssýnunum og hvernig hún bregst við ólíkum umhverfisþáttum. Markmiðin eru að leiða fram áhrif ólíkra áburðarmeðferða, þ.e. lífrænna og ólífrænna, á líffræðilega fjölbreytni og starfsemi jarðvegsins og þar með heilbrigði hans. Rannsóknin skal fara fram á framræstu tilraunalandi á Hvanneyri sem hefur til áratuga fengið ólíka skammta af hefðbundnum áburði annars vegar og sauðatað hins vegar. Leiðbeinendur í verkefninu verða Próf. Jan Axmacher LbhÍ og Próf. Ólafur S. Andrésson HÍ. VOR og LbhÍ óska hér með eftir umsóknum nemenda með háskólapróf í lífvísindum/umhverfisfræðum í þetta verkefni. Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og stutt persónuleg greinargerð frá viðkomandi sem lýsir áhugasviði og framtíðaráformum. Styrkupphæðin er 1,5 milljón króna, þar af eru áætlaðar 500.000 kr í efniskostnað. Umsóknum skal skila á rafrænu formi til Guðmundu Smáradóttur, mannauðs- og gæðastjóra LbhÍ (gudmunda@lbhi.is) fyrir 10. febrúar 2020. Skjálfandahólf skilgreint sem riðufrítt varnarhólf Allt Skjálfandahólf hefur nú verið skilgreint sem riðufrítt varnarhólf, en um áramótin hafði ekki komið upp smit í því í tuttugu ár. Þá eru eftir sjö varnarhólf sem eru flokkuð sem sýkt varnarhólf, af þeim 25 sem landið er flokkað niður í. Engin riðusýkt svæði eru því í Skjálfandahólfi en áfram gilda takmarkanir á flutningi á fé milli bæja þar sem garnaveiki hefur greinst síðustu tíu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun gilda sömu reglur um sýkt svæði innan varnarhólfs og um sýkt varnarhólf; allir flutningar á fé milli hjarða innan þessara svæða og frá þeim yfir varnalínur eru bannaðar. Til að kaupa líffé inn á sýkt varnarsvæði þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar. Leyfi þarf til að flytja inn á ósýkt svæði Þegar skilgreind eru ósýkt svæði innan varnarhólfs þá gilda sömu reglur og um ósýkt varnarhólf; engar takmarkanir eru settar á flutninga með lifandi fé milli hjarða innan þessara svæða. Hins vegar þarf að sækja um leyfi til Matvælastofnunar ef flytja á fé inn á þessi svæði. Eftirtalin sjö varnarhólf eru þá enn skilgreind sem sýkt riðusvæði: Landnámshólf, Vatnsneshólf, Húna- og Skagahólf, Tröllaskagahólf, Suðurfjarðahólf, Hreppa-, Skeiða- og Flóahólf auk Biskupstungnahólfs. Landnámshólf verður næst til að verða aflétt úr riðuhöftum, eða í lok árs 2023, komi ekki upp smit. Þar á eftir er það Biskupstungnahólf, ári seinna. /smh Skipting landsins niður í varnarhólf og litamerkingar eftir svæðum. Mynd / Matvælastofnun Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.