Bændablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202020
Gjaldþrotum í bandarískum
landbúnaði fer fjölgandi sam
kvæmt samantekt Skrifstofu
samtaka bandarískra bænda
[American Farm Bureau
Federation AFBF] sem birt var
í lok síðastliðins októbermánaðar.
Hafði „gjaldþrotum“ samkvæmt
kafla 12 í gjaldþrotalögum
[Chapter 12 bankruptcies] þar
ytra þá fjölgað um 24% á milli
ára.
Fjölgun gjaldrotameðferða í
landbúnaði vekur ugg í Banda
ríkjunum þó gjaldþrot hafi ekki náð
því hámarki sem var a níunda áratug
síðustu aldar. Ástæður fjölgunar
gjaldþrota eru margvíslegar en óáran
í veðurfari, ýmist með langvarandi
þurrkum eða flóðum þar sem ekki
tókst að sá í umflotna akra, spila
þar stóra rullu. Önnur ástæða eru
aðgerðir bandarískra stjórnvalda í
formi tollastríðs við Kína og fleiri
ríki.
Í úttektinni er vísað í tölur
landbúnaðarráðuneytis Banda
ríkjanna (USDA) þar sem gert var
ráð fyrir að framleiðslutekjur bænda
yrðu um 88 milljarðar dollarar á
árinu 2019, sem eru mestu tekjur
síðan 2014 þegar þær voru um 92
milljarðar dollara. Það er samt 29%
lægri tekjur en metárið 2013. Þessar
upphæðir eru þó leikur að tölum því
að af 88 milljarða dollar tekjum á
árinu 2019 eru nærri 40%, eða um
33 milljarðar dollara í formi aðstoðar
vegna óáran í landbúnaði af ýmsum
toga.
Með 516 milljarða dollara lán
Samhliða lægri tekjum og meiri
opinberrar aðstoðar þá hafa skuldir
aldrei verið meiri en á árinu 2019 eða
416 milljarðar dollara. Þar af eru 256
milljarðar dollara fasteignatryggðar
veðskuldir og 159 milljarðar dollara
eru óveðtryggðar skuldir. Hins
vegar standa stórbú undir tæplega
helmingi af landbúnaðarframleiðslu
Bandaríkjanna og þau hafa sum hver
verið að gera það gott. Hjá þeim
er búist við 9% tekjuaukningu að
meðaltali á árinu 2020.
Lenging lána og lágir
vextir duga ekki til
Samkvæmt gögnum seðlabanka
Kansas hefur stöðugt verið að teygjast
á endurgreiðslutíma lána. Meðal
endurgreiðslutími óveðtryggðara
lána er nú kominn í 15,4 mánuði á
meðan endurgreiðslutími lána sem
tryggð eru í fóðruðum gripum (eins
og mjólkurkúm) eru 13 mánuðir
18 mánuðir í öðrum gripum. Þá
eru veltulán tengd uppskeru og
fóðrun að meðaltali með 11,5
mánaða endurgreiðslutíma sem er
það lengsta sem sést hefur. Þannig
eru bændur stöðugt að lengja í
endurgreiðslutíma rekstrarlána og
hefur það haldist nokkuð í hendur
við lækkandi vexti á markaði. Lægri
vextir hafa samt ekki dugað til að
halda bændum á floti.
Samhliða því að skuldastaða
bandaríkra bænda hefur aldrei verið
verri þá hefur greiðslustöðvunum
samkvæmt kafla 12 í gjaldþrotalögum
verið að fjölga. Frá september
2018 til september 2019 voru 580
býli tekin í gjaldþrotameðferð
sem er aukning upp á 24% á
milli ára. Það er jafnfram mesta
gjaldþrotameðferðartíðni síðan
2011 þegar 676 býli voru tekin til
meðferðar dómstóla.
Mikill munur er á fjölda
gjaldþrota tilfella eftir ríkjum í
Bandaríkjunum. Voru gjaldþrota
tilfellin flest í Wisconsin eða 48 og
37 í Georgíu, Nebraska og Kansas. Í
Iowa, Kansas, Maryland, Minnesota,
Nebraska, New Hampshire, Suður
Dakota, Wisconsin og Vestur
Virginíu voru gjaldþrotatíðnin í
öllum tilvikum yfir tíu ára meðaltali.
Aukningin milli ára var mest í
Oklahoma eða um 14 býli. Aukningin
nam 12 býlum í Georgíu, 11 í
Kaliforníu og 10 í Iowa og Kansas.
Hlutfallslega mesta aukningin var
í Oklahoma eða úr 2 árið 2018 í 17
fram til september 2019.
Verst í miðvesturríkjunum
Yfir 40% gjaldþrotabeiðna eða 255
voru í 13 ríkjum í miðvesturríkjum
Bandaríkjanna. Var það 13%
aukning á milli ára. Næst
komu suðausturríkin með 118
gjaldþrotameðferðarbeiðnir sem var
31% aukning á milli ára.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Mikill vandi í bandarískum landbúnaði:
Skuldir aldrei meiri og gjaldþrotameðferðum
hefur fjölgað um nær fjórðung milli ára
Stáltollastríð Trump við Kína og Mexíkó sagt hafa stórskaðað bandarískan landbúnað:
Fjölskyldubú í New York ríki leggja
upp laupana hvert af öðru
– Kúabændur á minni búunum eiga vart lengur fyrir nauðþurftum og sækja um matarmiða
Bandaríska stórblaðið The
Washington Post sagði í undirtitli
blaðhaussins á öðrum degi jóla
að svartnættið væri að drepa
lýðræðið. Í fyrirsögn greinar um
bandarískan landbúnað segir
einnig að í landi Trump sé svo
komið að fjölskyldubúin þurfi að
reiða sig á neyðaraðstoð.
Þetta er ansi mikið á skjön við
fréttir af auknum þrótti bandaríska
hagkerfisins eftir valdatöku Trump
stjórnarinnar. Virðist sá aukni þróttur
einkum ná til iðnfyrirtækja, en um
leið vera m.a. á kostnað bandarísks
landbúnaðar.
Í grein eftir Annie
Gowen er dregin upp dökk
og dramatísk mynd af
lífsbaráttu alþýðufólks og
bandarískum landbúnaði.
Lýst er erfiðleikum
bóndakonunnar Anne
Lee við að brauðfæða
sjömanna fjölskyldu sína
í Berkshire í New York
ríki. Til þess hefur hún
einungis úr 175 dollurum
að spila á mánuði. Hún velti
fyrir sér hvort hún ætti að bjóða upp
á kjúklinganúðlusúpu, en ákvað að
bjóða upp á kjúkling í kexi (Chicken
in a Biskit pakkamat) þar sem í
því væri meiri magafylling. Anne
Lee er sögð þekkja afsláttartilboð
matvöruverslana mjög vel
eins og á tómatamauki
með chili á 1 dollar dósin og
kartöflunaggar
(tots) á 1,69 dollara pokinn.
„Ég vildi að ég gæti gert lasagna,
en það er of dýrt,“ segir Anne
Lee. Enda kosta 250 grömm
af osti á lasagne 2,49 dollara.
Ferskt grænmeti er líka dýrt,
nema kannski laukur og
kartöflur í pokum. Það er jafnvel
líka spurning um hvort Anne hafi
efni á að kaupa ávexti.
Í miklum vanda
þrátt fyrir afskriftir
Anne Lee og eiginmaður hennar
Andy tóku við kúabúi foreldra
hans á 123 hektara jörð (305
ekrum) árið 2013. Þau eru nú
með 65 mjólkandi kýr í fjósi.
Eftir að Trump stjórnin lagði upp
í viðskipta og tollastríð við erlend
ríki féll verð á mjólkurvörum
með þeim afleiðingum að eftir
situr bú eins og hjá Anne Lee og
Andy með 200.000 dollara í skuld
og tekjur af mjólkursölunni hafa
dregist saman um 4.000 dollara
á mánuði. Samt hafa þau gengið
í gegnum gjaldþrotameðferð sem
Ekki er það kræsilegt
fæðið sem kúabóndinn
Anne Lee segist verða að
bjóða fjölskyldunni upp á
vegna fjárhagsvandræða í
búrekstrinum. Ódýr dósa
matur af útsölum, verksmiðju
framleiddir kartöflunaggar og
kex með kjúklinga bragði.
Í grein eftir Annie Gowen er dregin upp dökk og dramatísk jólamynd af lífsbaráttu alþýðufólks og bandarískum landbúnaði. Mynd / UDIM
Fjölgun gjaldrotameðferða í landbúnaði vekur ugg í Banda ríkjunum.