Bændablaðið - 09.01.2020, Side 21

Bændablaðið - 09.01.2020, Side 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 21 SLEÐAVEISLAí janúar Sidewinder BTX 153 Orginal túrbína. Fjórgengismótor. Fox fjöðrun . Fullt verð 2.850.000 kr. Tilboðsverð 2.590.000 kr. Takmarkað magn. Sidewinder STX 146 Orginal túrbína. Fjórgengismótor. Öflugur 2ja manna ferðasleði með hliðartöskum og auka bensíntanki. Fullt verð 3.040.000 kr. Tilboðsverð 2.890.000 kr. Takmarkað magn. ARCTIC TRUCKS KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK S: 540 4900 arctictrucks.is fól í sér afskriftir með ríkisframlagi (bailout) á 4.100 dollara skuldum. Í slíkar aðgerðir sem áttu að vera til bjargar illa stöddum bandarískum bændum setti Trumpstjórnin 28 milljarða dollara á landsvísu. Þetta hefur verið gagnrýnt á þeim forsendum að það skapaði fyrst og fremst stórbúunum tækifæri til að sölsa undir sig illa settar bújarðir. Samkvænt rannsókn Environmental Working Group hefur um 60% þess fjár sem fór til að hjálpa bændum í New York ríki runnið til 10 efnuðustu búanna. Anne Lee er þakklát fyrir stuðning­ inn sem þau hjón fengu frá ríkinu þó hann dugi hvergi nærri til að halda búinu á floti. Trump er þrátt fyrir allt forsetinn sem Anne Lee og fjöldi miðstéttarfólks og fátækra kaus í kosningunum 2016. Slæmar afleiðingar af vanhugsuðum aðgerðum Þessi staða snýst þó ekki bara um flausturslegar og vanhugsaðar að­ gerðir Trumstjórnarinnar þó þær hafi sannarlega bætt gráu ofan á svart í alvarlegri stöðu. Raunveruleikinn er sá að offramleiðsla var orðin á mjólkurvörum á heimsmarkaði, m.a. í löndum Evrópusambandsins eftir að framleiðslukvótar voru aflagðir. Neysla á mjólkurvörum hafði einnig verið að minnka í Bandaríkjunum sem líka orsakaði offramboð og verðfall. Það var farið að hafa mjög slæm áhrif á bændur í New York ríki. Frá 2012 hefur kúabúum í ríkinu t.d. fækkað um 1.100 samkvæmt opinberum tölum. Eftir að Trump­stjórnin setti ofurtolla á stál sem flutt var inn frá Kína og Mexíkó 2018, svöruðu þær þjóðir fyrir sig með innflutningstollum m.a. á kornvörur og mjólkurvörur frá Bandaríkjunum. Kínverjar hafa auk þess farið út í að auka verulega sína mjólkurframleiðslu til að verða sjálfum sér nægir og það mun skaða bandaríska bændur til langrar framtíðar. Þetta er ekki ósvipað afleiðingum af heimskulegum viðskiptarefsingum sem Evrópusambandið og Banda­ ríkin fóru í gegn Rússum eftir yfirtöku þeirra á Krímskaga. Það olli því að Rússar ákváðu að tryggja sitt fæðuöryggi og verða sjálfum sér nægir í framleiðslu á landbúnaðarvörum árið 2020. Það hefur gengið eftir og valdið bændum í ESB löndunum stórkostlegu tjóni vegna minni viðskipta við Rússa. Nú er sýnt að það er orðið viðvarandi ástand til frambúðar. Tollaútspil Trump gagnvart Kína og Mexíkó olli strax 125 milljóna dollara kjaftshöggi fyrir mjólkurbændur í New York ríki samkvæmt áætluðum tölum yfir valda. Um hálfur tugur kúabúa í næsta nágrenni við Anne Lee og Andy hafa gefist upp og hætt starfsemi og þau sem eftir heyja harða baráttu fyrir tilveru sinni. Bændur víða um Bandaríkin berjast í bökkum Í greininni er sagt að bændur víða um Banda ríkin berjist nú í bökkum og eigi vart fyrir nauðþurftum. Afleiðingin sé stöðug aukning gjaldþrota sem hafi sjaldan verið fleiri. Beiðnum vegna gjaldþrotameðferða hafi fjölgað um 57% frá 2015. „Það er ætlast til að við brauð­ fæðum heiminn, en við getum ekki einu sinni boðið upp á mat á okkar eigin borðum,“ segir Anne í viðtali við The Washington Post. Sækja um matarmiða Í október síðastliðnum var staðan á heimilinu þannig að varla var nokkur matararða eftir á heimilinu. Þá fór Anne að skoða hvað hægt væri að gera og fór að íhuga leiðir sem henni hafði aldrei áður dottið í hug, eins og að biðja um matarmiða og matargjafir. Var hún því að fylla út umsókn um matarmiða sem áður voru kallaðir svo, en ganga nú undir skammstöfuninni „SNAP“ sem er stytting á „Supplemental Nutrition Assistance Program“ eða verkefni um næringaraðstoð. „Þetta er það sem neyðin kennir okkur,“ sagði hún á þá við eigin­ manninn. Frá 2012 hefur kúabúum í New York ríki fækkað um 1.100 samkvæmt opinberum tölum. Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 Við sérhæfum okkur í þinni starfsemi RML tekur við verkefnum tölvudeildar BÍ Frá og með áramótum færðist starfsemi tölvudeildar Bændasamtaka Íslands yfir til Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Með breytingunni færist upplýsingatækni og ráðgjöf undir sama hatt. Útreikningar á kynbótamati, þróun forrita og þjónusta verður framvegis á hendi RML. Við vonumst til að þjónusta við bændur og aðra notendur verði enn markvissari en áður. Bændur og aðrir notendur forrita BÍ eru boðnir velkomnir í viðskipti við RML. Allar upplýsingar um skýrsluhald, forrit og þjónustu er að finna á vefnum rml.is. Sími: 516-5000 Netfang: rml@rml.is Vefur: www.rml.is Síminn hjá RML er opinn kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00 virka daga. Netspjall RML er opið kl. 10.00 – 12.00 og 13.00 – 15.00 virka daga. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 GRAFAGRINDUR GOTT ÚRVAL

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.