Bændablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202024
LÍF&STARF
„Við finnum fyrir auknum
áhuga á trjáplöntum og einkum
og sér í lagi er sá áhugi kveikjan
að því að við vinnum að þeirri
upp byggingu sem nú stendur
yfir á okkar starfssvæði,“
segir Katrín Ásgrímsdóttir,
framkvæmdastjóri Sólskóga í
Kjarnaskógi við Akureyri.
Fyrirtækið hefur nýverið reist
2.000 fermetra stórt gróðurhús í
Kjarnaskógi. Svipað gróðurhús
var reist hjá fyrirtækinu árið 2008.
Katrín er ásamt eiginmanni sínum,
Gísla Guðmundssyni, eigandi
Sólskóga. Hjá fyrirtækinu starfa
um 10 manns yfir veturinn en þeim
fjölgar yfir sumarmánuðina og eru
þá um 20 talsins.
Þrjú minni og léttari
hús voru reist á liðnu sumri
Framkvæmdir á svæðinu hófust
síðasta vetur, en unnið var að deili
skipulagsbreytingum í mars í fyrra
og í kjölfar þess var farið í hönnun
húsanna, öflun byggingaleyfa og
fleira slíkt.
„Við byrjuðum síðan á fram
kvæmdum hér um miðjan júlí með
byggingu á léttari gróðurhúsum,
þau eru þrjú talsins og alls um 1.000
fermetrar að stærð. Í kjölfarið, eða
í lok september, hófumst við handa
við byggingu á stóra húsinu, það er
um 2.000 fermetrar að stærð,“ segir
Katrín en byggingu þess lauk um
mánaðamótin nóvember desember
síðastliðinn.
„Við höfum verið að klára ýmis
verkefni, meðal annars lagnir og
fleira innandyra. Það er stefnt að
því að sá í stóra húsið i byrjun apríl
þannig að við stefnum að því að
öllu verði lokið í mars. Við gerum
svo ráð fyrir að taka minni húsin í
notkun í vor eða byrjun sumars,“
segir Katrín.“
Hún segir að út í þessar fram
kvæmdir sé farið til að mæta
aukinni eftirspurn eftir trjá
plöntum. Fyrst og fremst fram
leiði Sólskógar plöntur fyrir
Skógræktina, – „en við verðum
líka vör við aukinn áhuga hjá
fyrirtækjum og einstaklingum og
það styrkir okkur í þeirri trú að
þessi aukning í framleiðslunni eigi
framtíð fyrir sér, hún sé komin til
að vera,“ segir Katrín.
Viðhald á eldri húsum
og uppbygging útisvæða
Samhliða uppbyggingu á nýjum
gróðurhúsum hefur verið unnið
að viðhaldi á þeim eldri og verður
eitt þeirra tekið í notkun á komandi
vori, þannig að alls bætast við
starfsemina um 3.500 fermetrar í
gróðurhúsum.
Alls munu Sólskógar því hafa
yfir að ráða um 6.500 fermetrum í
gróðurhúsum sem skiptist þannig að
5.500 er fyrir skógarplöntur og um
1000 tengjast garðplönturæktun.
Á komandi sumri og fram á haust
verður einnig bætt við útisvæði
fyrir skógarplöntur, alls um 6.000
fermetrum.
Katrín Ásgrímsdóttir tók fyrstu skóflustungu að nýju 2.000 fermetra gróðurhúsi í lok september. Stefnt er að því að sá í húsinu í apríl. Myndir / Sólskógar
Gísli Guðmundsson, eigandi Sólskóga, að störfum við að reisa minna húsið á liðnu sumri.
Sólskógar eiga nú tvö gróðurhús um 2000 fermetra að stærð, sem kemur sér vel í ljósi þess að framleiðsla á
skógarplöntum vex ár frá ári.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Sólskógar í Kjarnaskógi standa í stórræðum:
Reisa nýtt 2000 fermetra gróðurhús
og nokkur smærri að auki
– Framleiðsla hefur vaxið hröðum skrefum á skógarplöntum
V ið byrjuðum síðan á fram-kvæmdum hér um miðjan júlí með byggingu á léttari
gróðurhúsum, þau eru þrjú talsins
og alls um 1.000 fermetrar að stærð.
Í kjölfarið, eða í lok september, hóf-
umst við handa við byggingu á stóra
húsinu, það er um 2.000 fermetrar
að stærð.