Bændablaðið - 09.01.2020, Page 27

Bændablaðið - 09.01.2020, Page 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 27 Umsókn um leyfi til selveiða Fiskistofa vísar til reglugerðar nr. 1100/2019 um bann við selveiðum. Reglugerðin gildir um bann við veiði á öllum selategundum. Í reglugerðinni kemur fram að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengu sérstöku leyfi frá Fiskistofu. Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á sel til eigin nytja innan netlaga þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag. Fiskistofa auglýsir nú eftir umsóknum um leyfi til selveiða til eigin nytja á árinu 2020. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2020. Umsóknum skal skila á eyðublaði: http://www.fiskistofa.is/media/eydublod/Umsokn-um-selveidar-til-eigin-nytja.pdf sem senda skal með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is eða með pósti til Fiskistofa, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfjörður. Hér má sjá útlínur garðhleðslunnar sem halda fénu frá ræktarlandi eyjunnar þannig að féð hefur einungis beitarland í og við fjöruna. – Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN HUSQVARNA FS 400 LV Sögunardýpt 16,5 sm HUSQVARNA K 770 Sögunardýpt 12,5 sm HUSQVARNA K 2500 Sögunardýpt 14,5 sm HUSQVARNA DM 230 HUSQVARNA K 3600 MK II Sögunardýpt 27 sm HUSQVARNA Steinsagarblöð og kjarnaborar Bænda 23. janúar Aflvélar ehf. • Vesturhrauni 3 • 210 Garðabær Sími: 480 0000 • www.aflvelar.is • sala@aflvelar.is Demparar fyr i r þá kröfuhörðu! Demparar á lager í margar gerði r ökutækja m.a. Fólksbí la - Jeppa - Vörubí la - F lutningabí la - Rútur graslendi eyjunnar, þá myndi það hreinlega drepast af kopareitrun, þrátt fyrir að koparinnihald í grasinu sé ekki mjög mikið,“ segir Sinclair. „Féð er orðið svo aðlagað fæð­ unni sem fæst í fjörunni sem er nær eingöngu þari. Ef við fóðruðum þær á blöndu af grasi og þara, þá tæki það kindurnar væntanlega ekki nema nokkur ár að aðlaga sig að grasinu á nýjan leik. Við höfum reynslu af slíkri aðlögun hjá fé sem var með gin­ og klaufaveiki og var sent í einangrun til Englands. Þegar komið er fram undir lok sumars er enga grasbeit að hafa fyrir kindurnar og þær lifa því nær eingöngu á þara. Þarinn er mestur á haustin og þá fitnar sauðféð mest. Úti fyrir ströndinni eru rif þar sem mikið vex af þara á sumrin. Þegar veður versnar slíta öldurnar upp þennan þara og hann berst á land þar sem kindurnar ná honum. Þær verða þó að sæta sjávarföllum því um sjö metra munur er á sjávarstöðu á milli flóðs og fjöru.“ Aðeins eitt lamb fær að lifa undan hverri kind Sinclair var sjálfur með um 100 kindur í samvinnu við bróður sinn. Hann sagði í viðtalinu 2014 að þá hafi verið um 2.400 kindur á eyjunni, en nú eru þar um 2.000 fjár samkvæmt greininni í BBC. Taldi Sinclair að fjörubeitin gæti alveg borið 3.500 fjár. Ærnar eru flestar tvílembdar við burð, sem venjulega fer fram í apríl, aðallega frá 15. apríl til loka mánaðarins. Til að tryggja að ærnar geti örugglega komið lömbum á legg við erfið lífsskilyrði, þá hefur skapast sú venja að drepa annað lambið við burð. Er það kallað „culling“ sem merkir eiginlega hvort tveggja að færa lömb frá við burð og drepa. Ástæðan fyrir þessu er líka sú að á Norður­Ronaldsay er lömbum ekki slátrað á haustin eins og þekkist á Íslandi, enda yrði fallþungi dilkanna vart meiri en 11 kg að sögn Sinclairs og í allra mesta lagi 15 kg. Lömbin eru því alin áfram og er kindunum þá ekki slátrað fyrr en þær eru fullvaxnar og orðnar um fimm ára gamlar. Þá er fallþungi þeirra um 22 til 23 kg. Hrútarnir fá að lifa til hárrar elli Sum hrútlömb sem látin eru lifa eru gelt undir lok fyrsta sumarsins og kallast þá „wethers“. Þeim er heldur ekki slátrað fyrr en um fimm ára aldur. Aðrir hrútar sem notaðir eru til að halda stofninum við fá að lifa allt þar til þeir drepast úr elli. „Þá eru þeir kannski 14 til 15 ára gamlir. Þá fær náttúran einfaldlega að sjá um hræið. Venjulega tekur sjórinn þau eða hræin verða að fæðu fyrir urmul sjófugla sem eru á eyjunni auk refs,“ sagði Sinclair í viðtalinu við Bændablaðið haustið 2014. /HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.