Bændablaðið - 09.01.2020, Side 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202032
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Mikil vinna við lagfæringar í Kjarnaskógi þegar vorar
„Það er alveg ljóst að mikið er um
bogin og brotin tré í Kjarnaskógi
og mikil vinna fram undan þegar
vorar að saga og snyrta. Það
hafa verið miklir umhleypingar
í veðri undanfarnar vikur en
trén hafa það flest bara bærilegt
þrátt fyrir þá,“ segir Ingólfur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Stóri veðurhvellurinn í desem-
ber var þannig að það gekk á með
miklum og blautum snjó sem settist
á trjákrónur sem þyngdi þær mikið,
en Ingólfur segir að sver tré geti
kubbast í tvennt undan slíku fargi.
Kostnaðarsamt verkefni við
hreinsun og grisjun
Ingólfur segir að til lengri tíma litið
hafi óveðrið ekki áhrif á viðgang
skógarins, sem væntanlega eigi
eftir að upplifa verri áföll á sinni
löngu ævi.
„Skaðinn er fyrst og fremst á
opnari svæðum þar sem vindur
kemst að, t.d. við stíga og flatir,
toppar hafa brotnað á háum trjám,
einstök tré bogna, brotna eða
leggjast yfir vegi og stíga en allt
jafnar þetta sig nú með tímanum
og með hefðbundnu viðhaldi
skógarins,“ segir Ingólfur, en
bætir við að þegar horft sé til
þeirrar vinnu sem fram undan sé
við grisjun, hreinsun og lagfæringar
í Kjarnaskógi á næsta
ári, sem sé gríðarmikið
og kostnaðarsamt verk efni, sé
tjónið umtalsvert.
Dýrmæt aðstoð sjálfboðaliða
Ingólfur segir að Skógræktarfélagið
hafi fengið dýrmæta aðstoð frá
notendum skógar sem buðu
fram aðstoð strax og veðri
slotaði. Um 40 manns brunuðu
um skóginn á gönguskíðum,
klipptu og söguðu greinar og
tré sem slúttu yfir vegi og stíga
sem gerði kleift að halda öllum
göngu- og skíðaleiðum opnum
í framhaldinu. Akureyrarbær,
samhliða öllu öðru snjóamstri,
sá til þess að akvegir væru ruddir
og bílastæði væru næg. /MÞÞ
Sjálfboðaliðar, notendur skógarins, lögð hönd á plóg, fóru um á gönguskíðum og klipptu og söguðu greinar og tré
sem slúttu yfir vegi og stíga. Myndir / Ingólfur Jóhannson
Mikið er um bogin og brotin tré í Kjarnaskógi.