Bændablaðið - 09.01.2020, Page 32

Bændablaðið - 09.01.2020, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202032 SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Mikil vinna við lagfæringar í Kjarnaskógi þegar vorar „Það er alveg ljóst að mikið er um bogin og brotin tré í Kjarnaskógi og mikil vinna fram undan þegar vorar að saga og snyrta. Það hafa verið miklir umhleypingar í veðri undanfarnar vikur en trén hafa það flest bara bærilegt þrátt fyrir þá,“ segir Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga. Stóri veðurhvellurinn í desem- ber var þannig að það gekk á með miklum og blautum snjó sem settist á trjákrónur sem þyngdi þær mikið, en Ingólfur segir að sver tré geti kubbast í tvennt undan slíku fargi. Kostnaðarsamt verkefni við hreinsun og grisjun Ingólfur segir að til lengri tíma litið hafi óveðrið ekki áhrif á viðgang skógarins, sem væntanlega eigi eftir að upplifa verri áföll á sinni löngu ævi. „Skaðinn er fyrst og fremst á opnari svæðum þar sem vindur kemst að, t.d. við stíga og flatir, toppar hafa brotnað á háum trjám, einstök tré bogna, brotna eða leggjast yfir vegi og stíga en allt jafnar þetta sig nú með tímanum og með hefðbundnu viðhaldi skógarins,“ segir Ingólfur, en bætir við að þegar horft sé til þeirrar vinnu sem fram undan sé við grisjun, hreinsun og lagfæringar í Kjarnaskógi á næsta ári, sem sé gríðarmikið og kostnaðarsamt verk efni, sé tjónið umtalsvert. Dýrmæt aðstoð sjálfboðaliða Ingólfur segir að Skógræktarfélagið hafi fengið dýrmæta aðstoð frá notendum skógar sem buðu fram aðstoð strax og veðri slotaði. Um 40 manns brunuðu um skóginn á gönguskíðum, klipptu og söguðu greinar og tré sem slúttu yfir vegi og stíga sem gerði kleift að halda öllum göngu- og skíðaleiðum opnum í framhaldinu. Akureyrarbær, samhliða öllu öðru snjóamstri, sá til þess að akvegir væru ruddir og bílastæði væru næg. /MÞÞ Sjálfboðaliðar, notendur skógarins, lögð hönd á plóg, fóru um á gönguskíðum og klipptu og söguðu greinar og tré sem slúttu yfir vegi og stíga. Myndir / Ingólfur Jóhannson Mikið er um bogin og brotin tré í Kjarnaskógi.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.