Bændablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 39
Stundum fæ ég góðar ábendingar
um val á efni í þennan pistil
og í einstaka tilfellum um að
einhverjum mislíki efnisval.
Verst finnst mér þegar ég hef
gerst sekur um að fara með rangt
mál og fyrir skömmu kom til mín
maður með munnleg skilaboð og
eftir þessi skilaboð þarf ég að
biðjast afsökunar á að halda því
fram hér í pistli að ekki væri til
í reglum að hægt væri að sekta
menn eða að taka bíl úr umferð
fyrir að vera í vetrarumferð þar
sem er snjór og hálka.
Fyrir nokkru fékk ég skila boð í
gegnum þriðja aðila frá lögreglu
manni að hann hefði bæði sektað
fyrir léleg dekk í vetrarumferð og
að þessi sami lögreglumaður hafi
fylgt bíl á hjólbarðaverkstæði til að
skipta um dekk. Það broslega við
skilaboðin voru að sá sem færði mér
skilaboðin var beðinn sérstaklega að
geta þess að lögreglumaðurinn hafi
farið með bílstjóranum á viðkomandi
bíl inn á verkstæðið og beðið
afgreiðslumanninn á verkstæðinu um
að afhenda ekki bílinn aftur fyrr en í
aksturshæfu standi fyrir vetrarakstur.
Spurning um að hjólbarðaverkstæðin
fari að setja lögreglumenn á prósentur
(mundi það nokkuð kallast mútur...?).
Áhersla sett á að breyta
umferðarreglum í umferðarlög
Fyrir flestum eru umferðarreglur
og umferðarlög það sama, en svo
er víst ekki og um síðustu áramót
tóku við ný umferðarlög sem er í
sjálfu sér ekki mikil breyting nema
hvað að áður var flest af því sem
breytt var reglugerð og þær reglur
eru nú orðnar af lögum. Sem þýðir
að brjóti maður umferðarreglur sem
eru umferðarlög má maður fastlega
búast við sekt fyrir brotið.
Í þessum pistlum hefur oft verið
hamrað á ljósanotkun á bílum sem
eru í umferð að ljós séu kveikt
framan og aftan. Eins og margir
vita koma margir bílar þannig að
lítil ljós kvikna bara að framan
þegar sett er í gang, þessi ljós eru
ekki lögleg ökuljós samkvæmt
íslenskum umferðarlögum (sama
hvaða lög eru í öðrum löndum
þá eru íslensk lög alltaf þau lög
sem við þurfum að fara eftir). Nú
mega þeir sem gleyma að kveikja
ökuljósin því búast við sekt fyrir
ljósleysi. Ég hef verið að hvetja
þá ökumenn sem sjá bíla í umferð
án afturljósa til að blikka háu
ljósunum fyrir aftan þá til að láta
vita af ljósleysinu og um leið forða
viðkomandi við óþarfa sekt, sem
er 20.000 krónur.
Ýmsar aðrar breytingar
á umferðarlögum
Í eldri reglum var að vörubílar og bílar
með vagna mættu ekki fara hraðar en á
80 km hraða þó að hámarkshraði væri
90. Nú mega allir bílar keyra á sama
hraða og sé ég að túlka nýju reglurnar
rétt þá má keyra með heimasmíðuðu
óskráðu kerruna sem er undir 750 kg á
90 km hraða sé það hámarkshraðinn í
staðinn fyrir 60 km hraða áður.
Dráttarvélar og skellinöðrur eru
skráð sérstaklega og engin breyting
er þar á hraðamörkum.
Varðandi áfengismagn í blóði er
för ökumanns stöðvuð á staðnum ef
vottur af áfengi mælist við akstur, en
viðkomandi missir ekki ökuréttindin
nema mæling á áfengi í blóði sé yfir
0,6.
Margir ökumenn freistast til að
kíkja á símann sinn þegar þeir eru
stopp á ljósum, séu menn nappaðir
fyrir það er það lagt að jöfnu
við að tala í síma án handfrjáls
búnaðar sem er 40.000 samkvæmt
uppgefinni töflu um sektir.
Nokkrar setningar sem gott er
að muna og reyna að fara eftir
Vélarnar í fjórhjólum og öðrum
litlum faratækjum sem eru notuð
á vetrum í stuttan tíma í senn, ná
oft ekki að hitna upp í vinnsluhita
á milli þess að þær kólna niður í
það hitastig sem er úti. Þá er mjög
líklegt að vélarnar dragi inn á sig
raka sem blandast smurolíunni. Því
þarf að skipta oftar um smurolíu
á þeim tækjum en uppgefið er í
eigandahandbók.
Ef skipt er um dekk undir öllum
tækjum þarf alltaf að athuga með
herslu á felguboltum, sérstaklega
á stærri vinnuvélum. Af fenginni
reynslu er miklu líklegra að
felguboltar losni vinstra megin
undir farartæki, þetta er vegna þess
að í raun ætti, vegna snúningsáttar
og akstursstefnu, að vera öfugur
skrúfgangur vinstra megin á
ökutækjum. Slíkt var algengt í
vörubílum fyrir um 40–50 árum,
en er sjaldséð í dag nema á örfáum
bílum.
Sé fylgst vel með veðurspá
og spáð er miklu frosti þá
er mikil skynsemi í að fylla
eldsneytistankinn af eldsneyti
til að forðast rakamyndun inni
í eldsneytistankinum og þeim
leiðindamálum sem maður getur
lent í fái maður raka í eldsneytið.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
MINNI ÁVÖXTUR SKJÓTUR NÆRA URMULL MATJURT RIFA
VERKFÆRI
LÆNA
LÆRA
KÝS
TEMJA
ÚTDEILDI
OFANÁLAG
TOTA
ÓVISS
SKÓLI
LANDS
SAMTÖK
SPRÆKUR
TVEIR
EINS
STIRÐ-
BUSI
FISKUR
ÁGÆTIS
KVEÐJA
BOX
HÓPUR
HRÓP
BYLGJAST
ÞRÁÐA GINNAHÉKK
ÞREYTA
TRÉ
LEYSIR
HARÐÆRI
ÞEFJA
SKILJA
EFTIR
SVEIGUR
ÓÞURFT
MATUR
TVEIR
EINS
SVELGUR
BÓK-
STAFUR
GLJÁUN
SÍKI
LOKKARTÖF
ALDUR
KROT
BJARTUR
SKYLDI
HOLA
MÁLMUR
ÆVINLEGA
RÖÐULL
ÁTT
FORSÖGN
KERALDIRÍKI Í ARABÍU
ILLT UMTAL
STRÍÐNI
FISK
RÓMVERSK
TALA
SKYNJAST
ROF
FJÖLDI
KORN-
STRÁ
JURTÞEI
Í RÖÐ
M
Y
N
D
:
SØ
R
EN
N
IE
D
ZI
EL
LA
(
CC
B
Y
-S
A
2
.0
)
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
121
Nýtt ár byrjar á að skoða ýmsar hættur, reglur og annað gagnlegt
Mótorhjól og fjórhjól sem keyrð eru stutt í einu safna raka í olíuna.
Felgubolta undir stórum vinnuvélum þarf stundum að margherða.
lEituM til
fagManna
ætíð skal leita aðstoðar fagmanna
við uppsetningu á rafbúnaði eða við
breytingar á rafmagni í útihúsum.
Leikmenn eiga ekki að vinna við raf-
magn – það er bæði ólöglegt og
hættulegt.
Er þitt bú
öruggur
og góður
vinnustaður?
PO
RT
h
ön
nu
n
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson