Bændablaðið - 09.01.2020, Side 41

Bændablaðið - 09.01.2020, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 41 Prjónuð húfa með áferð og dúsk, hálsklútur með kögri úr DROPS Eskimo. Stærð: S/M – M/L. Höfuðmál: ca 54/56 – 56/58 cm. Efni: DROPS ESKIMO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E) 150-150 g litur 85, karrí 50 g litur 57, sæblár PRJÓNFESTA: 11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. 11 lykkjur á breidd og 18 umferðir á hæð með mynstri A.1 = 10 x 10 cm. PRJÓNAR: DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm fyrir stroff. DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm. DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8. Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Úrtaka (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 64 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 6,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. HÚFA: Fitjið upp 64 (68) lykkjur á hringprjón nr 7 með Eskimo. Tengið í hring, setjið prjónamerki sem marker upphaf umferðar og prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Skiptið yfir á hringprjón nr 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-12 lykkjur jafnt yfir = 54 (56) lykkjur. Prjónið A.1 hringinn í 13 (14) cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Nú byrjar úrtakan: Prjónið 0 (2) lykkjur með mynstri A.1 eins og áður, *A.2 (= 11 lykkjur), A.3 (= 7 lykkjur)*, prjónið frá *-* alls 3 sinnum á breidd. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina, eru 18 (20) lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem prjónaðar eru 2 og 2 lykkjur slétt saman = 9 (10) lykkjur. Klippið frá, dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 32 (33) cm. Dúskur: Gerið lausan og stóran dúsk ca 12 cm að þvermáli með 6 þráðum karrý og 1 þræði sæblár. Saumið dúskinn niður efst á húfuna. Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst www.garn.is Hlý vetrarhúfa HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 7 4 3 8 2 2 6 9 4 6 5 4 3 7 9 6 4 3 2 1 1 9 6 3 3 4 1 7 8 6 5 1 9 7 3 9 8 3 1 6 8 1 9 5 Þyngst 6 1 5 7 2 8 9 3 3 4 7 6 5 3 2 9 2 5 4 7 1 6 8 1 8 2 3 6 4 2 4 3 5 1 9 6 1 8 3 4 7 2 9 1 7 2 4 6 8 4 2 8 3 9 7 3 9 6 2 2 4 1 5 1 2 9 7 5 6 6 8 3 5 4 5 7 9 2 9 8 3 4 4 9 6 1 5 7 Hundar, hestar, kindur og hamstrar FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Aníta býr á Grenivík með mömmu sinni og pabba. Hún er eldhress íþróttastelpa og mikill dýravinur. Nafn: Aníta Ingvarsdóttir. Aldur: 10 ára. Stjörnumerki: Naut. Búseta: Grenivík. Skóli: Grenivíkurskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir, myndmennt og handmennt. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundar, hestar, kindur og hamstrar. Uppáhaldsmatur: Tortilla, pasta og píta. Uppáhaldshljómsveit: Engin sérstök en hef gaman af alls konar tónlist. Uppáhaldskvikmynd: Home alone og Sing. Fyrsta minning þín? Ég var pínulítil og var að reyna að hoppa en datt eiginlega alltaf á rassinn. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta með Magna og KA og svo spila ég á píanó. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnukona í fótbolta, vinna í búð og í leikskóla. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég reyndi að taka tvöfalt heljarstökk en lenti á höfðinu. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt á nýju ári? Leika mér, passa litlu frænku, ferðast, keppa í fótbolta, fara á hestbak, fara á snjóbretti og vélsleða. Næst » Aníta skorar á Sigurð Einar Þorkelsson í Höfða í Grýtubakkahreppi að svara næst. PRJÓNAHELGI Í ÞISTILFIRÐI Prjónahelgar verða í Svalbarðsskóla í Þistilfirði í vetur, 24.1.-26.1., 14.2.-16.2. og oftar seinna í vetur. Hægt er að bóka sér helgar fyrir fyrir hópa. Fjöldi er 10-12, möguleiki að bæta við en þá þarf að gista á dýnum. Þetta er upplagt fyrir prjónaklúbba, frænkuhitting og aðra hópa. Innifalið: Gisting, alltur matur, heimsókn í fjárhús, heimsókn í Fræðasetur um forystufé, kennsla og prjónajógatímar. Verð: 39.000 kr. Upplýsingar og pantanir í síma 852-8899 eða forystusetur@forystusetur.is Bænda bbl.is Facebook

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.