Bændablaðið - 05.03.2020, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202026
Samstarfssamningur milli BioPol
á Skagaströnd og Háskólans á
Akureyri var endurnýjaður á
dögunum og gildir til næstu fimm
ára. BioPol og háskólinn hafa átt í
farsælu samstarfi frá árinu 2007.
Sjávarlíftæknisetrið BioPol, sem
stofnað var á Skagaströnd í septem-
ber 2007, hefur unnið að fjölbreytt-
um verkefnum sem meðal annars
hafa miðað að því að kortleggja
vannýtt tækifæri, til verðmætasköp-
unar, innan íslensks sjávarútvegs.
Átta vel menntaðir starfsmenn með
fjölbreyttan bakgrunn starfa hjá
félaginu. Á starfstíma félagsins
hefur verið byggð upp fullkomin
rannsóknaaðstaða ásamt vottuðu
vinnslurými sem nýtist frumkvöðl-
um og smáframleiðendum.
Háskólinn á Akureyri hefur boðið
upp á meistaranám í sjávarútvegs-
og auðlindafræðum. Kennsla í sjáv-
arútvegsfræði hefur frá upphafi farið
fram í samstarfi við innlend sjávarút-
vegsfyrirtæki og fyrirtæki í tengdum
greinum og þeirra á meðal er BioPol
á Skagaströnd.
Nýta sérþekkingu sem best
Mikil ánægja er meðal forráðamanna
og starfsmanna BioPol með sam-
starfið við Háskólann og sú ánægja
er gagnkvæm segir í til kynningu á
vefsíðu félagsins. Í því ljósi hafi
nú verið gerður nýr samningur um
áframhaldandi samstarf og fjalli
hann einkum um rannsóknir og
tækniþróun á sviði sjávarlíftækni,
matvælafræði og tengdra sviða.
Í því felist m.a. að skilgreina ný
rannsóknaverkefni en helsti styrk-
leiki samstarfsins byggi á samlegð
mismunandi sérfræðiþekkingar og
meiri líkum á árangri með stærri
rannsókna- og þróunarverkefnum.
„Sameiginlegt markmið beggja
er að að nýta sem best sérþekk-
ingu þá sem samningsaðilar búa
yfir auk þess sem samningnum
er ætlað að bæta aðgengi vísinda-
manna og nemenda HA að sérfræð-
iþekkingu og aðstöðu BioPol og
aðgengi sérfræðinga BioPol að
sérfræðingum HA og aðstöðu,“
segir í tilkynningunni.
Geta auglýst stöðu sérfræðings
Í stjórn BioPol sitja fimm stjórnar-
menn og þar af einn frá HA. Með
þeim hætti leggur HA til verk-
efnisstjóra með þekkingu á sjáv-
arlíftækni, hagnýtri örverufræði,
vinnslutækni matvæla, nýsköpun
og atvinnuþróun. Starfsstöð hans
er við Háskólann á Akureyri en
verkefnið er fyrst og fremst mótun
faglegra áherslna samstarfsins og
utanumhald rannsóknarverkefna.
Allt frá stofnun BioPol hefur dr.
Hjörleifur Einarsson, prófessor við
HA, sinnt þessu hlutverki.
Samningurinn tilgreinir jafn-
framt að BioPol getur auglýst
stöðu sérfræðings sem staðsettur
verður hjá BioPol á Skagaströnd
en staðan er til komin vegna vinnu
svokallaðrar NV nefndar sem
starfaði fyrir forsætisráðuneytið
árið 2008. /MÞÞ
LÍF&STARF
BioPol á Skagaströnd og Háskólinn á Akureyri endurnýja samstarfssamning:
Sameiginlegt markmið að nýta sérþekkingu sem best
Adolf Berndsen, stjórnarformaður BioPol á Skagaströnd, og Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri,
hafa endurnýjað samstarfssamning milli stofnananna til næstu fimm ára en þær hafa átt í farsælu samstarfi frá
árinu 2007.
Skagaströnd. Mynd / HKr.
UTAN ÚR HEIMI
Matvælaframleiðsla:
Aukin sala á kjötlíki
úr jurtaríkinu
Sala á kjötlíki sem unnið er úr
jurtaríkinu hefur aukist hratt
á Bretlandseyjum undanfarin
misseri.
Framleiðendur segja að kjötlíkið
bragðist alveg eins og kjúklingar eða
beikon eða hver önnur kjötvara en
að framleiðsla þess hafi ekki eins
slæm áhrif á umhverfið og búfjár-
rækt.
Kjötlíkið sem um ræðir er sagt
líkjast kjöti á allan hátt, hvort sem
það er bragð, áferð eða lykt en það
er að mestu framleitt úr ertum og
sojabaunum ásamt bragðefnum.
Fyrirtækið sem framleiðir kjöt-
líkið og heitir This gerði nýverið
samning við sölufyrirtækið Brakes
,sem er ein stærsta heildsala í
Bretlandi, um dreifingu vörunnar og
er talið að sala hennar muni aukast
enn frekar í framhaldi af því.
Sala á matvörum sem koma
á í staðinn fyrir kjöt jókst á
Bretlandseyjum á síðasta ári um
40% og spár fyrir árið 2020 gera
ráð fyrir að salan eigi eftir að aukast
enn meira á komandi árum. /VH
Kjötlíkið sem framleitt er úr ertum og sojabaunum er sagt líkjast kjöti á allan
hátt, hvort sem það er bragð, áferð eða lykt.
Umhverfismál:
Köngulpálmar blómstra í fyrsta sinn
Afleiðingar hlýnunar jarða geta
tekið á sig ýmsar myndir sem ekki
eru allar fyrirsjáanlegar. Köngul
pálmar í Ventnor grasa garðinum
á Isle of Wight eru að blómstra í
fyrsta sinn.
Í Ventnor grasagarðinum á eyj-
unni Isle of Wight í Ermarsundi út
af suðurströnd Englands eru nokkrir
fornsögulegir köngulpálmar sem hafa
lifað í garðinum vegna veðursældar
á eyjunni og umhyggju garðyrkju-
manna. Í fyrsta sinn í skráðri sögu
eyjanna og Bretlandseyja sýna kögur-
pálmar af báðum kynjum merki um
að þeir séu að blómstra utandyra.
Upp á sitt besta fyrir 280
milljónum ára
Plönturnar, sem kallast Cycas
revoluta á latínu, voru upp á sitt
besta fyrir um 280 milljónum ára og
talið að þeir hafi síðast blómstrað
á Ilse of Wight fyrir um 60 milljón
árum. Grasafræðingar við garðinn
segja blómgun pálmanna vera greini-
leg merki um aukna hlýnun og segja
þá skoðun sína vera studda veður-
farsmælingum.
Algeng stofuplanta
C. revoluta er upprunnin í Japan og er
algeng stofuplanta á Bretlandseyjum
og einnig hér á landi og kallast
sagopálmi. /VH
Þrátt fyrir að sagopálmar séu harðgerðir hafa þeir ekki blómstrað utandyra
á Bretlandseyjum í ein 60 milljón ár að sögn þeirra sem vita til. Breyting er
hugsanlega að verða þar á.