Bændablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 39
Ráðgjafarnefnd Orkusjóðs hefur ákveðið að styrkveitingar Orkusjóðs á árinu 2020
verði til verkefna samkvæmt b) lið 7. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð en
þar segir:
„Styrkir til verkefna sem leiði til lægri kostnaðar við óniðurgreidda
rafkyndingu húsnæðis og mannvirkja í eigu sveitarfélaga“.
Til greina kemur meðal annars: Uppsetning varmadæla, uppsetning eða
endurbætur hitastýringar- kerfa og önnur verkefni sem leiða til minni
raforkunotkunar við hitun.
Um er að ræða fjárfestingarstyrki, sem hæst geta numið 50% af áætluðum kostnaði
við einstök verkefni, þó að hámarki 5 m.kr.
Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til:
• Að verk- og kostnaðaráætlun sé vönduð og ítarleg.
• Að raunsætt mat sé lagt á áætlaðan raforkusparnað.
• Hlutfalls orkusparnaðar miðað við kostnað.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2020
Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar
en 6. júní 2020
Umsóknum skal skila rafrænt af vef Orkustofnunar www.os.is undir Orkusjóður
Nánari upplýsingar á www.os.is og hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg,
603 Akureyri. Símar 569 6083 – 894 4280 – Netfang jbj@os.is
ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir sérstaka styrki 2020
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
GRÆNT ALLA LEIÐ
LÍF&STARF
UTAN ÚR HEIMI
Talsverðar umbætur hafa verið gerðar á inngangi frægeymslunnar eftir að
upp kom vatnsleki í inngangi hennar eftir óvenju miklar leysingar á Svalbarða
árið 2017. Mynd / www.croptrust.org
Frægeymslan á Svalbarða:
Milljón afbrigði geymd í frosti
Fyrir stuttu náðist sá merki
áfangi að milljónasta afbrigðið
af nytjaplöntu var komið fyrir í
frægeymslu NorGen á Svalbarða.
Háar upphæðir hafa farið til
viðhalds frægeymslunnar undan
farna mánuði.
Hlýnun lofthita á jörðinni, ú t
þensla ræktarlands og borga, aukin
einsleitni í ræktun og fleiri þættir
gera það að verkum að sífellt fleiri
ræktunarafbrigði nytjaplantna eru í
ræktun. Með einsleitari ræktun eru
erfðaefni nytjaplantna sem gætu átt
eftir að koma að góðu að tapast.
Tilgangur frægeymslunnar á Sval
barða er að geyma slík afbrigði í
frosti til seinni tíma rannsókna og
ræktunar.
Komið í veg fyrir leka
Talsverðar umbætur hafa verið
gerðar á frægeymslunni eftir að upp
kom vatnsleki í inngangi hennar
eftir óvenju miklar leysingar á
Svalbarða árið 2017. Viðgerðirnar,
sem Norðmenn greiddu fyrir,
kost uðu hátt í 20 milljón evrur,
eða tæpan 3,8 milljarða íslenskra
króna. Upphaflegur kostnaður við
frægeymsluna árið 2008 var 9 millj
arðar evra, eða um 1,3 milljarðar
íslenskra króna.
Nytjaplöntur og ættingjar þeirra
Sýni í frægeymslunni koma alls
staðar að úr heiminum og hefur
geymsla vaxið úr því að vera
geymsla fyrir norrænar nytjajurtir
í að vera alþjóðleg frægeymsla. Í
dag er þar meðal annars að finna
sýnishorn af nytjaplöntum frá
stríðshrjáðum svæðum í Sýrlandi,
frá indíánum í NorðurAmeríku,
Perú og NýjaSjálandi
Auk þess að geyma fræ af þekkt
um nytjaplöntum er í geymsl unni að
finna fjölda fræja af nánum ættingj
um nytjaplantna sem gætu reynst
þolnir gegn ýmsum plöntusjúkdóm
um og öðrum óværum sem leggjast
á plöntur. /VH
Bænda
19. mars
OG VAGNARNIR FRÁ
8 Tonna tjakkur
KERRURNAR FRÁ ERU SENNILEGA ÞAÐ ÖFLUGASTA
VALLARBRAUT EHF WWW.VALLARBRAUT.IS Trönuhrauni 5 Hafnarfirði S-8411200 & 8417300
3500kg
3500kg
2-30 TONN
Pallstærð allt að 2,3 X 5,5m
Allt að 6
0 ær á tv
eimur hæ
ðum
GRIPAKERRUR
STURTUKERRUR
FLUTNINGAKERRUR
VÉLA
KER
RUR