Bændablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 41
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið aug-
lýsir eftir umsóknum um fjárfestinga stuðning í
svínarækt. Um umsóknir og úthlutun stuðnings-
ins gilda ákvæði VII. kafla reglugerðar um
almennan stuðning við landbúnað nr. 1260/2018.
Umsóknum um fjárfestinga stuðning vegna
framkvæmda á árunum 2019-2020 skal skilað inn
rafrænt á afurd.is eigi síðar en 31. mars.
Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.
Markmið stuðningsins er að auðvelda sérstak-
lega smærri svínabúum að hraða því að standast
kröfur samkvæmt gildandi reglugerð um velferð
svína.
Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að
finna í 33. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:
a. Nýbygginga eða viðbygginga
b. Endurbóta á eldri byggingum, þar sem skipt
er út meira en 50% af innréttingum.
c. Kaupa á innréttingum og búnaði.
Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda
getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef
heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Fjárfestingastuðningur
í svínarækt
hjá Skógræktinni í samráði við
skógarbændur, sem einnig hafa
aðgang að sérfræðingum þeirrar
stofnunar. Það þarf að kenna betur
umhirðu skóga, þar sem verið er
að rækta skóg og framleiða timbur
sem standast þarf alþjóðastaðla,
gæðavöru. Það þarf fjölbreyttari
tegundir í skógana okkar, það
þarf að rannsaka enn frekar
hvaða tegundir og hvaða klónar
henta best okkar aðstæðum og
veðurfari. Það þarf að huga
vel að fræðslu og námskeiðum
fyrir alla þá sem koma að öllum
stigum, frá framleiðslu plantna til
skógarhöggs.
Við skipulag skóga þarf að huga
að brunavörnum og með hvaða
hætti má verjast þeim vágesti.
Brunavarnir eru mikilvægar og
það dugar ekki að ætla að huga
að þeim síðar. Unninn hefur verið
netbæklingur, grodureldar.is, þar
sem eru góðar leiðbeiningar og
góð ráð. Sveitarfélögin sjá um
slökkvistarf, hvert á sínu svæði,
og þau ættu öll að sýna þann
metnað og ábyrgð að byggja upp
sterkar varnir, kortleggja, merkja,
leiðbeina og kenna fyrirbyggjandi
aðgerðir og rétt viðbrögð ef þarf.
Það er erfitt að verðmeta skóg,
því hefur ekki verið hægt að
tryggja skóg. Þetta þarf að skoða,
það er mikið í húfi ef illa fer,
jafnvel ævistarf heillar fjölskyldu,
jafnvel nokkurra ættliða. Leita
mætti í smiðju nágrannaþjóða
okkar, hvað reynslan hefur kennt
þeim í þessum efnum.
Landbúnaðarháskólinn á
Hvann eyri kennir skógfræði.
Hún er umhugsunarverð þessi
háskólaárátta okkar, af hverju
þarf skógfræði að vera á
háskólastigi? Ef skógfræði væri
á sama róli og iðnnám ættu
fleiri að hafa áhuga og námið
að vera eftirsóknarverðara. Það
mætti jafnvel krydda námið enn
frekar með námsdvöl erlendis,
þannig að nemendur fengju að
kynnast samsvarandi námi hjá
nágrannaþjóðum okkar, bæði
bóklegu og verklegu. Mætti ekki
skoða það að nám skógfræðinga og
garðyrkjufræðinga væri í samfloti
og sá skóli yrði á Reykjum? Það
hljómar afkáralega að framtíð
Garðyrkjuskólans skuli ótrygg.
Nú er tíðarandinn sá, að það á
að rækta meiri skóg og meira
grænmeti og blóm á Íslandi. Það
þarf menntað fólk í þessar greinar.
Aðstaðan á Reykjum hefur ekki
fengið viðunandi viðhald, en nú
ætti það fólk sem ræður ferðinni
að láta taka þar til hendi og byggja
upp faglegt nám í takt við þarfir
samtímans, bæði í skógrækt og
garðyrkju.
Ef ráðamenn tækju skógrækt
alvarlega og hún fengi þann
stuðning og þann sess sem hún
þarf sem atvinnugrein, ætti hún
að heyra undir atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið. Í dag
heyrir hún undir umhverfis- og
auðlindaráðuneyti, en á mikið
samneyti við landbúnaðararm
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytis. Þessi flækjufótur er
óþarfur, skógræktin er iðnaður og
þar verður til nýsköpun.
María E. Ingvadóttir,
skógarbóndi og formaður
Félags skógareigenda
á Suðurlandi
María E. Ingvadóttir.
LÍF&STARF
Bæjarstjórn Akureyrar telur að stofnun Háskólans á Akureyri hafi verið ein
besta byggðaaðgerð sem farið hefur verið í og mikilvægt sé að hlúð sé vel
að stofnuninni, m.a. að hún sé fjármögnuð á þann veg að hún nái að sinna
hlutverki sínu.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar:
Tillit verði tekið til byggðasjónarmiða
þegar háskólaumhverfið er skoðað
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar
leggur áherslu á að tekið verði
tillit til byggðasjónarmiða þegar
háskólaumhverfi Íslands er til
skoðunar. Mikilvægt sé að hlúa
vel að Háskólanum á Akureyri
þannig að hann geti sinnt hlut-
verki sínu.
Bæjarstjórn ræddi á dögunum
um Grænbók um fjárveitingar til
háskóla sem hefur verið til umsagn-
ar í samráðsgátt stjórnvalda. Í græn-
bókinni er gerð grein fyrir núverandi
fjárveitingakerfi, möguleikum við
hönnun á nýju kerfi og settar fram
lykilspurningar til að efla umræðu
um stefnu um háskóla og hvaða fyr-
irkomulag fjárveitinga styðji best
við innleiðingu á slíkri stefnu.
Í umsögn um grænbókina sem
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
sendi fyrir hönd Akureyrarbæjar er
meðal annars fjallað um mikilvægi
þess að stjórnvöld tryggi að minni
háskólar haldi sérstöðu sinni og
frekar verði horft til aðgerða sem
efla starfsemina heldur en að veikja
rekstrargrundvöll þeirra.
Nemendum í háskólakerfinu í
heild hefur fækkað frá árinu 2013, en
á sama tíma hefur fjölgað verulega
í Háskólanum á Akureyri. „Þessi
aukning hefði orðið mun meiri ef
ekki hefði verið gripið til þeirra
aðgerða [hertar aðgangstakmarkan-
ir] sem HA hefur notað síðastliðin
þrjú ár og munu verða enn harðari
fyrir haustið 2020, þar sem fjár-
veitingar til skólans hafa ekki verið
í samræmi við þá miklu fjölgun nem-
enda sem sækja þar um nám,“ segir
í umsögninni. Þótt aukin samkeppni
um námspláss geti verið jákvæð, þá
gangi þessi þróun algerlega gegn
upprunalegum hugmyndum um
stofnun Háskólans á Akureyri „þar
sem markmiðið var að auka aðgengi
að háskólanámi, sérstaklega fyrir
fólk utan höfuðborgarsvæðisins,“
segir í umsögninni. /MÞÞ
Vilja byggja minni íbúðir
á Hofsósi og í Varmahlíð
Hoffell ehf. hefur óskað eftir
viðræðum við Sveitarfélagið
Skagafjörð um uppbyggingu
nokk urra íbúða á Hofsósi og
Varmahlíð.
Íbúðirnar gætu hentað þeim
sem vildu flytja úr stærri fasteign-
um í minni, segir í erindi Hoffells
til sveitarstjórnar. Byggðaráð
Sveitarfélagsins Skagafjarðar fól
sveitarstjóra að ræða við forráða-
mann Hoffells um málið. /MÞÞ
Varmahlíð í Skagafirði. Mynd / HKr.