Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 4
4 I ÖBÍáfram
Við eigum erindi
í júlí sl. gerði Capacent Gallup könnun á afstöðu
almennings til ÖBÍ. Niðurstaðan var einkar ánægju-
leg. Hart nær 90% svarenda sögðust jákvæð í
garð bandalagsins en aðeins 3% neikvæð. Þá
sýnir könnunin að þrír fjórðu landsmanna telja ÖBÍ
sinna vel réttindamálum öryrkja og að álíka margir
bera traust til bandalagsins. Þetta er klárlega byr í
seglin og viðurkenning á því margvíslega starfi sem
unnið er á vettvangi ÖBÍ.
Það að heildarsamtök fatlaðra á íslandi njóti svo
mikils velvilja og trausts í þjóðfélaginu skapar sókn-
arfæri en leggur jafnframt á herðar okkar auknar
skyldur og ábyrgð. Við verðum að vera traustsins
verð. Erindi okkar við íslenskt samfélag í dag er
að vinna markvisst að lausnum út úr þeim ógöng-
um sem almanntryggingakerfið hefur ratað í og að
benda á úrbótatækifæri í velferðarkerfinu.
Á síðustu misserum hefur í auknum mæli ver-
ið óskað þáttöku ÖBÍ í stefnumótandi nefndum
stjórnvalda. Það er til marks um breytta tíma í
samskiptum bandalagsins og stjórnvalda. Brýnt er
að við höldum uppi málefnalegri gagnrýni á stjórn-
völd en við fögnum því að okkur skuli færð aukin
ábyrgð á framþróun í velferðarmálum. ÖBÍ mun
sýna að það er traustsins vert.
Fyrir ári síðan sagði ég að breytingar lægju í
loftinu. Nú er undirbúningur breytinganna í fullum
gangi. Á vegum forsætisráðuneytisins og félags-
málaráðuneytisins, með þátttöku annarra ráðu-
neyta og hagsmunaaðila, er unnið að uppstokk-
un á fyrirkomulagi almannatrygginga hvað varðar
öryrkja. Með hugmyndum að breyttu örorkumati
munu núverandi tekjutengingar heyra sögunni til
og nýtt tækifæri mun opnast á góðum framfærslu-
grunni fyrir þá sem ekki hafa möguleika á þátttöku
á vinnumarkaði. Fyrir hina er stefnt að stórauk-
inni starfsendurhæfingu og einstaklingsmiðuðum
stuðningi til atvinnuþátttöku.
í félagsmálaráðuneyti er unnið að tilfærslu nær-
þjónustuverkefna frá ríki til sveitarfélaga og ákveðið
hefur verið að flytja lífeyrishluta almannatrygginga
til félagsmálaráðuneytisins sem ætlað er að bæta
þjónustu við lífeyrisþega. Ef fram fer sem horfir
munu byltingarkenndar tillögur í bessum efnum líta
dagsins Ijós á næstu mánuðum en ÖBÍ verður að
halda vöku sinni á þessari vegferð. Markmiðið er
að færa fötluðum og sjúkum aukin réttindi og ný
tækifæri í samfélaginu. Það mikilvægasta sem við
eigum í lífinu er hlutverk og tilgangur. Verkefnið er
að finna hvort tveggja og að auka lífsgæði fólks.
Með ykkar stuðningi ætlum við að ná árangri.
Sigursteinn Másson
formaður ÖBÍ
Meginþorri landsmanna jákvæður gagnvart ÖBÍ skv. Gallup:
Tæp 70% teysta Öryrkjabandalaginu
ÖBÍ geta verið sáttir við sitt, því fá féiaga- og hagsmunasamtök njóta viðlíka trausts þessa annars sundurleita
hóps sem íslenska þjóðin er.
Nær 90% landsmanna eru jákvæð í garð Ör-
yrkjabandalags íslands, traust gagnvart banda-
laginu er almennt og flestir telja það sinna rétt-
indamálum félagsmanna sinna vel. Þetta er
meðal niðurstaðna í könnun sem Capacent
Gallup gerði í júní sl., þar sem spurt var um við-
horf almennings til ÖBÍ, sem virðist samkvæmt
þessu hafa sterka og jákvæða ímynd.
Við gerð könnunarinnar hringdi Capacent Gal-
lup í 1.350 manns á öllu landinu á aldrinum 16-
75 ára. Tekið var tilviljanaúrtak úr þjóðská og fólk
spurt hvort það væri jákvætt eða neikvætt gagn-
vart Öryrkjabandalagi íslands. Alls 88,9% svar-
enda sögðust mjög eða frekar jákvæð gagnvart
bandalaginu, 8,1% hvorki né en 3% voru frekar
eða mjög neikvæð. Þegar spurt var hversu mikið
eða lítið traust fólk beri til Öryrkjabandalags íslands
sögðust 69,3% bera mikið eða frekar mikið traust
til bandalagsins - en aðeins 4,8% frekar eða mjög
lítið traust.
Mætti vera sýnilegra
Þá var spurt hvort fólk teldi Öryrkjabandalag ís-
lands sinna réttindamálum öryrkja vel eða illa og
töldu 18,7% ÖBÍ sinna réttindamálunum mjög vel,
56,6% frekar vel, 15,3% hvorki né, 7,5% frekar illa
og 2% mjög illa. Þegar spurt var hvort fólki þætti
Öryrkjabandalag íslands mikið eða lítið sýnilegt í
umræðum um réttindamál öryrkja sögðu 16% það
vera mjög sýnilegt, 41% frekar sýnilegt, 13,3%
hvorki né, fjórðung frekar lítið sýnilegt og 4,8%
mjög lítið sýnilegt.
Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabanda-
lags íslands, segir það vekja athygli þegar þessar
tölur eru skoðaðar hve margir eru jákvæðir gagn-
vart bandalaginu og starfi þess. Mikill meirihluti
aðspurðra treysti bandalaginu og telji það sinna
réttindabaráttunni sem það hefur með höndum
vel. Það að þriðjungur telji ÖBÍ mega vera betur
sýnilegt bendi hins vegar til að efla þurfi kraftinn í
kynningarmálunum - eins og nú sé unnið að.
Gefur byr í segl
Athyglisvert er, að mati Sigursteins Mássonar, að
bera niðurstöður könnunarinnar um viðhorf al-
mennings til Öryrkjabandalagsins saman við könn-
un Capacent Gallup frá í mars sl. þar sem traust
almennings til stofnana samfélagsins var kannað.
Þar kom fram að 85% treysta Háskóla íslands,
78% lögreglunni og heilbrigðiskerfinu treysta sjö af
hverjum tíu. Þjóðkirkjunni treysta 52%, 31% dóms-
kerfinu og aðeins 29% Alþingi. Segir Sigursteinn
að í þessu Ijósi geti ÖBÍ býsna vel við unað.
Ánægjulegt sé hve margir treysti Öryrkjabandalag-
inu, sem aftur gefi forystu þess byr í seglin við að
sinna þeim brýnu verkefnum sem framundan eru.
Tímarit Öryrkjabandalags íslands - Útgefandí: Öryrkjabandalag islands • www.obi.is - Ábyrgðarmaður: Sigursteinn Másson. - Ritstjóri: Sigurður Bogi Sævarsson.
Annað efni: Sigursteinn Másson og Kristján Þorvaldsson. - Forsíðumynd: Eva Þengilsdóttir. - Auglýsingar og umbrot: Athygli hf.
Prentun: Landsprent. - Upplag 103.000 eintök.
Gott til
endurvinnslu