Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 13

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 13
ÖBÍáfram I 13 Ferðalangur sem lætur ekkert stöðva sig Derrek Vaughan varð blindur eftir bílslys á íslandi en lætur drauma sína rætast Derrek með konu sinni Eiínu Bjarnadóttur við fararskjótann sem oft kemur að góðum notum. aðist í heimspeki. Ég kynntist blindrasamtökum í Skotlandi þar sem fólk vildi hjálpa mér en þau vildu að ég færi leið sem þau töldu besta fyrir mig en sem hentaði mér bara alls ekki. Ég sagðist ekki ætla að vefja einhverjar andskotans körfur! Það verður að tala við einstaklinginn sjálfan og spyrja en ekki bara segja hvað sé honum fyrir bestu. Aðalatriðið er að hlusta, gefa fólki hugmyndir en ekki að segja fólki fyrir verkum. Það þarf stund- um að útskýra vandamálin fyrir blindum en munið að blindir hafa hugsun! Fljótlega eftir slysið fór Derrek í köfunarleiðangur til Indlands. „Ég fór einn og ég hafði gaman af því að fara í ferðina. Þegar ég kafa finn ég fyrir þyngd- arleysinu. Það er gaman. Ég hef farið til Nepal, Afríku nokkrum sinnum og margra annarra staða. Fór í fimm daga hestaferð í Flimmalaja fjöllin. Það var frábært.1' Þú hefur líka farið til Mexíkó. Hefur þú atdrei lent í vandræðum að ferðast svona einn? „Einu sinni var ég skilinn eftir í Afríku," svarar hann blátt áfram með hvellum hlátri. Ég hef mest gaman af því að kynnast fólki og menningu á ferðalögum mínum en ekki listalífi eins og áður. Á Indlandi læri ég um krikket með því að tala við fólk á götunni. Glæpamenn láta mig í friði þegar þeir átta sig á fötlun minni," segir Derrek aðspurður um hvort hann sé aldrei hræddur að ferðast einn. „Ég fer ekki á hvaða svæði sem er en ég þarf líka að sýna að ég sé ekki hræddur." Hvernig notarþú reynslu þína? „Ég er að skrifa um ferðirnar og safna þeim upp- „Ég hefmest gaman afþvíað kynnast fólki og menningu á ferðalögum mínum en ekki listalífi eins og áður. Á Indlandi læri ég um krikket með því að tala við fólk á götunni. “ lýsingum. Ég skrifaði eitt sinn smásögu sem var gefin út í smásagnahefti og hef verið að vinna að skáldsögu um dreng sem ferðast frá 14 ára til 21 árs aldurs. Þetta verður mín fyrsta skáldsaga og ég er að leita að samstarfaðilum varðandi útgáfuna." Hvað er árangur íþínum huga? „Ég veit að fólk dáist að því sem ég geri en ég sækist ekki eftir aðdáun. Ég vil frekar vera góð fyr- irmynd og hjálpa öðrum blindum að takast á við líf- ið og tilveruna. Það hjálpar mér ef ég get hjálpað öðrum." Hvaða ráð gefurþú öðrum sem verða blindir? „Að vera sterkir og að hugsa um að þetta er ekki endir lífsins. Maður verður að sætta sig við orðinn hlut. Það verður að lifa lífinu og grípa tækifærin. Þegar upp er staðið er þetta þitt líf. Það skiptir öllu máli að vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Ef þú hefur fötlun þá er það nú bara þannig að enginn er fullkominn. Fyrst og fremst ertu persóna en ekki fatlaður. Þú ert einstaklingur og allir hafa einhver vandamál. Fatlaðir og aðrir. Það getur vel verið að vandamál hins ófatlaða sé miklu stærra en mitt. Ég er enn að gera það sem ég hef mest gaman af. Ferðast og hitta fólk en slysið þrýsti mér kannski í að fara í nám og breyta um stefnu í lífinu. Ég er heppinn að ég hef sæmilega greind en áður hafði ég engan áhuga á námi. Þegar maður verður blind- ur þarf að sanna ýmislegt fyrir sjálfum sér.“ Hvernig stuðningur skiptir mestu máli? „Stuðningur frá fjölskyldu skiptir mestu máli. En einnig frá samfélaginu eins og ég naut frá há- skólanum í Dundee." Heldurðu að við náum einhverntíma takmarkinu um eitt samfélag fyrir alla? „Já, ég trúi því. Enginn er fullkominn en fötlun er ekkert sérstakt vandamál út af fyrir sig. Við erum bara öll fólk! r v r----------------------\ ATHYGLI ALMANNATENGSL V__________________________________)

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.