Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 6

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Blaðsíða 6
6 I ÖBÍáfram Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra: Löngum biðlistum þarf að eyða „Hingað til hefurað mínu mati skort fjölbreytileikann íþjónustu og jafnvel mannvirðinguna. “ Ljóst er að ýmsar tilfærslur verkefna verða á næstu misserum bæði milli ráðuneyta og frá ráðuneytum til sveitarfélaga. Sitt sýnist hverj- um en hvaða nærþjónustuverkefni fyrir fatlaða og sjúka, sem nú eru á hendi ríkisins, telur Jó- hanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra þeim betur fyrir komið hjá sveitarfélögunum. Hún segir bæði af ýmsu að taka og ýmsum spurn- ingum ósvarað til þess að fá heildstæða mynd. „Einstök sveitarfélög og svæði, svo sem í Eyja- firði og á Norðurlandi vestra, hafa veitt mjög góða þjónustu á grundvelli þjónustusamninga í nokkur ár. Þar vísa ég einkum til þjónustu við fatlaða en jafnframt þjónustu við aldraða sem Akureyringar og Eyfirðingar hafa verið að þróa á mjög áhugaverðan hátt. Ég hef til dæmis haft tækifæri til þess að kynna mér uppbygg- inguna á Eyjafjarðarsvæðinu sem ég tel vera til fyrirmyndar að ýmsu leyti. Meðal annars hafa menn aukið fjölbreytni í þjónustunni út frá ólík- um þörfum einstaklinga og það hugnast mér mjög vel. Verið er að fjalla um hugsanlegan verkefnaflutning á sviði málefna fatlaðra og aldraðra á vettvangi félagsmálaráðuneytisins og þar er verið að fara yfir ýmsa möguleika og meta kosti og galla. Meðal annars kynna menn sér það sem best hefur verið gert erlendis," segir Jóhanna og heldur áfram: „Auðvitað eru hér stórar spurningar svo sem um heilsugæsluna og minni sjúkrahús sem áður hef- ur verið rætt um hvort fiytja megi til sveitarfélaga. Ég vil að við skoðum þetta heildstætt með það að markmiði að þæta þjónustuna og laga hana að þörfum einstaklinganna og fjölskyldna þeirra og þreytinga sem eru að verða á högum þjóðarinnar og aidurssamsetningu hennar. Við vitum að fólk er hresst mun lengur nú en var hér í upphafi síðustu aldar og við vitum að sem betur fer vilja margir búa heima sem lengst. Þessu fólki eigum við að þjóna en sýna hinum virðingu með því að bjóða ásættan- leg úrræði og þjónustu í sem fjölbreyttustu formi. Hér er svo sannarlega verk að vinna og það vil ég takast á við með samráðherrum mínum.“ Gæðin númer eitt Hver er að þínu mati reynslan af hinum svoköll- uðum reynslusveitarfélögum sem fengu málefni fatlaðra til sín 1996? „Reynslan er að mínu mati í megindráttum mjög góð. Það hefur sýnt sig að sveitarfélögum hefur tekist að vinna saman að upþbyggingu á þjón- ustunni og dæmi eru um að þessi sveitarfélög og svæði hafi haft frumkvæði við uppbyggingu og þróun þjónustunnar. Mér sýnist að oft myndist jákvæður hvati þegar menn horfa heildstætt í nær- þjónustuna á tilteknu svæði en auðvitað er þetta ekki algilt. Meginatriðið í mínum huga er að koma í veg fyrir víxlverkun á milli kerfa ríkis og sveitarfé- laga og að kostnaðarþátttakan leiði ekki til þess að menn vísi þjónustunni á milli sín. Það finnst mér mjög slæmt og ég tel jafnframt að við eigum að hverfa frá þjónustusamningunum þar sem þeir taka mikinn tíma og orku frá starfsmönnum ríkisins annars vegar og sveitarfélaga hins vegar og gallinn við þá er að sá sem greiðir fyrir þjónustuna er ekki sá sami og sá sem veitir hana. Það er ekki vænlegt til frambúðar." Borgarstjóri talar um að málefni fatlaðra færist til borgarinnar á næstu árum og vill sjá það gerast. Er það raunhæft að þínum dómi? „Auðvitað er raunhæft að hið öfluga sveitarfélag, Reykjavíkurborg, sinni slíku verkefni. Ég vil hins vegar gera ríkar kröfur til gæða þjónustunnar við yfirflutning verkefna og að þjónustan verði áfram þróuð út frá mismunandi og einstaklingsbundnum þörfum. Margt hefur verið til fyrirmyndar í þróun þjónustu við fatlaða og talsmenn aldraðra hafa m.a. vísað til þeirra gilda sem þar er unnið út frá í sínum málflutningi. Ég vil líta á umfjöllun um yf- irflutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga sem tæki- færi til þess að skerpa á stefnu í framtíð þjónust- unnar og draga fram skýra mynd af sameiginlegri framtíðarsýn stjórnvalda og hagsmunasamtaka sem við vinnum saman að því að framkvæma." Ríkið verður að sjá um sitt Hvaða þjónusta fyrir fatlaða telur þú mikilvægt að sé áfram á verksviði ríkisins? Kátir krakkar! Félagsmálaráðherra vill beita sér fyrir uppbyggingu velferðarþjónustunnar á breiðum grundvelli enda sé það samfélaginu dýrmætt að hlúa að sérhverju barni og unglingi.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.