Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 7

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 7
Sorglegaraðstæður!„mér finnst sorglegtþegar fötluð börn og unglingarbúa við lakariaðbúnað en heil- brigðir jafnaldrar þeirra eins og hefurkomið upp varðandi lengda viðveru í grunnskólum," segir Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra. ,Minn draumur erað þjónustan verðisem jöfnust..." „Eðli málsins samkvæmt verður viss þjónusta starfrækt áfram á landsvísu og vil ég þar einkum nefna starfsemi Greiningar- og ráðgjafarstöðvar rík- isins. Hið sama má vissulega segja um mikilvæga endurhæfingu og hæfingu sem eðli málsins sam- kvæmt færi áfram fram á viðkomandi stofnunum sem hafa verið þróaðar og byggðar upp um ára- tuga skeið. Það er mjög ánægjulegt að menn séu nú að efla hina góðu og vönduðu starfsemi sem fram hefur farið hjá Greiningarstöðinni og ég er stolt af því að hafa komið því verkefni af stað. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að kerfið þarf allt að spila mjög vel saman og ég legg áherslu á það að þörn sem hafa hlotið greiningu fái áframhald- andi viðeigandi þjónustu um land allt í þeim kerf- um sem þar eru fyrir hendi. Þetta er afar mikilvægt samspil því það er svo dýrmætt fyrir samfélagið að hlúa að sérhverju barni og unglingi. Líðan þeirra og umönnun skiptir öllu varðandi framtíð þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Mér finnst oft að ÖBÍáfram I 7 menn geri sér ekki grein fyrir því að þetta eigi að vera forgangsverkefni stjórnmálanna, þetta séu hin raunverulegu verðmæti, en vonandi tekst mér og samverkafólki mínu að breyta þessari sýn og for- gangsröðinni í samfélaginu." Hvernig verður málaflokkurinn eða nærþjónust- an færð til lítilla eða veikburða sveitarfélaga? „Eins og ég sagði hér áðan þá eru dæmi um það að sveitarfélög hafa samvinnu um tiltekna nærþjónustu og þannig hlýtur það að verða eðli málsins samkvæmt. Hinu er ekki að neita að for- eldrar fatlaðra barna leita vissulega í búsetu á þeim svæðum þar sem þjónustan er best. Þannig er það og þannig mun það alltaf verða. Minn draum- ur er að þjónustan verði sem jöfnust en sennilega verður það alltaf svo að eitt er best í þessu sveitar- félagi og annað í öðru. Við komust sennilega aldrei hjá því enda þótt við séum sammála um að viss grunnþjónusta eigi að vera til staðar um land allt.“ Ný sýn fyrir geðfatlaða Margir íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa mátt búa við það að málelnum fatlaðra hefur verið kastað eins og heitri kartöflu á milli ríkis og sveitarfélaga án þess að neinn hafi viljað axla ábyrgð á þjón- ustunni. Þetta er sérstaklega áberandi í málefnum geðfatlaðra. Hvenær má búast við að ábyrgðin sé skýr og þetta heyri sögunni til? „Það er ágætt að þú nefnir málefni geðfatlaðra sem eru mér mjög hugleikin. Þar er svo sann- arlega breytinga þörf og ég hef farið mjög vel yfir þau mál með mínu fólki eftir að ég tók við embætti félagsmálaráðherra. Við þurfum að byggja á nýrri sýn þegar þessi hópur er annars vegar og hingað til hefur að mínu mati skort fjölbreytileikann í þjón- ustu og jafnvel mannvirðinguna. Ég mun leggja á það ríka áherslu að menn þyggi upp mun fjöl- breyttari þjónustu en sjúkrahús og heilbrigðisstofn- anir geta nokkurn tíman boðið uppá. Ég trúi því að þessi málaflokkur verði að vinnast í góðri sam- vinnu ríkis og sveitarfélaga um land allt og sé ekki á þessu stigi fyrir mér að sú uppbygging geti alfar- ið farið fram á vegum annars aðilans. Við verðum hins vegar að vera fólk til þess að vinna saman og ég tek undir það, að það gengur ekki þegar menn kasta verkefnum á milli sín þannig að það bitni á þeim sem við eigum að vera að þjóna." Þegar á heildina er litið í þessum málaflokki, hvar kreppir skórinn helst að? „Auðvitað verðum við að setja aukinn kraft í uppbyggingu í þágu fatlaðra og þróun þjónust- unnar almennt, þæði við fatlaða og geðfatlaða. Langir þiðlistar eiga að heyra sögunni til í okkar velferðarsamfélagi þar sem velmegun blasir við sem aldrei fyrr. Ég verð þó að segja það að mér finnst sorglegt þegar fötluð börn og unglingar búa við lakari aðbúnað en heilbrigðir jafnaldrar þeirra eins og hefur komið upp varðandi lengda viðveru í grunnskólum. Ég vil sjá hraðari uppbyggingu bú- setu og þjónustu og ég vil sjá aukna uppbyggingu starfsendurhæfingar. Það er lykilatriði að fatlaðir einstaklingar á öllum aldri fái að taka þátt í samfé- laginu okkar frá degi til dags og morgni til kvölds og blómstra og gefa af sér til okkar hinna. Að því vil ég vinna.“

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.