Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 20

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Side 20
20 ÖBÍáfram Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri: Kominn tími til að hugsa þessi mál upp á nýtt! Frá árinu 1996 hefur Akureyri ásamt með Húsa- vík, Höfn í Hornafirði og Vestmannaeyjabæ verið svokallað tilraunasveitarfélag í málefnum fatlaðra. Á þessum rúmu tíu árum hefur orðið til mikilvæg reynsla og þekking á yfirtöku nær- þjónustuverkefna og hefur margt tekist vel. Mikill metnaður er hjá bænum að skapa fólki með fötlun tækifæri til sjálfstæðs lífs og er lögð mikil áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu. Sigrún Björk Jakobsdóttir tók nýverið við starfi bæjarstjóra og segir hún það hafa breytt mjög miklu fyrir íbúa Akureyrar að málefni fatlaðra færðust á forræði sveitarfélagsins. „Félagsmálasviðinu var öllu breytt við tilflutning- inn og starfsfólkið sýndi breytingunni mikinn áhuga. Þetta hefur kallað á alveg nýja hugsun. Málaflokk- urinn er allur kominn undir einn hatt, ábyrgðin er skýr og fólk þarf ekki að sendast á milli aðila. Hér á Akureyri hefur heilsugæslan einnig verið færð undir stjórn sveitarfélagsins og þannig er nærþjónustan öll þar sem hún á að vera.“ Hvernig hafa íbúarnir orðið varir við breyt- inguna? „Aðallega þannig að þeir hafa getað leitað á einn stað eftir þjónustunni. Einnig hefur mikil áhersla verið lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu.“Sigrún segir að stærð sveitarfélagsins henti mjög vel í þessu sambandi. Nálægðin sé meiri og kerfin vinni betur saman en stundum í stærri sveitarfélögum. Þá hafi tekist vel að samþætta þjónustu fjórðungs- sjúkrahússins við starfsemi félagsþjónustunnar. Þegar bæjarstjórinn er spurður hvort hún telji fært að heimfæra Akureyrarmódelið yfir á höf- uðborgina segist hún hafa fulla trú á því. „Með sterkri hverfaskiptingu og góðu skipulagi er það hægt. Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar gera það vei mögulegt að stíga slík skref." En hvar stendur Akureyri sig ekki nógu vel í þjónustu við fatlaða? Sigrún hugsar sig um og eitt augnablik virðist henni ekki detta neitt sérstakt í hug en lítur svo upp og svarar: „Hér skortir helst þjónustu við blinda og þá tilfinnanlega mest við blind börn. Það er hins vegar landlægur vandi eins og komið hefur fram en þarna þurfum við að gera betur. „Hún segir að mótuð hafi verið búsetustefna í málefnum fatlaðra en ekki í málefnum aldraðra sem búa við fötlun. Unnið sé að því á Akureyri að framfylgja stefnu um sjálfstætt líf fatlaðra og þannig sé t.d. heimaþjónusta og ráðgjöf orðin per- sónulegri. Hvað með afstofnanavæðingu? „Ég sé fyrir mér að við byggjum litla kjarna fyr- ir eldri borgara sem þurfa þjónustu í stað stórra stofnana. Öldruðum hættir til að einangrast heima ef þeir njóta aðeins heimaþjónustu. Við þurfum breytta hugsun um íbúðastefnu." Hvað með æviíbúðir? íbúðir sem frá grunni eru byggðar með aðgengi fyrir alla að leiðarljósi þannig að aðgengismál neyði fólk ekki til búferlaflutninga? Sigrúnu líst vel á hugmyndina. „Við erum að hugsa um hverfisuppbyggingu í þessum anda sem og að slíkar íbúðir verði reistar í blönduðum hverfum. Sérstaklega er nú unnið að því að skipuleggja slíkt búsetusvæði fyrir aldraða.“ Verið er að brydda upp á ýmsum nýjungum í sveitarfélaginu s.s heilsuefiandi heimsóknir til aldr- aðra og sömuleiðis er komið á tengslum í því skyni að yfirfara búnað og öryggismál á heimilum en þar til viðbótar býðst fólki nú að hafa sinn tengil í kerf- inu. Ráðgjöfin heim - heitir verkefnið en þá kem- ur ráðgjafinn heim til fólks og styður það í því að sinna sínum erindum og takast á við dagleg verk- efni án þess nokkurn tíma að taka af þeim völdin. „Við miðum þjónustuna algjörlega út frá einstakl- ingunum og þeirra þörfurn." Sigrún Björk situr í nefnd félagsmálaráðherra um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem m.a. er til umræðu tilflutningur á nærþjónustuverk- efnum í málefnum aldraðra og fatlaðra. Hún segist vonast eftir því að það takist að flytja málefni fatl- aðra og aldraðra frá ríki til sveitarfélaga. „Ég treysti sveitarfélögunum fullkomlega til að taka við þessu. Það er samdóma álit sveitarfélaganna að þetta sé vel hægt og að það muni takast enda kominn tími til að við hugsum þetta upp á nýtt!” Bæjarstjórinn. „Hér skortir helst þjónustu við blinda og þá tilfinnanlega mest við blind böm. Það er hins vegar landlægur vandi eins og komið hefur fram en þarna þurfum við að gera betur. “

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.