Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 25

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 25
ÖBÍ áfram I 25 Reykjalundur. Á ári hverju sækja þangað um 1.100 manns í meðferð og 2.500 Endurhæfing nær til fjöimargra þátta, svo sem iðjuþjálfunar, eins og býðst á koma á göngudeild, það er í forskoðun, eftirfylgd eða til að sækja ráð hjá því Reykjalundi. fagfólki sem hjá stofnuninni starfar. Líkamsrækt hverskonar er veigamikill þáttur í þjálfun á Reykjalundi. „Engin forvörn er betri en öflug hreyf- ing í svo sem hálftíma á dag," segir lækningaforstjór- inn. á heilbrigðan lífsstíl; hreyfa sig, borða hollan mat og svo framvegis. Auðvitað beitum við líka klassísk- um læknisfræðilegum úrræðum eins og lyfjagjöf og slíku, en áhugahvötin og það að fólk sé sjálft virkt í sinni meðferð er þýðingarmikið. Við erum að hluta til ábyrg fyrir eigin heilsu." Virkur biðlisti í dag bíða um 1.100 manns eftir meðferð á Reykjalundi „Við stefnum að því að biðin sé að jafnaði ekki lengri en þrír mánuðir. Lögð er áhersla á að biðlistinn sé virkur; Einnig er lögð rík áhersla á við fólk að það viðhaldi þeim árangri sem náðst hefur í endurhæfingunni og fylgi þeim ráðlegging- um sem það fær við útskrift. Fólk getur ekki gert ráð fyrir að koma aftur á Reykjalund að ári. Eng- inn kemur í meðferð hingað nema með beiðni frá lækni og þær eru jafnan fleiri en við ráðum við,“ segir Hjördís en það fylgir starfi hennar sem lækn- ingaforstjóra að fara yfir allar beiðnir sem berast. Þannig er mat lagt á mál og hvort þær áherslur sem fylgt er í meðferðarstarfinu á Reykjalundi hæfi viðkomandi. „Ég fer yfir beiðnirnar og met á hvaða meðferð- arsviði beiðnin á heima. Gjarnan er fólk kallað í for- skoðun og líkamlegt og andlegt ástand þess met- ið. Stundum leiðir skoðunin í Ijós að önnur úrræði en hér bjóðast henti betur. Ef sjúklingurinn kemur til endurhæfingar á Reykjalund er sett upp með- ferðaráætlun fyrir hann. Það gerir meðferðarteymið en í því starfa meðal annars yfirlæknir, sjúkraþjálf- ari, sálfræðingur, félagsráðgjafi, íþróttafræðingur, iðjuþjálfi og hjúkrunarfræðingur." Ofurkröfur og öngstræti Streita, álag og miklar kröfur eru fylgifiskar nútíma- samfélags og mörgum er þessi pakki um megn. Þess sést stað í talsverðum mæli í heilbrigðiskerf- inu og margir leita ásjár þess eftir að ofurkröfur nú- tímans hafa til dæmis leitt til veikinda og þess að fólk þrýtur öreindið. Má í þessu sambandi nefna fólk sem kemur á Reykjalund vegna hjartasjúk- dóma og margskonar verkja. „Margir sem hingað koma glíma við andlega erfiðleika tengda sínum líkamlega sjúkdómi, enda verður þetta tvennt ekki sundur skilið. Stór hluti okkar skjólstæðinga er fólk sem á við að stríða margþættan vanda," segir Hjördís Jónsdóttir. Hún bendir á að á verkjasviði Reykjalundar, þar sem rúmlega 160 sjúklingar lögðust inn á síðasta ári, sé ungt fólk áberandi og það sé oft með verki dreifða um allan líkamann. Erfiðleikar í lífsbaráttunni geti þar oft verið meðvirkandi orsök. „Margt af því fólki sem hingað kemur í meðferð er illa statt fjárhagslega og slíku öngstræti geta fylgt vöðvaverkir og margvíslegir stoðkerfisverk- ir sem í framhaldinu geta leitt til andlegs og lík- amlegs niðurbrots. í framhaldinu lendir fólk gjarnan á örorkubótum og fer ekki aftur út í atvinnulífið Ör- orkubætur eru lágar og í flestum tilvikum ávísun á fátækt." Eiga stuðning vísan Hvarvetna á Vesturlöndum, svo sem meðal end- urhæfingarlækna, er horft til þeirra meginstefnu að réttur fatlaðra eigi að vera hinn sami og annara þegna þjóðfélagsins. Öll meðferð og endurhæfing tekur mið af þessu og þá er horft á sterku hliðar hvers og eins - fremur en veikleikana. „Endurhæf- ing inni á stofnun tekur aðeins skamman tíma og því þarf fólk að eiga stuðning vísan þegar það heldur út í samfélagið aftur. Með þetta í huga þarf fólk til dæmis að eiga betri aðgengi í heilsugæsl- unni að félagsráðgjöf, sálfræðiþjónustu og iðju- þjálfun. í dag hefur fólk nokkuð greiðan aðgang að sjúkraþjálfun sem er niðurgreidd af almannatrygg- ingum. Það gildir hins vegar ekki um þjónustu hinna stéttanna sem ég nefndi og raunar hamlar greiðslukerfi dagsins í dag að hægt sé að veita fólki þá heildstæðu meðferð sem þörf er á,“ segir Hjördís. Sem kunnugt er, er um þessar mundir unnið að endurskoðun á fyrirkomulagi almannatrygginga og nú er unnið að frekari útfærslu á þeim tillögum sem nefnd á vegum forsætisráðherra kynnti ekki alls fyrir löngu. Rauði þráðurinn í tillögum nefndarinn- ar er sá að við örorkumat og endurhæfingu skuli að öðru jöfnu horft til styrks fremur en vanmáttar hvers einstaklings. Er þar átt við að einstaklingur verður í framtíðinni væntanlega sagður hafa hálfa starfsgetu í stað þess að vera flokkaður 50% ör- yrki. í núgildandi örorkumati almannatrygginga gef- ur 75% örorka tiltekin réttindi, sem eru hins vegar mun minni sé fólk metið með lægra örorkustig. „Ef fólk er ekki á vinnumarkaði um lengi tíma vegna veikinda getur orðið erfitt að komast þang- að aftur,“ segir Hjördís. „Hvað varðar starfsendur- hæfingu skiptir miklu að grípa fljótt inn í málin, helst innan þriggja mánaða. Fá til dæmis félags- ráðgjafa til að fara yfir mál skjólstæðings, hvetja fólk til að reyna sig í nýjum störfum og svo fram- vegis. Auðveldara hefur reynst að koma fólki með skerta starfshæfni í vinnu á þenslutímum en á tím- um atvinnuleysis." Engin forvörn betri í dag er gjarnan sagt að fólk verði og eigi að axla ábyrgð á eigin heilsu. Hjördís segir að þetta sé ekki endilega til marks um aukna einstaklingshyggju í samfélaginu; að við eigum ekki að gæta bróður okkar. Fyrst og síðast séu þessi orð almenn hvatn- ing til okkar allra um að lifa heilsusamlegu lífi; borða hollan mat og gæta hófs, reykja ekki, stunda hreyf- ingu og svo framvegis. „Fyrr á tíð tíðkaðist að fólk lagðist á bekkinn hjá lækninum til að fá allra sinna meina bót. í dag eru vilji og viðhorf samfélagsins þau að við verð- um sjálf að gera eitthvað í okkar málum því stór hluti sjúkdóma, til dæmis af völdum offitu, tengjast óhollu matarræði. Hvað til dæmis hjartasjúkdóma áhrærir er engin forvörn betri en öflug hreyfing í svo sem hálftíma á dag. Það skiptir því öllu að fólk beri ábyrgð á eigin heilsu - enda þótt almennt ríki sátt um að fólk fái góðan og greiðan aðgang að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu ef eitthvað bregð- ur út af.“

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.