Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Page 27
ÖBÍ áfram I 27
fötluð eða ekki og eðlilegast að hún sé sem mest
veitt í nærsamfélaginu."
Soffía: „Múrarnir voru brotnir mjög fljótlega milli
kerfa hér á Akureyri en þá komu spurningar upp
um þagnarskyldu. Það sem gerðist var að einstakl-
ingurinn tók við stjórninni á eigin lífi og það er ein-
staklingurinn sem einn gefur leyfið um hver fjalli um
hans mál. Með þessu er vandinn um þagnarskyld-
una leystur og allir geta unnið saman.
í Leonardo verkefninu erum við að smíða svæði
og gagnagrunn þar sem einstaklingurinn gefur að-
ilum leyfi til að lesa um sín mál og mun hafa fulla
stjórn á sínu svæði, t.d. hvaða sérfræðingum hann
hleyþir þar inn.“
Aðhald fyrir fagfólk
Geirlaug: „Þetta er aðhald fyrir fagfólk. Hvað er
skrifað og hvernig aðgangur er ákvarðaður af ein-
staklingnum."
- Hver er árangurirtn af endurhæfingunni?
Geirlaug: „Ég hefði aldrei trúað því að hægt
væri að hjálpa fólki að stíga skrefin út á vinnumark-
aðinn með tiltölulega einföldum hætti. SN hefur
náð góðum árangri, 74% þeirra sem hafa komið í
endurhæfinguna eru komin í vinnu eða skóla. Ým-
ist í fulla vinnu eða hlutastarf."
Soffía: „Mörg þeirra sem hingað koma eru með
þrotna sjálfsmynd, hokin og óörugg. ( lok vetr-
ar standa þau upp í pontu og tala yfir fullan sal af
fólk. Það er allt sem segja þarf.“
Geirlaug: „Þetta er þara frábært."
Tómstundir
barna með sérþarfir
Haldin verður ráðstefna á vegum Æfingarstöðvar
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 26. október 2007.
Ráðstefnan ber yfirskriftina: Tómstundir barna með sérþarfir.
Ráðstefnan verður haidin í veislusal Rúgbrauðsgerðainnar Borgartúni 6 frá kl
9:00 til 16:00.
Ráðstefnan er ætiuð fagfólki og foreldrum barna með sérþarfir.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra www.slf.is
Við lögum bílinn að þínum þörfum
J&j. Eiríksson ehf • Sími 5642820