Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Qupperneq 34
34 I ÖBÍáfram
Heimildamyndin Annað líf Ástþórs sýnd í Sjónvarpinu í vetur:
Ótrúlegur
baráttuandi
„Ég held að Ástþór geti kennt okkur margt.
Hann á við gríðarlegan vanda að etja, sem
hann fæst við af fádæma æðruleysi. Lömunin
gæti verið svo góð afsökun fyrir því að láta
flest verkefnin eiga sig, en Ástþór hefur vilja til
að vinna í málunum þangað til lausnin er fund-
in. Að gefast upp er ekki til í hans orðabók,"
segir Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerð-
armaður.
Sjónvarpið mun í vetur sýna heimildarmynd-
ina Annað líf Ástþórs sem framleidd er af Þorsteini
Jónssyni. Þetta er hetjusaga ungs bónda, Ástþórs
Skúlasonar, sem missti allan mátt í líkamanum
neðan við mitti eftir umferðarslys en hefur tekist á
Heima á Rauðasandi. Ástþór er refaskytta og hætti
því ekki þótt kominn værí í hjólastól eftir alvarlegt bíl-
slys.
við gjörbreyttar aðstæður af elju og dugnaði sem
varla á sér hliðstæðu á íslandi.
Ástþór sem býr á bænum Melanesi á Rauða-
sandi í Vestur-Barðastrandarsýslu lamaðist í bílslysi
í febrúar 2003. Hann léf það samt ekki aftra sér frá
því að láta drauminn rætast um að verða bóndi.
í myndinni segir Þorsteinn sögu Ástþórs og fjöl-
skyldu hans, allt frá því að hann var í endurhæfingu
á Grensásdeildinni og þar til hann tók við búforráð-
um á Melanesi á Rauðasandi af foreldrum sínum
haustið 2006 og hóf búskap upp á eigin spýtur.
Myndin Annað líf var frumsýnd á Ratreksfirði og
á heimilda- og stuttmyndahátíðinni í Reykjavík um
hvítasunnuna sl. vor.
„... hvaö þá mann í hjólastól."
„Ég rakst á frétt í Morgunblaðinu skömmu eft-
ir slysið og hjó eftir því að þessi ungi maður, ætl-
aði sér að verða bóndi. Ég sá ekki alveg fyrir
mér hvernig það átti að vera hægt, í hjólastól. Ég
hringdi í hann þegar hann var á Grensásdeildinni í
endurhæfingu og spurði, hvort hann vildi hitta mig.
Hann var til í það og það tók viku að fá hann til að
samþykkja hugmyndina um að gera heimildamynd.
Ég vissi að það var erfitt að lifa af búskap á svona
afskekktum stað fyrir heilbrigðan mann, hvað þá
mann í hjólastól," segir Þorsteinn sem fór alls ellefu
ferðir á þremur árum vestur á Rauðasand vegna
gerðar myndarinnar.
„Ég held að Ástþór geti kennt okkur margt, “ segir Þorsteinn Jónsson, framleiðandi myndarinnar, sem er
lengst til vinstri á þessari mynd en með honum eru þau Ástþór Skúlason og Ragnheiður Davíðsdóttir, for-
varnafulltrúi VÍS.
r
75 ára
m.
spron
ÍSLENSK ERFÐAGREINING