Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Page 35
ÖBÍáfram I 35
Ástþór Skúlason ásamt Margrét Fanney Sigurðardóttur, sambýliskonu sinni.
„Ég varð að gefa Ástþóri rúman tíma til að hægt
væri að sjá hvort honum tækist þetta eða ekki.
Þegar tökur hófust bjó Ástþór ásamt foreldrum
sínum, Skúla Hjartarsyni og Ólöfu Matthíasdóttur, á
Rauðasandi átveimur jörðum, Melanesi og Stökk-
um. Kýrnar voru á Stökkum og ærnar á Melanesi.
Tíu kílómetrar eru á milli bæjanna. Ólöf Ása, syst-
ir Ástþórs, hjálpaði líka til við búskapinn. Ferð-
irnar urðu margar, einnig vegna þess að ég vildi
taka mikið efni á öllum árstíðum til þess að ná
púlsinum á búskapnum og hafa sem mest til að
moða úr í klippingu. Það tókst ágætt samstarf við
Ástþór og fjölskyldu hans og raunar góður vin-
skapur. Þegar tökum lauk hafði vinkona Ástþórs,
Margrét F Sigurðardóttir, flutt til hans ásamt börn-
um sínum tveimur, en þau Ástþór tóku við fjár-
búinu á Melanesi haustið 2006.“
Neitaði að játa sig sigraðan
Vátryggingafélag íslands var einn helsti styrktarað-
ilinn við gerðar myndarinnar „Saga Ástþórs er saga
manns sem neitaði að játa sig sigraðan þótt hjóla-
stóllinn yrði skyndilega aðal farartæki hans. Ástþór
er fyrsti og eini maðurinn á íslandi, og líklega víðar,
sem stundar hefðbundinn fjár- og kúabúskap þrátt
fyrir að vera lamaður og bundinn hjólastól. Við
vonum að lífsreynsla hans eigi eftir að vekja marga
tii umhugsunar um afleiðingar umferðarslysa og
hvernig hægt er að sigrast á erfiðum aðstæðum
með baráttuanda og góðum vilja,“ segir Ragnheið-
ur Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi VÍS.
Yaktrax
Við göngum örugg inn
í veturinn á vinsælu
hálkugormunum frá
Yaktrax
Frábært grip í hálku og snjó
Einstaklega þægilegir í notkun
Öruggasta hálkuvörnin á
markaðnum í dag
Fást í skó og lyfjaverslunum
Endursölulisti á www.afrek.is
Afreksvörur ehf
Síðumúli 31 - Reykjavík - Sími 553-1020
www.afrek.is - afrek@afrek.is