Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Síða 36

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.10.2007, Síða 36
36 I ÖBÍáfram Ekkert er óeðlilegt við að vera fatlaður, segir einn hinna fjölmörgu málsmetandi einstaklinga sem hér er vitnað tii. Nú á því herrans ári 2007 eru málefni fatlaðra komin á dagskrá og myndast hefur raunverulegur vilji til að skapa eitt þjóðfélag fyrir alla. Járnið heitt þarf því að hamra. Þá mun árangur sjást, rétt eins og sannleikurinn gerir okkur frjáls! „Hér á landi býr undirþjóð opinberra styrkþega og láglaunafólks. Annars vegar eru þar fjölmennastir sumir öryrkjar, sjúklingar og aldraðir. Hins vegar sumar fjölskyldur einstæðra foreldra og auðnu- leysingja af ýmsu tagi. Ellistyrkir og eyðilagðir líf- eyrissjóðir koma í veg fyrir, að aldrað fólk komist beinlínis á vonarvöl. En þeir duga ekki til að lyfta öllu fólki, að loknum vinnudegi, upp í hið stétt- lausa þjóðfélag íslenzkrar velsældar. Hið sama gildir um fjölskyldur einstæðra foreldra, sem verða að lifa á einföldum láglaunum einnar fyrirvinnu og hafa vegna heimilisanna ekki tækifæri til að sinna yfirvinnu eða eiga hennar kannski alls ekki kost. Hlutfallslega eru það fá börn og fá gamalmenni, sem verða útundan í efnahagsundrinu. En þetta fámenni ætti einmitt að verða okkur hvatning til úr- bóta. Það er svo lítið, sem vantar til að gera þjóð- ina alla að einni stétt.“ - Jónas Kristjánsson í DV árið 1981 „Engum, sem les stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar, á að blandast hugur um hver meginstefnu- málin eru. Það er annars vegar traust og ábyrg efnahagsstjórn sem skapar atvinnulífinu þannig rekstrar- og skattaumhverfi að hvetji til vaxtar og framþróunar, hins vegar félagslegar áherslur sem beinast að því að bæta hag barna, aldraðra og ör- yrkja og efla jafnrétti í þjóðfélaginu á sem flestum sviðum. Þjóðarbúskapur okkar stendur þannig, og mun standa þannig áfram ef haldið verður rétt á málum, að við höfum gott tækifæri til að leggja fé í félagsleg verkefni sem brýnt er orðið að bæta úr. Ríkisstjórnin hefur þegar stigið fyrstu skrefin með lögum og ályktunum nýafstaðins sumarþings í málefnum barna, aldraðra og öryrkja." Geir H. Haarde forsætisráðherra í þjóðhátíðarávarpi sínu 17. júní sl. „Því miður er endurhæfingarþættinum afar illa sinnt hér á landi og lítill gaumur gefinn að þeim ávinningi, sérstaklega fjárhagslegum sem góðri endurhæf- ingu fylgir. Athuganir sýna, meðal annars í Svíþjóð, að hver króna sem lögð er í vel skipulagða og skilvirka endurhæfingu skilar sér nífallt til baka með ýmsum hætti. Það væri íslensku samfélagi bæði til sóma og ávinnings, ef ráðmenn þess sæu sér hag í að bjóða fötluðum upp á virka og kjarngóða end- urhæfingu sem miðaði að því að gera flesta ein- staklinga eins sjálfstæða og sjálfbjarga og kostur er. Starfsendurhæfing og endurhæfing yfirleitt er mikilvægur þáttur í því meðal annars að draga úr fjölgun örorkumetinna einstaklinga.11 Halldór Sævar Guðbergsson formaður Blindarafélagsins í blaði félagsins. „Sem móðir fatlaðs ungs drengs vil ég segja þetta: Fötluð börn eru gjöf lífsins til okkar rétt eins og önnur börn. Við sem höfum orðið þeirrar gæfu að- njótandi að ala upp fatlað barn vitum vel að það er erfitt og því fylgir mikil vinna. Við vitum aftur á móti líka hversu gefandi það er að sjá þessi börn vaxa og dafna, taka framförum í lífi og starfi, verða full- orðin og læra að takast á við lífið á sínum forsend- um. Því miður er staðreyndin sú að erfiðleikarnir við uppeldi fatlaðra barna snúa ekki endilega að börn- unum sjálfum heldur því að við foreldrarnir þurfum endalaust að berjast fyrir rétti þeirra í samfélaginu." - Sigríður Aðalsteinsdóttir á bloggsíðunni siggaadalsteins.blog.is „Við reynum alltaf að kyssa á bágtið, eins fljótt og auðið er ef barnið okkar meiðir sig. Eða er það ekki? Ef bágtið er sýnilegt kyssir kerfið líka en ekki strax ef fötlunin sést ekki utan á barninu. Mér hefur einnig opnast sú sýn að foreldrar barna með ósýni- lega fötlun þurfa helst að hafa yfirnáttúrulega hæfi- leika; þurfa helst að láta sér detta í hug fyrirbæri eins og stuðningsfjölskyldur og umönnunarbætur. Og örugglega er eitthvað fleira til. Upplýsingum um ýmiskonar aðstoð sem stendur til boða er líklega ekki beinlínis haldið leyndum, en synd væri að segja að þeim væri haldið að fólki. Kannski það yrði þjóðfélaginu of dýrt!” - Skapti Hallgrímsson blaðamaður í Viðhorfsgrein í Morgunblaðinu árið 2003 „Ekki er spurt hvað viðkomandi getur heldur hvað hann getur ekki. Ég hef kynnst fólki, sem ætti sam- kvæmt kerfinu að vera alveg óvinnufært en skilar fullri vinnu þrátt fyrir mikla fötlun. Við þurfum að hætta að spyrja fólk hvað það geti ekki og snúa okkur að því að spyrja fólk að því hvað það get- ur. Svo eigum við að hjálpa fólki að rækta þá getu með öflugri endurhæfingu og endurmennntun með það að markmiði að fólk verði aftur þátttakendur í atvinnulífi og daglegu lífi.“ Pétur Blöndal alþingismaður í pistli á vefsetri Tryggingastofnunar „Hver sem er getur komið til læknis og sagst vera óvinnufær vegna andlegra áþjána eða líkamlegra. Tekin er röntgenmynd af bakinu sem sýnir ekk- ert en sjúklingurinn kvartar samt. Þá er fengin sneiðmynd sem sýnir heldur ekkert en sjúkling- urinn kvartar samt. Sjúkraþjálfun en sjúklingurinn lagast ekkert. Megrun en sjúklingurinn léttist ekk- ert. Þunglyndislyf skipta heldur ekki sköpum og afeitrun gagnslaus. Sálfræðingurinn er fífl, félags- ráðgjafinn api, læknirinn bæði og í ofanálag ráða- laus. Sjúklingurinn er búinn að vera á sjúkradag- peningum í nokkra mánuði og á vonarvöl. Einhver framfærsla verður að koma til og farvegirnir aðeins tveir. Að sjúklingurinn taki sjálfur af skarið eða vel- ferðarkerfið. Illu heilli er seinni kosturinn æ oftar valinn." Lýður Árnason læknir í grein í Morgunblaðinu í febrúar sl. „Hverjir missa fyrstir vinnuna þegar þrengir að á vinnumarkaði? Það eru þeir sem hafa skerta starfsorku, t.d. fatlaðir. Hver er staða þess sem missir starfsorku vegna heilsubrests og getur ekki unnið? Hann fær ekki atvinnuleysisbætur eftir að launum í vinnu sleppir. Velferðarkerfi okkar ýtir óvinnufærum til örorkubóta og torveldar þeim að komast út á vinnumarkaðinn að nýju. Það er gert með skerðingum og jaðarsköttum. Þetta er auðvit- að engin skynsemi ....Öryrkjar komast ekki út úr tekjutengingu kerfisins. Tekjutengingin letur fólk til að fara í starfsendurhæfingu og út á vinnumark- aðinn því þá skerðast greiðslur frá Tryggingastofn- un og rétturinn hjá lífeyrissjóðunum skerðist. Margir veigra sér við að fara í endurhæfingu og úr verður vítahringur." - Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir í ræðu á Aþingi fyrir tveimur árum.

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.