Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 48
Meðal þess sem vekur athygli við MAN Lion City 18 E er drægi hans sem er
allt að 270 km við bestu aðstæður. Fyrstu bílarnir verða kynntir á þessu ári.
MAN hefur kynnt nýjan hópferðabíl sem heitir Lion City 18 E og er, eins
og nafnið gefur til kynna, 18 metra
langur strætisvagn. Þessi rafdrifni
strætó er liðvagn sem getur tekið
allt að 120 manns í ferð, en fyrstu
bílarnir verða kynntir á götum
Barcelona og Köln á síðari hluta
ársins. Alls eru það 15 bílar sem
verða prófaðir þar en einnig verða
bílar sendir til kaupenda í fimm
löndum Evrópu, Þýskalandi,
Spáni, Lúxemborg, Frakklandi og
Belgíu.
Það eru tveir rafmótorar fyrir
miðju á aftari öxlum vagnsins sem
hefur þann kost að auveldara er
að komast að þeim ef þeir þurfa á
viðhaldi að halda. Rafmótorarnir
eru samstilltir og auka stöðug-
leika vagnsins og öryggi. Meðal
annars er bíllinn búinn öryggis-
búnaði sem kemur í veg fyrir að
liðvagninn geti lagst saman eins
og vasahnífur. Það eru alls átta
rafhlöðupakkar í bílnum sem
samtals gefa 640 kWst og dugar
það honum fyrir 200–270 km
raun akstur. Einn af kostunum við
að nota rafdrif fyrir strætisvagna í
borgum er hversu mikið þeir nota
endurhleðslu við hemlun. Annars
er bíllinn aðeins fjórar klukku-
stundir að fullhlaðast með 150
kW hleðslustöð. MAN Lion City
18 E mun fara í fjöldaframleiðslu á
næsta ári.
Nýr rafdrifinn
hópferðabíll
Það er hægt að spara bensín með ýmsum góðum ráðum.
Það er hægt að spara eldsneyti með ýmsum auðveldum ráðum þegar maður ekur á
stórum bílum. Jafn þrýstingur í
öllum dekkjum vegur þar þungt.
Gæta þarf að því að loftþrýstingur
sé jafn en jafnframt er ekki gott að
aka á slitnum dekkjum. Atvinnu-
bílstjórar ættu að athuga loftþrýst-
ing að minnsta kosti vikulega. Með
því að hafa jafnan þrýsting er hægt
að draga úr sliti á hjólbörðum.
Til að spara eldsneyti er sömu-
leiðis nauðsynlegt að fylgjast með
ásum bílsins og eftirvagnsins.
Lélegir ásar og hjól leiða til
aukinnar eldsneytisnotkunar og
slits á dekkjum.
Bremsur skipta líka miklu máli.
Rétt er að yfirfara allan bremsu-
búnað einu sinni á ári. Einnig skal
forðast að hafa bílinn í lausa-
gangi. Lausagangur er óþarfur
en margir telja að hann sé besta
leiðin til að hita upp vélina. Lausa-
gangur eykur eldsneytisnotkun
og mengun. Slökkvið því alltaf á
vélinni þegar bifreiðin er stöðvuð
lengur en í 20 sekúndur.
Góður stöðugur hraði er skyn-
samlegur til að halda eldsneytis-
notkun í jafnvægi. Með stöðugum
hraða er hægt að lækka kostnað
um 10%. Þar fyrir utan dregur það
úr slysahættu og sliti á bifreið. Best
er að halda bílnum í langferð á 80
kílómetra hraða.
Góð ráð til að
minnka kostnað
Atvinnubílstjórar
ættu að athuga
lofþrýsting að minnsta
kosti vikulega. Með því
að hafa jafnan þrýsting
er hægt að draga úr sliti á
hjólbörðum.
Einn af kostunum
við að nota rafdrif
fyrir strætisvagna í
borgum er hversu mikið
þeir nota endurhleðslu
við hemlun.
Vandaðar vinnuvélar
og kerrur í garðinn og
skógræktina
Stema Basic
154.990
Ný sending að koma í hús,
þessar renna út!
Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Stema á Íslandi
ÁSAFL
Ásafl ehf.
Hjallahrauni 2 220 Hafnarfirði
Sími: 562 3833
Opið 8:30 - 17 virka daga
asafl@asafl.is asafl.is
Til á lager. Kítku við
Stubbatætarar,
jarðvegsþjöppur,
trjáklofningsvélar
og margt fleira.
Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Stema á Íslandi
Til á lager. Kítku við
Ásafl er umboðs- og þjónustuaðili Kato á Íslandi
KATO 19VXT
KATO HD27 V4
16 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R