Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 48
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Nýja Soundboksið! Betri hljómur og tengimöguleikar við allt að fimm Soundboks. Sláðu í gegn með slagveðursheldum stuðbagga. Handhægur og heitapottþéttur blátalari frá JBL. Vinsæll í pottapartíum um allt land. 149.990 kr. Nýja Soundboksið 13.342 kr./mán. í 12 mán. Alls: 160.100 kr.ÁHK: 12,13% 16.990 kr. JBL FLIP Bluetooth hátalari siminn.is Léttu þér kaupin með Síminn PAY appinu og dreifðu greiðslum í allt að 36 mánuði. 9.990 kr. Nokia 3310 3G Nokia 3310 þolir hnjask, passar í smáa lófa og rafhlaðan endist vikum saman. Fáðu Krakkakort á 0 kr.* og hleyptu barninu út í sumarið. *Þú færð Krakkakort með 1 GB á 0 kr. með völdum farsímaleiðum M eð fy rir va ra u m v ill ur o g ve rð br ey tin ga r. G ild ir m eð an b irg ði r e nd as t. 14.990 kr. Meater kjöthitamælir Snjall kjöthitamælir sem sér um kjötið meðan þú magnar upp stemninguna. Tengist við símann með appi. 29.990 kr. Almennt verð: 44.990 kr. Almennt verð: 19.990 kr. Samsung 4G spjaldtölva Samsung Tab A 4G á sumartilboði! Sívinsæll ferðafélagi barnanna. Tækin sem breyta útilegum í útihátíðir, stytta ferðalög fjölskyldunnar, gleðja börnin og koma þér mjúklega á milli staða fást í verslunum Símans og á siminn.is Sumarið er þitt með Símanum 30 daga Sjónvarp Símans Premium fylgir! Frábær fyrsti sími! Tilboð Tilboð Fitbit Charge 4 heilsuúr Frá 28.990 kr. Þetta snjallúr getur ekki beðið eftir því að hreyfa sig í sumar. Vatnshelt, endingargott og ljóngáfað. 24.990 kr. Apple AirPods 2019 Kitlaðu hljóðhimnurnar með allra vinsælustu heyrnartólunum. MARS 51 G 99 KR/STK 1941 KR/KG BÆTTU LÍKAMSSTÖÐUNA Minni verkir, betri líðan GÖNGUGREINING Faeturtoga.is S: 55 77 100 Davíðs Þorlákssonar BAKÞANKAR George Floyd var myrtur af lögreglumanni í Minnea-polis í síðustu viku. Þetta er sorgleg en þörf áminning um að það geti enn verið banvænt að vera dökkur á hörund á Vestur- löndum árið 2020. Eðlileg við- brögð margra var reiði sem fólk sýnir í verki með mótmælum, sem mestmegnis hafa verið frið- samleg. Því fer fjarri að þetta komi okkur ekki við og sé aðeins vandamál Bandaríkjanna. For- dómar eru alþjóðlegt vandamál sem er að ýmsu leyti dulið, ekki síst hér á landi. Bæði vegna þess að fjölbreytni hér er lítil, auk þess sem birtingarmyndir for- dóma eru svo lúmskar að þau sem fyrir þeim verða eru oft þau einu sem verða þeirra vör. Bandarískir lögreglumenn eru t.d. líklegri til að beita svart fólk valdi en hvítt, vegna sömu hátt- semi. Meginþorri þeirra myndi samt ekki líta á sig sem fordóma- fulla. Við þessar aðstæður er mikil- vægt að hafa góða leiðtoga sem hlusta á óánægju og grípa til raunverulegra aðgerða til að bæta úr þeim augljósu vanda- málum sem samfélagið stendur frammi fyrir. Því miður er því ekki að heilsa í Bandaríkjunum. Forsetinn hefur dýpkað þá gjá sem er á milli fólks og ýtt undir harðari átök. Hann lét bókstaf- lega kné fylgja kviði. Hvaða lærdóm getum við, sem erum í forréttindastöðu, dregið af þessu? Það skiptir máli hvað maður kýs, þetta er ekki bundið við Bandaríkin, það væri hollt fyrir íslenskt samfélag að auka hér fjölbreytni, við þurfum að gera okkur grein fyrir vandan- um og leggja okkar af mörkum. Kné fylgir kviði

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.