Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 32
Við í stjórnum lífeyris- sjóða höfum alvarlegum skyldum að gegna, berum ríkar skyldur og höfum mikla ábyrgð að svara fyrir. Við erum ekki og eigum aldrei að verða strengjabrúður! Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða 27.05.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 3. júní 2020FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Þorsteinn Friðrik Halldórsson SKOÐUN PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Jafnlaunavottun Sanngjörn laun fyrir jafn- verðmæt störf PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu og lausnum sem virka. Skammvinnur æsingur varð í síðustu viku eftir að fjórir erlendir ríkisborgarar voru handteknir á byggingarsvæði. Þeir höfðu fengið skráningu á grund- velli falsaðra skilríkja og höfðu því ekki tilskilin leyfi til að starfa hér á landi. Á samfélagsmiðlum voru þeir háværir sem fordæmdu þetta og finnst ótækt að lögreglan standi vörð um landamæri — eina af undirstöðum þjóðríkisins. Mikil skörun virðist vera á milli þessa hóps og þeirra sem kvarta yfir aðgerðaleysi lögreglunnar gagn- vart ökumönnum á Laugaveginum. Lögreglunni skal sigað á íslenska ríkisborgara en haldið frá þeim sem hingað koma á fölskum forsendum. Verkalýðsfélög hafa sum hver hjálpað til við að halda uppi eftirliti með erlendu vinnuafli hér á landi til þess að uppræta undirboð á vinnu- markaði. Þau gera það ekki af gæsku í garð erlends verkafólks heldur til þess að verja kjarasamninga og launakjör félagsmanna sinna. Það er tilgangur þeirra, rétt eins og tilgangur fyrirtækja er að hámarka hag hluthafa. Allt tal um annað er yfirvarp. Félagsmenn treysta á að forysta verkalýðsfélags hafi hags- muni þeirra að leiðarljósi. Því var athyglisvert að sjá for- mann Eflingar fordæma aðgerðir lögreglunnar og lýsa atburðinum þannig að lögreglan væri að „eltast við og hrella jaðarsettasta hóp sam- félagsins“. Að mati formannsins eiga Íslendingar að sjá sóma sinn í því að gefa fólki sem hingað er komið sömu möguleika og þeim sjálfum á því að fá vinnu. Það er ágætishug- mynd í sjálfu sér. Róttæka félagshyggjan sem litar heimsmynd forystunnar í Eflingu ber þannig alþjóðlegan keim. Sam- staða verkafólks þarf að ná út fyrir félagaform og landamæri. Hins vegar er ekki ljóst hvernig stríðari straumur vinnuafls til landsins þjónar hagsmunum félagsmanna Eflingar miðað við þá stefnu sem íslenska hagkerfið hefur tekið. Einstaklingum sem eru atvinnu- lausir eða standa utan vinnu- markaðarins hefur fjölgað um tugi þúsunda á seinustu vikum og mánuðum. Atvinnuleysi verður í áður óþekktum hæðum á þessu ári og ef hagkerfið nær ekki snarpri viðspyrnu geta félagslegu afleiðing- arnar rist djúpt. Í aðstæðum sem þessum er fyrirséð að spenna milli þjóðfélagshópa muni aukast. Eins og sakir standa geta félags- menn Eflingar unað sáttir við sitt enda hefur forysta verkalýðsfélags- ins náð umtalsverðum árangri í kjaraviðræðum þrátt fyrir mótlæti. En málefni alþjóðasósíalismans brenna ekki heitt á öllum félags- mönnum – líklega töluverðum minnihluta. Hugmyndir um að auðvelda heimsbyggðinni að keppa um störf við þá sem fyrir eru á íslenskum vinnumarkaði hljóta að falla í grýttan farveg þegar hag- kerfið er í djúpri niðursveiflu. Þær falla hins vegar vel að hagsmunum atvinnurekenda. Hugsjónir og hagsmunir Jóhann Gunnar Jóhannsson, sem hefur verið framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia, og Arnar Þór Másson, framkvæmdastjóri mannauðs og stefnumótunar, hafa báðir hætt störfum hjá fyrirtækinu. Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, staðfestir það í svari til Markaðarins. „Til að bregðast við áhrifum af Covid-19 hafa verið gerðar skipulagsbreytingar hjá Isavia sem fela í sér fækkun í framkvæmdastjórn um einn og sam- einingu tveggja sviða,“ segir Guðjón. Jóhann Gunnar, sem var áður fjármálastjóri Ölgerðarinnar, og Arnar Þór, sem er í stjórn Marels, höfðu verið um skamma hríð hjá Isavia en þeir voru ráðnir til félagsins síðasta haust. Í lok mars var 101 starfsmanni Isavia sagt upp störfum, ásamt því að 37 var boðið starf í lægra starfshlutfalli, en tekjur félagsins hafa dregist saman um 98 prósent. Mánuði síðar var 30 starfsmönnum hjá Fríhöfninni, dótturfélagi Isavia, sagt upp störfum og um 100 til viðbótar boðið starf í skertu starfshlutfalli. – hae Tveir framkvæmdastjórar hætta hjá Isavia  Jóhann Gunnar Jóhannsson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.