Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 11
Þau áföll sem við höfum orðið fyrir vegna kórónuveirufar-aldursins knýja okkur til að svara mikilvægum spurningum varðandi atvinnuuppbyggingu á Íslandi. Ekki er langt síðan íslenskt efnahagslíf var borið uppi af fábreyttu atvinnulífi þar sem sjávarútvegurinn var langmikil- vægastur og aflaði mikilvægs gjald- eyris fyrir þjóðina. Til að styrkja undirstöður samfélagsins var því á sínum tíma mikilvægt skref stigið þegar álverið í Straumsvík var reist og í kjölfarið fylgdu aðrar álverk- smiðjur sem allar studdu við lífs- gæði á Íslandi með því að skapa útf lutningsverðmæti og síðast en ekki síst: skapa atvinnu. Í kjölfar bankahrunsins byrjaði ferðaþjónustan að gera sig gildandi á Íslandi. Eldgosið í Eyjafjallajökli vakti heimsathygli sem ferða- þjónustan náði að nýta sér með markvissum herferðum og hingað byrjuðu að streyma ferðamenn til að njóta landsins okkar. Margir hafa á síðustu vikum dottið í hefðiátt- gírinn og gagnrýnt að ekki hefði verið meiri stýring á þeirri hröðu uppbyggingu sem orðið hefur í ferðaþjónustu. Það þykir mér sér- kennilegt sjónarhorn því mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir Ísland og þá ekki síst landsbyggðirnar hefur verið gífurlegt og bæði skapað miklar útflutningstekjur og síðast en ekki síst: skapað atvinnu. Undanfarin ár hefur verið mikil uppbygging í fiskeldi á Íslandi. Bæði hefur verið um að ræða eldi á landi en mestur hefur vöxturinn verið í sjókvíaeldi. Stjórnvöld hafa sýnt ábyrgð þegar kemur að uppbygg- ingu sjókvíaeldis svo ekki verði gengið á hinn villta íslenska laxa- stofn. Strax árið 2004 var ákveðið að sjókvíaeldi yrði aðeins leyft á afmörkuðum svæðum landsins sem afmarkast fyrst og fremst við Vestfirði og Austfirði. Var það gert til að gæta fyllstu varúðar. Vöxtur greinarinnar hefur verið mikill og hefur hún aukið útflutningstekjur Íslands töluvert og síðast en ekki síst: skapað atvinnu. Framþróun í fiskeldi er hröð. Þær þjóðir sem líklega eru fremstar í fiskeldi eru Norðmenn og Færey- ingar. Fiskeldið hefur skilað Færey- ingum miklum ágóða sem sýnir sig best í því að lífsgæði í Færeyjum eru með því sem best gerist í heiminum. Norðmenn bera höfuð og herðar yfir aðrar þjóðir þegar kemur að fiskeldi. Sú staða hefur ekki náðst án vandkvæða en framfarir í greininni, til dæmis hvað varðar umgengni við lífríki sjávar, hafa náðst með þrotlausum rannsókn- um og sífellt betri vinnubrögðum í greininni. Hér á landi þurfum við að læra af reynslu Norðmanna og nýta okkur þekkingu þeirra og reynslu til að efla byggðir á Vestfjörðum og Austfjörðum og enn fremur: skapa atvinnu. Viðspyrna Íslands er meðal ann- ars fólgin í því að styðja við upp- byggingu fiskeldis í sátt við nátt- úruna. Það er Íslendingum í blóð borið að nýta sjóinn og ná jafnvægi milli náttúru og manns. Það er heldur ekki úr vegi að benda á það stóraukna fjármagn sem sett hefur verið í nýsköpun með aðgerðum ríkisstjórnarinnar og getur hjálpað til við að auka virði fiskeldisins við strendur Íslands og síðast en ekki síst: skapað atvinnu. Atvinna um allt land Guðjón Sigurbjartsson viðskipta- fræðingur Guðni Ágústsson, fv. alþingis-maður og landbúnaðar-ráðherra, skrifar enn eina greinina til stuðnings íslenskum landbúnaði í Fréttablaðið 27. maí 2020. Þar fer Guðni fram af meira kappi en forsjá eins og oft áður. Hann hikar ekki við að setja fram hálfsannleik og villandi upplýsingar enda helgar tilgangurinn meðalið sem er að pressa á stjórnvöld að leggja meira á neytendur og skattgreiðendur fyrir íslenskan landbúnað. Það nægir víst ekki að við erum með dýrasta landbúnað í heimi og mestu hömlur á innflutning af öllum Evrópuþjóðum. Í Evrópu eru landbúnaðarafurðir á frjálsum markaði, eins og eðlilegt er, almenn- ingi í hag, nema á Íslandi, í Noregi og Sviss. Góð ráð dýr Á Íslandi kostar landbúnaður skatt- greiðendur yfir 15 milljarða króna á ári og neytendur, með tollvernd og innflutningshömlum, um 25 millj- arða króna til viðbótar. Þetta gerir um 150.000 kr. á ári á hvern einstak- ling. Til að ná því inn þarf fólk um 250.000 kr. hærri tekjur fyrir skatta. Guðni og f leiri vilja mikið, mikið meira til landbúnaðarins. Skítt með fátækt fólk sem ekki hefur efni á almennilegum mál- tíðum og þarf að greiða hæsta mat- vælaverð í heimi og láta sér nægja óhollan ódýran mat sem dregur úr heilsu og ævilengd. Skítt með börn í fátækt. Skítt með það þó hæsta mat- vælaverð í heimi fæli ferðamenn frá landinu, sérstaklega landsbyggðinni því það er dýrt að ferðast um landið. Það eina sem skiptir Guðna og skoðanabræður máli er að fá meira fé frá skattgreiðendum og neyt- endum. Falsrök og bull Það eru nokkur atriði sem varð- hundar íslensks landbúnaðar beita fyrir sig. Þau helstu eru: matvælaör- yggi, kolefnisspor, sýklalyfjaónæmi, dýraníð og heilnæmt íslenskt vatn. Matvælaöryggi verður best tryggt með frjálsum viðskiptum. Sem betur fer verða engar skorður við þeim jafnvel í heimsfaraldri eins og Covid, þar sem þó allt leggst á hliðina. Það er líka eins gott því til að framleiða 1 kíló af kjúklinga- og svínakjöti þurfum við að flytja inn 2 kíló af korni og til að halda flóknum tækjabúnaði í landbúnaði gangandi þarf innflutning á íhlutum o.þ.h. Við f lytjum enda út 99% af þeim fiski sem við veiðum og getum sem best borðað meiri fisk ef á þarf að halda. Svo gætum við komið okkur upp öryggisbirgðum matvæla með langt geymsluþol, ef fólk vill raunverulegt matvælaöryggi. Kolefnissporið er óhagstætt fyrir íslenska kjötframleiðslu af ofan- greindum ástæðum. Við þurfum að flytja meira inn í þá framleiðslu en sem nemur framleiðslunni. Notkun á sýklalyfjum í dýrum mun vera talsverð í Suður-Evrópu. Það er bannað í Evrópu eins og hér að nota sýklalyf í fæði dýra sem vaxtarhvata og ekki sannað að það sé gert. Við þurfum ekki að f lytja inn matvæli frá bændum sem nota sýklalyf í óhófi. Dýraníð, það er varla minna hér en hjá nágrannaþjóðunum. Við þurfum ekki að láta eins og hér sé allt í besta standi hvað þetta varðar, það sýnir sagan. Vatnið sem hér rignir gufar í flest- um tilvikum upp í Mexíkóflóa og rignir svo hér norður frá nokkrum dögum síðar. Dýr og plöntur skilja svo út öll óhreinindi sem kunna að leynast í því. Spánn, gott veður, ódýrt að lifa Þegar Guðni hefur lokið sér af í sér- hagsmunabaráttunni fyrir bændur fer hann til Kanarí, ef hann þá er ekki þar þegar hann sendir grein- arnar. Þar borðar hann hin ágætu matvæli sem Spánn býður upp á og nýtur góða verðsins. Enda öruggur, því að meðalaldur Spánverja er hærri en Íslendinga, þrátt fyrir sýklalyfjanotkun í landbúnaði. Aðrir verða að láta sér nægja að hírast hér norður frá í kulda og trekki og borga hæsta verð í heimi fyrir matvælin, jafnvel fyrir rusl- fæði. Það hafa ekki allir efni á því að koma sér suður eftir í ódýr matvæli, sól og hita. Það gáfulega er hins vegar að breyta landbúnaðarstefnunni að hætti Evrópubúa, bæði bændum og neytendum í hag. Það þarf ekki þjóðrembing og falsfréttir. Það þarf bara að horfa á staðreyndirnar eins og þær eru. Kerfið er til og nefnist opinn matvælamarkaður með hóf- legum, vel útfærðum grunnstuðn- ingi til virkra bænda. Gáfulegur landbúnaður Það nægir víst ekki að við erum með dýrasta land­ búnað í heimi og mestu hömlur á innflutning af öllum Evrópuþjóðum. Innflytjendur eru yfir 50.000 á Íslandi og þeir eru margbreytilegir rétt eins og Íslendingar. Þeir eru á mis­ munandi aldri, af ýmsum uppruna, með margs konar menntun og tala ólík tungu­ mál. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra Þegar ljóst var að Ísland myndi ekki sleppa við COVID-19 heimsfaraldurinn þurfti að breyta allri starfsemi í samfélaginu og upplýsa íbúa um stöðu mála. Vinnan fór f ljótt af stað og allt gekk vel nema – jú, ekki allir íbúar á Íslandi skilja íslensku og án sam- stöðu gengur dæmið ekki upp… Hvað gerum við þá?: Þýðum! Þetta er ekki í fyrsta skipti sem farið er í átak til að ná til þeirra sem tala ekki íslensku. Slíkt gerðist í efnahagshruninu og þegar Eyja- fjallajökull gaus. Stór hópur inn- flytjenda hefur gert landið að sínu og leggur sitt af mörkum til íslenska hagkerfisins. Á milli þessara stóru sögulegu atvika virðist þó lítið reynt að ná til innf lytjenda. Við spyrjum af hverju? Innf lytjendur eru yfir 50.000 á Íslandi og þeir eru margbreytilegir rétt eins og Íslendingar. Þeir eru á mismunandi aldri, af ýmsum upp- runa, með margs konar menntun og tala ólík tungumál. Margir tala Upplýsingar sem bjarga lífum Barbara Jean Kristvinsson Joanna Marcinkowska íslensku mjög vel, sumir eru enn þá að læra og aðrir tala litla eða enga íslensku. En getur fólk ekki bara lært íslensku? Eflaust getur fólk það og flest erum við sammála um að það sé fólki fyrir bestu. En það getur tekið langan tíma að verða sjálf- bjarga á íslensku. Svo fór, þegar COVID-19 skall á, að enn einu sinni vorum við ekki búin að hugsa fyrir því að ná til þeirra sem tala ekki íslensku. Marg- ir innflytjendur fundu í fyrstu engar íslenskar upplýsingar og mynduðu sér skoðun út frá upplýsingum ann- ars staðar frá og voru ekki hrifnir af þríeykinu. Þegar ekki er markvisst unnið að því að mynda tengsl og ná til fólks þá upplifir það sig ekki sem hluta af samfélaginu og treystir því ekki yfirvöldum. Þessi vinna fór núna vel af stað en ávinningurinn má ekki tapast. Nú er tækifæri til að gera enn betur! Höfundar eru sérfræðingar í mál- efnum innf lytjenda hjá mannrétt- inda- og lýðræðisskrifstofu Reykja- víkurborgar. Ársfundur Háskóla Íslands verður haldinn í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskólans, Sæmundargötu 2, miðvikudaginn 10. júní 2020 kl. 9.00-10.00 Dagskrá 9.00 Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra – Lilja Dögg Alfreðsdóttir 9.10 Ávarp háskólarektors – Jón Atli Benediktsson 9.25 Undirritun viljayfirlýsingar um húsnæðismál Menntavísindasviðs 9.30 Nýsköpun í kennslu við Háskóla Íslands – í máli og myndum 9.45 Frumkvæði og forysta – árleg verðlaun Háskóla Íslands 10.00 Ársfundi slitið Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Fundinum verður streymt á hi.is ÁRSFUNDUR HÁSKÓLA ÍSLANDS Nýsköpun í kennslu S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.