Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 27
Starfsmenn á skrifstofu Reykjavíkurborgar hafa aðgang að Vinnustofu Kjarvals, sem er vinnu- og samkomur ými við Austurvöll, í gegnum sér- stakan samning sem borgin hefur gert við eigendur vinnustofunnar. Reykjavíkurborg greiðir alls 1,6 milljónir króna fyrir ársaðgang starfsfólksins. Þetta staðfestir upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar í svari við fyrir- spurn Markaðarins en hann segir að um sé að ræða tilraunaverkefni til eins árs. „Markmiðið með tilraunaverk- efninu er einnig að bæta vinnuað- stöðu starfsfólks og tryggja aðgang að fundaaðstöðu utan stjórnsýslu- bygginga á hagkvæmu verði,“ segir í svari frá upplýsingastjóra Reykja- víkurborgar. Vinnustofa Kjarvals, sem var opnuð í byrjun síðasta árs, spannar um 400 fermetrar á efstu hæð sam- liggjandi húsa númer 10 og 12 við Austurstræti. Staðurinn, sem er í eigu Hálfdanar Steinþórssonar, stofnanda GoMobile, Hrannars Pét- urssonar, aðstoðarmanns mennta- og menningarmálaráðherra, og Alexanders Arons Gylfasonar, sam- kvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2018,  hefur notið vinsælda sem vettvangur fyrir vinnufundi en einnig mannamót utan vinnu. Fyrirtæki og einstaklingar semja um aðgang að vinnustofunni, greiða ársgjald, og geta nýtt hana til fund- arhalda og af þreyingar. Eftir því sem kemur fram í samningi Reykja- víkurborgar við Vinnustofu Kjar- vals er borgin með ellefu aðgangs- kort, eitt fyrir hvert svið og hverja skrifstofu sem ákvað að taka þátt, en þau veita aðgang að vinnustof- unni og veitingaaðstöðu alla daga vikunnar. Hvert aðgangskort kostar 120 þúsund krónur auk virðisauka- skatts og gildir til 1. nóvember 2020. Í samningi Reykjavíkurborgar við vinnustofuna er hún sögð „sér- lega vel til þess fallin að taka á móti erlendum og innlendum viðskipta- vinum, hitta samstarfsfólk vegna vinnu eða utan hennar, rækta tengsl við aðra eða sinna störfum sínum í næði frá dagsins önn“. Á vinnustofunni er sögð góð aðstaða til funda og samkomuhalds og að boðið sé upp á drykki og léttar veitingar. Opið er til klukkan 1 að nóttu um helgar. Þá er henni einn- ig lýst sem „vettvangi fyrir fólk úr atvinnulífinu til að rækta tengsl hvert við annað“. Hvert og eitt kort gildir fyrir fimm manns hverju sinni en ekki er gerð athugasemd ef þeir eru fleiri. Þá hafa starfsmenn borgarinnar for- gang að viðburðum sem Vinnustofa Kjarvals sendur fyrir á staðnum, til dæmis á hátíðis- og tyllidögum. Í svari frá upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar kemur fram að á hverju ári leigi svið og skrifstofur borgarinnar ýmis fundarrými utan stjórnsýsluhúsanna til teymisvinnu og fyrir starfsdaga, vinnustofur og starfsþróunarviðtöl svo eitthvað sé nefnt. „Þörfin fyrir þetta hefur aukist vegna aukinnar hagræðingar í hús- næðismálum með opnum rýmum og f leira starfsfólki undir sama þaki,“ segir í svari upplýsinga- stjórans sem bætir við að haustið 2019 hafi verið áætlaður kostnaður vegna leigu á fundarrýmum utan stjórnsýsluhúsanna og ákveðið að kanna hvort hægt væri að finna hag- kvæmar lausnir. „Borgarritari hafði forystu um að gera verðfyrirspurnir meðal rekstraraðila sem gætu mætt þörf- um borgarinnar í þessu efni. Að því loknu þótti ljóst að fjárhagslegur ávinningur væri af því að semja við einn aðila sem mætt gæti fjöl- þættum þörfum,“ segir jafnframt í svari borgarinnar. Því hafi verið ákveðið að fara í eins árs tilrauna- verkefni með Vinnustofu Kjarvals í Austurstræti. Þá er reynsla borgarinnar af verkefninu sögð hafa verið góð þar sem margir hafi aðgang að vinnu- stofunni og nýti hana til starfs- mannasamtala, starfsdaga og lengri teymisfunda. thorsteinn@frettabladid.is Borgin raðar starfsfólki sínu á Kjarval Reykjavíkurborg útvegaði ellefu aðgangskort að Vinnustofu Kjarvals fyrir starfsfólk á skrifstofu borgarinnar. Kostnaður vegna kortanna nemur 1,6 milljónum króna. Borgin segir fjárhagslegan ávinning í því að semja við eitt fyrirtæki um leigu fundarrýmis. Staðurinn dregur nafn sitt af listmálaranum Jóhannesi S. Kjarval sem var með aðstöðu í húsnæðinu. 519 5500 SÍÐUMÚLA 23 · 108 REYKJAVÍK · FASTBORG.IS Húsráð sem þú getur treyst Til sölu - bókið skoðun Til sölu - bókið skoðun Hæðir frá 115 fm Einbýlishús 442,7 fm 7 herbergi 5 metra lofthæð í stofu Vandaðar eignir í grónu og skjólsælu umhverfi Lautarvegur 40-44 Verð frá 77.500.000 Stutt í alla þjónustu Sérinngangur Tvö baðherbergi Sæbraut 1 Kjarvalshúsið, einstakt tækifæri til að eignast þetta sögufræga hús Stendur á sjávarlóð með stórbrotnu útsýni Böðvar löggiltur fasteignasali 660 4777 bodvar@fastborg.isÞóra löggiltur fasteignasali 777 2882 thora@fastborg.is 170 Seltjarnarnesi103 Reykjavík Að selja fasteign er risastór ákvörðun sem best er að taka að vandlega hugsuðu máli. Við hjá Borg vitum að traust og áreiðanleiki eru lykilatriði í fasteigna- viðskiptum, enda búum við yfir áratuga- langri reynslu á því sviði. Eignin þín er í góðum höndum hjá okkur. 11M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.