Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 5 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 Í SUMARDRY KK IN N SÍTRÓ NA DRYKK! SUMAR Töfraðu fram ... LÖGREGLUMÁL „Ég sá að lögreglan var búin að loka veginum og stopp- aði bílinn. Þá komu þrír lögreglu- menn að og einn með skammbyssu,“ segir Höskuldur Pétur Jónsson, fatl- aður maður á áttræðisaldri. Höskuldur var handtekinn af sér- sveit lögreglunnar á sunnudag í Kjós eftir nágrannadeilur um girðingar. Valgarður Valgarðsson aðalvarð- stjóri segir að nágranninn hafi til- kynnt um ógnun og lögregluna grunað að vopnum yrði beitt. Í grunninn snýst málið um landa- merkjadeilu. Höskuldur var að laga girðingu, sem rifin hafði verið niður, þegar nágranninn kom að. Munnhjuggust þeir en síðan gekk nágranninn í burtu og hringdi sím- tal. „Ég spurði hvort þá vantaði eitthvað,“ segir Höskuldur um það þegar hann mætti lögreglunni. „Rifu þeir þá upp hurðina, ég var tættur út úr bílnum, skellt í drull- una og handjárnaður.“ Höskuldur hafnar því að hafa hótað of beldi. Karl Magnús Kristjánsson, odd- viti í Kjósarhreppi, segir að hand- takan hafi verið í vitna viður- vist. Fólki hafi fundist þetta mjög undarleg vinnubrögð. Til dæmis hafi skammbyssu verið miðað á Höskuld. „Við skiljum ekki af hverju vík- ingasveitin var kölluð til út af svona smátilefni og okkur finnst eins og víkingasveitin sé orðin dálítið aðgangshörð,“ segir Karl. Kveðst oddvitinn velta því fyrir sér hvernig standi á því að hægt sé að kalla víkingasveit lögreglunnar til án þess að kanna alla málavext- ina til hlítar. – khg / sjá síðu 4 Sérsveitin beitti hörku Fatlaður maður á áttræðisaldri var handtekinn af víkingasveit á hvítasunnu- dag. Nágranni hans taldi sér ógnað en þeir deila um landamerki og girðingar. VIÐSKIPTI Starfsmenn á skrifstofu Reykjavíkurborgar hafa aðgang að Vinnustofu Kjarvals, sem er vinnu- og samkomurými við Austurvöll, í gegnum sérstakan samning sem borgin gerði við staðinn. Borgin er með ellefu aðgangs- kort sem hvert kostaði 120 þúsund krónur auk virðisaukaskatts. Alls nemur kostnaðurinn því 1,6 millj- ónum króna. Fyrirtæki og einstaklingar semja um aðgang að vinnustofunni, greiða árgjald og geta nýtt hana til fundarhalda og af þreyingar. Staðurinn hefur notið vinsælda sem vettvangur fyrir vinnufundi en einnig mannamót utan vinnu. Í svari frá Reykjavíkurborg segir að þörfin fyrir fundarrými hafi aukist vegna hagræðingar í húsnæðis- málum. – þfh / sjá Markaðinn Á Kjarval í boði borgarinnar Karl Magnús Kristjánsson, oddviti í Kjósarhreppi. VIÐSKIPTI Lúðvík Bergvinsson, hér- aðsdómslögmaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hefur stefnt ritstjóra og útgáfu- félagi Viðskiptablaðsins fyrir meið- yrði vegna skrifa Óðins, nafnlauss pistlahöfundar blaðsins, um störf hans sem óháðs kunnáttumanns vegna kaupa N1 á Festi. Lúðvík krefur Trausta Haf liða- son ritstjóra um samtals þrjár milljónir króna í miskabætur. Lúðvík byggir málatilbúnað sinn á því að með birtingu pistilsins hafi verið vegið með ólögmætum og einstaklega grófum hætti að æru og starfsheiðri Lúðvíks og enn fremur bornar á hann alvarlegar sakir um lögbrot. Það liggi ljóst fyrir að virð- ing hans hafi beðið hnekki sem og æra hans og persóna. – hae, kij / sjá Markaðinn Vill 3 milljónir í miskabætur „Við erum að fara að reisa í haust 25 salerni á þremur stöðum,“ segir Einar Á.E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, þar sem stóref lis safnþró blasir nú við á Völlunum undir Almannagjá. Einar segir að nýju salernin verði við stóru bílastæðin á Hakinu, miðsvæðis í þinghelginni niðri á Völlunum, og síðan minni eining við gamla Valhallarreitinn. Safnþrær verði grafnar langt ofan í jörð á þessum þremur stöðum. „Nú erum við loksins með í vinnslu alla þá salernisaðstöðu sem hefur vantað á Þingvöllum síðustu sex árin.“ FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.