Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 26
Umbreyting, sjö milljarða króna framtakssjóður í rekstri Alfa framtaks, fjár- festi fyrir samanlagt ríf lega 2,8 milljarða króna í þremur fyrir- tækjum á síðasta ári, samkvæmt nýlegum ársreikningi sjóðsins. Eignarhlutur framtakssjóðsins í Greiðslumiðlun Íslands, móður- félagi innheimtuf yrirtækisins Motus, var verðmætasta eign sjóðs- ins í lok síðasta árs að bókfærðu virði um tæplega 1,4 milljarðar króna. Þá var þrettán prósenta eignar- hlutur Umbreytingar í Nox Health metinn á ríflega 1,2 milljarða króna í bókum framtakssjóðsins við síð- ustu áramót en sjóðurinn bættist sem kunnugt er í hluthafahóp lækn- ingatækjafyrirtækisins samhliða sameiningu Nox Medical og systur- félagsins Fusion Health síðasta haust. Auk þess var virði eignarhlutar framtakssjóðsins í Borgarplasti um 790 milljónir króna í bókum sjóðs- ins í lok síðasta árs og þá var eignar- hlutur hans í Málmsteypu Þorgríms Jónssonar metinn á sama tíma um 350 milljónir króna. Sjóðurinn festi kaup á öllu hlutafé í síðarnefnda fyrirtækinu í desember í fyrra. Tap varð af rekstri Umbreytingar upp á 110 milljónir króna í fyrra borið saman við 66 milljóna króna hagnað í fyrra. Framtakssjóðurinn, sem er nær óskuldsettur, átti eignir upp á alls 3,9 milljarða króna í lok ársins. Hlutafjárloforð sjóðsins eru sjö milljarðar króna, eins og áður sagði, en í lok síðasta árs námu ódregin loforð um 3,4 milljörðum króna. Lífeyrissjóður verslunarmanna og Lífeyrissjóður starfsmanna rík- isins eru stærstu hluthafar sjóðsins með um fimmtán prósenta hlut hvor en meðal annarra stórra hlut- hafa eru Snæból, í eigu hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar og Stein- unnar Jónsdóttur, VÍS, Lífeyris- sjóður Vestmannaeyja, Silfurberg, í eigu hjónanna Friðriks Steins Kristjánssonar og Ingibjargar Jóns- dóttur, og Eldhrímnir, fjárfestinga- félag Ingimundar Sveinssonar og fjölskyldu. – kij Töluverð f jölg u n á milli ára var í fram-boðum sem bárust tilnefningarnefndum skráðra félaga í Kaup-höllinni. Fjölgun fram- boða skilar sér þó ekki á kjörseðla á aðalfundum nema að litlu leyti, enda draga f lestir framboð sín til baka ef þeir hljóta ekki tilnefningu. „Fólk er ekki endilega að sækjast eftir því að fara í kosningabaráttu og taka slaginn á aðalfundi,“ segir Elín Jónsdóttir, stjórnarformaður Borgunar, en hún sat í tilnefningar- nefnd fasteignafélagsins Reita síð- ustu tvö ár. Markaðurinn hefur tekið saman hversu mörg framboð bárust til- nefningarnefndum í aðdraganda aðalfunda á þessu ári og hversu mörg framboð rötuðu að lokum á kjörseðla. Samantektin sýnir tölu- verða fækkun frambjóðenda. Þann- ig bárust tilnefningarnefnd VÍS 18 framboð, en aðeins átta stóðu eftir á aðalfundi tryggingafélagsins. Til- nefningarnefnd Sjóvár bárust fjór- tán framboð, en fimm frambjóð- endur drógu framboð sín til baka eftir að hafa fengið vitneskju um að þeir væru ekki tilnefndir. Sömu sögu er að segja um fast- eignafélögin Reiti, þar sem fram- bjóðendum fækkaði úr þrettán í fimm fram að aðalfundi, og Regin þar sem frambjóðendum fækkaði úr tíu í fimm. Þeir sem ekki hlutu til- nefningu óskuðu allir nafnleyndar og drógu framboð sín til baka. „Margir vilja einungis gefa kost á sér ef nafnleyndar er gætt og ef þeir eiga völ á því að geta dregið framboðið til baka, komist þeir ekki á framboðslista tilnefningar- nefndar,“ segir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrir- tækisins Hagvangurs og formaður tilnefningarnefndar Sjóvár og situr hún einnig í tilnefningarnefnd Skeljungs. Hún tekur fram að fram- boðslisti tilnefningarnefndar sé lagður fram að lokinni ítarlegri yfirferð og mati á framboðum sem hafa borist. Oftast sé farið eftir áliti nefndarinnar en þó séu dæmi um að niðurstaða í stjórnarkjöri hafi orðið önnur en tillaga nefndarinnar hljóðaði uppá. Sem dæmi um fjölgun framboða til tilnefninganefnda má nefna að framboðum til nefndar VÍS fjölgaði úr sex í 18 á milli ára, framboðum til nefndar Sjóvár fjölgaði úr sjö í fjór- tán og framboðum til nefndar Reita fjölgaði úr átta í þrettán. Einfaldari þreifingar Aðalfundur Eikar fasteignafélags verður haldinn 10. júní og hefur tilnefningarnefnd félagsins lagt til að stjórn þess verði óbreytt. Nefndinni bárust 14 framboð, en flestir af þeim frambjóðendum sem nefndin ræddi við svöruðu því til að „þeir myndu draga framboð sitt til baka ef þeir væru ekki tilnefndir til stjórnarsetu,“ eins og það er orðað í skýrslu nefndarinnar. „Mín reynsla er sú að flestir fram- bjóðendur eru að þreifa fyrir sér og athuga hvort þeir komi til greina,“ segir Elín. Síðan taki við athugun nefndarinnar á því hverjar þarfir félagsins séu og hver sé æskileg sam- setning stjórnar. „Ef niðurstaða tilnefningar- nefndar er sú að reynsla og þekk- ing frambjóðenda falli ekki vel að þörfum félagsins, eða að þeim þörfum sé fullnægt með núverandi stjórn, dregur fólk gjarnan framboð sitt til baka.“ Elín segir að framboð til tilnefn- ingarnefnda, og afturköllun þeirra, séu ákveðin formfesting á því sem var, áður en nefndunum var komið á fót. Þá hafi fólk leitað til stærstu hluthafa viðkomandi félags til þess að athuga með möguleika á að kom- ast í stjórn og hætt við framboð ef það fann lítinn stuðning. „Þetta er einfaldara ferli fyrir frambjóðendur að því leyti að þeir þurfa einungis að leita til einnar nefndar í stað margra hluthafa. Og það er faglegra að því leyti að niður- staða nefndarinnar tekur tillit til þarfa félagsins og samsetningar stjórnar,“ bætir Elín við. Flestir eiga erindi Sem dæmi um fjölgun á milli ára í framboðum til tilnefningarnefnda, má nefna að framboðum til nefndar VÍS fjölgaði úr sex í 18 á milli ára, framboðum til nefndar Sjóvár fjölgaði úr sjö í fjórtán og fram- boðum til nefndar Reita fjölgaði úr átta í þrett án. Lesa má úr skýrslum nefnd- anna að fátt sé um tilhæfulaus framboð. Þannig segir í skýrslu tilnefningarnefndar VÍS að allir 18 frambjóðendur hafi verið vel hæfir og nefndarmenn Reita skrifa að frambjóðendurnir þrettán hafi allir verið með víðtæka menntun, reynslu og þekkingu. „Flestir hafa ástæðu til þess að bjóða sig fram og geta átt erindi í aðrar stjórnir þó að bakgrunnur þeirra og reynsla henti ek ki ákveðnu fyrirtæki á tilteknum tímapunkti,“ segir Katrín hjá Hag- vangi. Katrín telur að framboðum til stjórna hafi fjölgað með tilkomu tilnefningarnefnda þar sem nefnd- irnar auglýsi og leiti eftir fram- bjóðendum. Auk þess sé yngra fólk reiðubúnara en áður að gefa kost á sér til stjórnarsetu. „Ég á frekar von á að framboðum eigi bara eftir að fjölga þegar fram í sækir,“ bætir Katrín við. „Oft sat sama fólkið í mörgum stjórnum en nú þykir það ekki æskilegt vegna þess að stjórnarstörf í skráðum fyrirtækjum eru heilmikil vinna. Að setjast í slíkar stjórnir kallar á talsverða undirbúningsvinnu fyrir öf lugan stjórnarfund í hverjum mánuði þar sem stjórnarfólk þarf að vera vel undirbúið, virkt og hafa nægan tíma. Þetta er orðið miklu umfangsmeira starf en áður var.“ thorsteinn@frettabladid.is Draga í land án tilnefningar Margir afturkalla framboð til stjórnar hjá skráðu félagi og óska nafnleyndar, ef þeir hljóta ekki tilnefn- ingu. Framboðum fjölgaði á milli ára. Nefndirnar sagðar auðvelda þreifingar. Meirihluti skráðra félaga í Kauphöllinni hefur komið tilnefningarnefnd á fót. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Fjárfesti fyrir 2,8 milljarða króna í fyrra Gunnar Páll Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Alfa framtaks. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Vinnslustöðin hagnaðist um níu milljónir evra, jafnvirði 1,2 milljarða króna, í fyrra. Til samanburðar hagnaðist útgerðin um 6,7 milljónir evra árið áður. Hagn- aður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta jókst um 8,4 prósent á milli ára og nam 20,9 milljónum evra, jafnvirði 2,9 milljarða króna. Í fyrra var eitt besta árið í rekstri fyrirtækisins. „Árangurinn náðist þrátt fyrir að engin loðna veiddist í fyrra og hum- arvertíðin væri ekki svipur hjá sjón. Mikilvæg forsenda góðrar rekstrar- niðurstöðu er vel heppnaðar fjár- festingar undanfarinna ára,“ segir í tilkynningu. Útgerðin mun greiða hluthöfum fimm milljónir evra í arð, jafnvirði 750 milljóna króna. Miðað er við að greiða út arðinn í haust að því gefnu að lausafjárstaðan verði góð. Stærstu hluthafar Vinnslustöðvar- innar eru Seil með 37 prósenta hlut og Fisk-Seafood með 30 prósenta hlut. Stærstu hluthafar Seilar eru Kristín Elín Gísladóttir, Haraldur Sveinbjörn Gíslason og Sigurgeir Brynjar Krist- geirsson, forstjóri útgerðarinnar. Fisk-Seafood er í eigu KS, Kaupfélags Skagfirðinga. Guðmundur Örn Gunnarsson, stjórnarformaður Vinnslustöðvar- innar, segir að nú sé verið að upp- skera af uppbyggingu undanfarinna ára. Á síðastliðnum fimm árum hafi Vinnslustöðin fjárfest fyrir 86 milljónir evra eða 11,3 milljarða króna á gengi hvers árs, þar af fyrir 69 milljónir evra eða 9,1 milljarð króna á gengi hvers árs í varanlegum rekstrarfjármunum, svo sem Breka VE, nýju uppsjávarfrystihúsi, nýrri frystigeymslu og endurnýjun í skipa- flotanum. „Ráðist var í þessar fjárfestingar með markvissum hætti en hóflegri skuldsetningu á hverjum tíma, það er að segja félagið hefur alltaf haft borð fyrir báru og arðgreiðsluhæfni félags- ins var tryggð,“ segir hann. Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar voru 170 árið 2000 en 315 á árinu 2019. Þeir hefðu líklega verið um 350 ef loðna hefði veiðst og humar sömu- leiðis. – hvj Hagnaður Vinnslustöðvarinnar um 1,2 milljarðar króna Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar. 3,5 milljarðar króna voru eigið fé framtakssjóðsins Um- breytingar í lok síðasta árs. Framboð Framboð til nefndar á fundi VÍS 18 8 Eik 14 - Sjóvá 14 9 Reitir 13 5 Festi 11 8 Reginn 10 5 Hagar 9 7 Sýn 9 5 Skeljungur 8 7 Arion 7 7 Síminn 6 5 Icelandair 5 5 TM 5 5 Origo - 5 ✿ Framboð fyrir og eftir niður- stöðu tilnefningarnefnda Þetta er einfaldara ferli fyrir frambjóð- endur að því leyti að þeir þurfa einungis að leita til einnar nefndar í stað margra hluthafa. Elín Jónsdóttir, stjórnarformaður Borgunar 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.