Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 2
Veður Vestlæg átt 3-10 m/s. Bjart með köflum um landið austanvert, annars skýjað og sums staðar dálítil súld. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SA-lands. SJÁ SÍÐU 16 Hjól fyrir alla Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Reiðhjólamiðstöðin Allir hjóla var opnuð í gær hjá Hjálpartækjaleigu Sjálfsbjargar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hjólafærni á Íslandi. Í dag er alþjóðadagur reiðhjólsins og því náðist að opna Allir hjóla í tæka tíð til að sem f lestir geti notið hjólreiða í tilefni dagsins. Sjá síðu 24 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STJÓRNSÝSLA Í nóvember í fyrra var greint frá því að Umba – þjónustu- miðstöð Stjórnarráðsins hefði fjár- fest í nýjum rafmagnssportjeppa sem ætlaður var til að þjónusta Katrínu Jakobsdóttur forsætisráð- herra. Eftir útboð bárust fjögur til- boð frá bílaumboðum og var niður- staðan sú að kaupa bíl af gerðinni Mercedez Benz EQC. Kostnaðurinn var 7,5 milljónir króna sem þótti hagstætt verð enda um 25 – 30 pró- senta afsláttur frá listaverði. Að auki var gerður samningur um kaup á þremur slíkum bílum til viðbótar á næsta ári. Undanfarið hefur vakið athygli að annar bíll hefur verið notaður til að skutla forsætisráðherra milli staða, rafmagnsjeppi af gerðinni Audi e-tron. Að sögn Viktors Jens Vigfússonar, framkvæmdastjóra Umbru, var bíllinn nýlega tekinn á leigu þar til að yfirstandi útboði um þrjá rafmagnsknúna ráðherra- bíla lýkur þann 24. júní næstkom- andi. „Mercedes Bens EQC, sem var keyptur eftir útboð á síðasta ári, hefur undanfarið verið nýttur í akstur fyrir heilbrigðisráðherra,“ segir Viktor í skriflegu svari. Að hans sögn er ekki óvanalegt að bílar f lakki milli ráðherra. „Umbra á og rekur f lota bifreiða og sér um akstursþjónustu fyrir ráðherra. Einstök bifreiðakaup eru ekki eyrnamerkt ákveðnu ráðuneyti eða ráðherra, þótt í framkvæmd sé vanalega sami bíll í þjónustu hvers ráðherra í lengri tíma. Þó kunna bílaskipti milli ráðherra að eiga sér stað og geta orsakast af tilteknum akstursverkefnum eða aðgerðum sem miða að hagkvæmi í rekstri bílaflotans.“ Aðspurður um ástæðu þess að Mercedez-rafmagnsjeppinn hafi staldrað svo stutt við í þjónustu forsætisráðherra og hvort rétt sé að lítið pláss í farangursými sé ástæðan segir Viktor: „Á síðasta ári var keyptur inn einn rafmagns- bíll til reynslu. Ástæða tilfærslu var liður í prófunum á hvernig sá bíll hentar og gefa f leiri bílstjórum og ráðherrum kost á að reyna bílinn. Í útboði sem nú stendur yfir var síðan tekið mið af þeirri reynslu þegar tæknilegar kröfur voru mótaðar fyrir næstu innkaup. Þá var horft til rýmis í bílnum auk tæknilegra þátta og öryggiskrafna í samráði við Ríkislögreglustjóra. Meðal annars voru gerðar auknar kröfur um rými og veghæð.“ Stefna ríkisstjórnarinnar er sú að nota eingöngu rafmagnsknúna bíla og reiknar Viktor með því að það markmið náist innan þriggja ára. bjornth@frettabladid.is Skipti um ráðherrabíl því skottið var of lítið Rafmagnsjeppi, sem keyptur var fyrir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, hefur verið færður til og þjónustar nú Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráð- herra. Ástæðan var meðal annars sú að farangursrými hans reyndist of lítið. Nýr bíll hefur þjónustað forsætisráðherra undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/ARI Meðal annars voru gerðar auknar kröfur um rými og veghæð. Viktor Jens Vig- fússon, fram- kvæmdastjóri Umbru REYK JAVÍK Íbúar í Háaleiti hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu og hugsanlegri sölu slíkra efna við hús þar sem rekið er athvarf fyrir heim- ilislaust fólk . Um er að ræða 500 fermetra hús við Safamýri 89 sem hefur verið í leigu Kærleikssamtakanna frá því í byrjun árs. Í húsinu geta allt að 23 einstaklingar dvalið um lengri eða skemmri hríð. Greint var frá áhyggjum íbúa á fundi íbúaráðs Háaleitis og Bústaðahverfis. Tók íbúaráðið í bókun undir áhyggjur íbúa af stöðu mála, ekki síst vegna nálægðar við skóla, leikskóla og íþróttastarf. „Mikilvægt er að fylgjast vel með framvindu mála og kalla eftir því að talsfólk Kærleikssamtakanna sem reka húsið verði sér úti um tilskilin leyfi verði sýnt fram á að þarna sé um leyfisskylda starfsemi/með- ferðarúrræði að ræða,“ segir í bók- uninni. – bþ Áhyggjur af dópi í Safamýri LÖGREGLUMÁL Lög reglan á Akur- eyri telur að eldurinn sem kom upp í frysti húsi Hrísey Seafood í Hrís- ey á föstu daginn hafi kviknað af manna völdum. „Við erum bara að nota úti- lokunar að ferðina. Við teljum þannig að það sé nánast úti lokað að bruninn hafi komið til vegna raf magns bilunar. Við byggjum það á mati sér fræðings Hús næðis- og mann virkja stofnunar,“ segir Bergur Jóns son, að stoðar yfir lög reglu þjónn á Akur eyri. Í fyrstu var talið að kviknað hefði í vegna raf magns bilunar þar sem lyftarar voru í hleðslu í frysti- húsinu. Sér fræðingurinn hefur úti- lokað þann mögu leika. „Þá hlýtur bruninn að vera af manna völdum og þá koma tveir mögu leikar til greina,“ út skýrir Bergur. „Í kveikja eða slys. Við höllumst frekar að því að þetta hafi nú verið slys. Við vitum að það var verið að sjóða þarna, raf sjóða eða log sjóða, þannig það er svo sem ekki ó lík leg skýring.“ Verkstjóri sem starfar hjá Hrísey Seafood og gisti í húsinu þessa nótt og var þar einn svo vitað sé gerði fyrst viðvart um eldinn. Er Frétta- blaðið náði tali af honum í gær til að inna hann eftir atburðarásinni neitaði hann alfarið að tjá sig. – ókp, ab Tjáir sig ekki um eldsvoðann Eldsvoðinn í Hrísey síðastliðinn föstudag. MYND/HERMANN ERLINGSSON 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.