Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 24
Hekla Arnardóttir og Helga Valfells, stofnendur Crowberry Capital. „Það væri óskandi að það yrði betra jafnvægi í hagkerfinu eftir efnahagsáfallið og störfin yrðu fjölbreyttari,“ segir Helga Valfells. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Glæsileg tæknifyrir-tæki verða oft til í kreppu. Fjártækni-fyrirtækið Meniga og hugbúnaðarfyrir-tækið GreenQloud sem NetApp keypti árið 2017 voru til dæmis stofnuð skömmu eftir bankahrunið 2008. Þettwa segja Helga Valfells og Hekla Arnardóttir sem stýra vísisjóði á vegum Crow- berry Capital ásamt Jenny Ruth Hrafnsdóttur. „Nýsköpun er í reynd atvinnu- sköpun,“ segir Helga. „Það er hluti af ástæðu þess að við höfum áhuga á að leggja okkar af mörkum til nýsköpunar á Íslandi,“ segir hún og nefnir að rekstur margra sprota- og tæknifyrirtækja sem komin eru á legg gangi vel um þessar mundir þrátt fyrir samdrátt í heimshag- kerfinu sem rekja má til viðbragða við kórónaveirunni. „Vonandi mun nýsköpun ef last í kjölfar kórónaveirunnar og hér á landi skapist fjöldi áhugaverðra starfa fyrir sérfræðinga. Það væri óskandi ef það yrði betra jafnvægi í hagkerfinu eftir efnahagsáfallið og störfin yrðu fjölbreyttari. Það býðu r hæt t u nni heim þegar ein atvinnugrein verður of umsvifamikil í atvinnulífinu eins og í tilviki ferðaþjónustu á undan- förnum árum og fjármálaþjónustu á árunum fyrir bankahrun. Þeir sem eru að útskrifast úr háskóla um þessar mundir ættu að líta til tækifæra á vettvangi stafrænna lausna. Það er gott að reka fyrir- tæki sem bjóða slíkar lausnir frá Íslandi, sérstaklega núna þegar það ríkir mikið atvinnuleysi,“ segir Helga. Ekki bara forritarar Hekla segir að það sé algeng mýta að tæknifyrirtæki bjóði eingöngu upp á störf fyrir forritara. „Aðrir geta haft mikið fram að færa eins og færni í mannlegum samskiptum og að geta sett sig í fótspor þeirra sem nota vöruna. Þess vegna vona ég innilega að hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum komi auga á vandamál í heilbrigðisgeiranum sem þurfi að leysa og taki þátt í að stofna og reka fyrirtæki sem geti keppt á alþjóðavísu. Ein af gryfjunum sem margir frumkvöðlar falla í er að setja saman einhæft teymi. Það er ekki skynsam- legt að teymið sé samsett eingöngu af forritunum heldur þarf fjölbreyti- leika: Einhvern sem skilur vöruna – Steve Jobs var í því hlutverki, svo þarf að kunna að smíða tækni- lausnina og hópurinn þarf einnig að hafa yfir að ráða þekkingu á sölu- og markaðsmálum.“ Helga segir að jafnvel þótt tækni- fyrirtæki verði seld í framtíðinni, eins og í tilviki GreenQloud, haldi starfsemin yfirleitt áfram í heima- landinu. „Tæknin gerir það að verk- um að hægt er að starfa hvar sem er í heiminum. Bandaríska fyrirtækið Teledyne Technologies keypti Haf- mynd, sem þróar litla kafbáta, árið 2010. Sú starfsemi er enn í miklum blóma hér á landi og NetApp sem er alþjóðlegt stórfyrirtæki er með 100 manns í vinnu á Íslandi. Það er því lykilatriði fyrir atvinnulífið að tryggja samkeppnishæfni Íslands því annars er hætta á að störfin leiti úr landi. Þegar ég starfaði hjá Nýsköp- unarsjóði atvinnulífsins voru 14 fyrirtæki seld og einungis eitt fór úr landi. Það var Clara en það var rekið af ungum strákum sem þótti spenn- andi að fá að starfa í Kísildalnum. Flestir þeirra eru komnir aftur til Íslands og taka þátt í sprotasenunni, reynslunni ríkari.“ Hún segir að nýsköpunarum- hverfið njóti þess sömuleiðis þegar tæknifyrirtæki séu seld því þá fái hluthafar þeirra fé til að fjárfesta að nýju í nýsköpun. „Á Norður- löndunum eru svokallaðir ein- hyrningar metnir samanlagt á 70 milljarða dollara. Einhyrningur er ungt tæknifyrirtæki sem metið er á milljarð dollara eða meira. Nafnið er þannig tilkomið að það átti að vera sjaldséð en svo fjölgaði slíkum fyrir- tækjum óvænt hratt. Einhyrningar hafa orðið til þess að norrænir fjár- festar fengu sjö milljarða dollara í vasann. Það er því feykilega há fjár- hæð sem getur runnið aftur í nor- ræna nýsköpun. Margir sem starfað hafa hjá þessum fyrirtækjum, eins og til dæmis hjá hinu sænska Spo- tify, hafa öðlast gríðarlega þekkingu sem hægt er að nýta til að stofna fyrirtæki eða leggja öðrum nýjum fyrirtækjum lið.“ Fengið erlent fjármagn Sjóður Crowberry Capital hefur verið þrjú ár í rekstri en honum var komið á fót sumarið 2017. Eins og fyrr segir hefur Crowberry Capital fjárfest í tólf fyrirtækjum og horft er til þess að fjárfesta í þremur til viðbótar. Öll félögin nema eitt hafa fengið fjármagn frá erlendum fjár- festum. Helga segir að yfirleitt þegar Crowberry fjárfesti í fyrirtæki samanstandi starfsmannahópur- inn einvörðungu af stofnendum þess. „Á þessum þremur árum hafa fyrirtækin ráðið 110 starfsmenn. Lucinity, Mainframe, Kara Connect og fleiri munu ráða fjölda manns á næstu mánuðum því þau eru í örum vexti. Nýsköpun er vel til þess fallin Kórónaveiran leiði vonandi til vakningar í nýsköpun Crowberry hefur fjárfest í tólf nýsköpunarfyrirtækjum á Norðurlöndunum. Öll félögin nema eitt hafa fengið fjármagn frá erlendum fjárfestum. Andreessen Horowitz fjárfesti í fyrirtæki í eigu Crowberry. Rannsóknir sýna að konur taka þátt í að stofna átta prósent af tæknifyrirtækjum í Evrópu. Það eru einungis 300 konur í Evrópu sem eru hluthafar og stjórn- endur í rekstrarfélagi sem rekur vísisjóð. Við þrjár hjá Crowberry erum því eitt prósent af konum sem fjárfesta í tækni í Evrópu. Helga Valfells 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.