Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 22
0,4% var hlutfall virðisrýrn­ unar útlána af lánasöfnum íslensku bankanna á fyrsta ársfjórðungi. Niðurstaða Lands­ réttar er eðlileg enda fer hún í engu gegn þeim verndarhagsmunum sem bannreglu innherja­ svikaákvæðisins er ætlað að gæta. Stefán Orri Ólafsson, meðeigandi á LEX lögmannsstofu Tveimu r innher ju m sem búa yf ir sömu innherjaupplýsingum er heimilt að eiga við­skipti sín á milli, að ö ðr u m sk i ly r ðu m uppfylltum, samkvæmt nýlegum dómi Landsréttar. Með dómnum er áralöng óljós réttarstaða innherja skýrð. Landsréttur sýknaði um miðjan síðasta mánuð Hreiðar Má Sigurðs­ son, fyrrverandi forstjóra Kaupþings banka, af ákæru um innherjasvik þegar hann framseldi eignarhalds­ félagi í sinni eigu hlutabréf í bank­ anum fyrir samanlagt 570 milljónir króna í ágúst árið 2008. Ákæruvaldið byggði á því að á þeim tíma hefði Hreiðar Már búið yfir innherjaupplýsingum sem lutu að því að „skráð markaðsverð hlutabréfa í bankanum gaf ranga mynd af verðmæti þeirra og hærri en efni stóðu til, vegna langvarandi og stórfelldrar markaðsmisnotk­ unar með hlutabréf í bankanum“, sem þá hefði staðið yfir að minnsta kosti frá því í nóvember árið 2007 og hann hefði sjálfur átt þátt í. Umrædd viðskipti mátti rekja til kauprétta sem Hreiðari Má höfðu verið veittir á árinu 2004, en í kjöl­ far innlausnar hluta þeirra í ágúst 2008 framseldi hann hlutabréfin til eignarhaldsfélags í sinni eigu. Til stuðnings kröfu sinni um sýknu bar Hreiðar Már því meðal annars við að í tilfellum þar sem kaupandi og seljandi hlutabréfa byggju yfir sömu innherjaupp­ lýsingum gæti ekki verið um svik eða misnotkun að ræða. Ekki fengi staðist að traust og trúverðugleiki verðbréfamarkaðarins byði hnekki af slíkum viðskiptum. Engin blekking Héraðsdómur Reykjavíkur sak­ felldi Hreiðar Má – með þeim rök­ stuðningi að innherjasvikaákvæði verðbréfaviðskiptalaga væri for­ takslaust, þegar það mælti fyrir um að innherja væri óheimilt að ráðstafa fjármálagerningum fyrir eigin reikning ef hann byggi yfir innherjaupplýsingum – en Lands­ réttur komst hins vegar að önd­ verðri niðurstöðu. „Þegar horft er á atvik málsins í heild og til þeirra hagsmuna sem reglum um innherjaviðskipti er ætlað að vernda verður ákvæðið því ekki skýrt þannig að það eigi við um innbyrðis viðskipti þeirra sem búa yfir sömu innherjaupp­ lýsingum þegar þeir eiga viðskipti með fjármálagerning,“ sagði í dómi Landsréttar. Því til viðbótar benti rétturinn á að engin blekking hefði falist í sölu hlutabréfanna gagnvart öðrum fjárfestum þegar tillit væri tekið til ástæðna sölunnar og opinberra til­ kynninga um hana. Gengur of langt Stefán Orri Ólafsson, meðeigandi á LEX lögmannsstofu, segir dóm Landsréttar skýra áður óljósa rétt­ arstöðu innherja. Orðalag innherjasvikaákvæðis verðbréfaviðskiptalaga geri engan áskilnað um að innherji hafi nýtt sér innherjaupplýsingar til þess að gerast sekur um innherjasvik. Þess í stað sé nægilegt að innherjinn hafi búið yfir slíkum upplýsingum á þeim tíma þegar viðskipti hafi átt sér stað. Dómur Landsréttar þýði hins vegar að ekki sé útilokað að þrátt fyrir umrætt orðalag ákvæðisins geti innherji átt viðskipti þegar hann býr yfir innherjaupplýsingum að öðrum skilyrðum uppfylltum. Stefán Orri bendir á að orðalag ákvæðisins hafi af mörgum verið talið ganga helst til of langt með þeim afleiðingum að það geti girt fyrir eðlileg viðskipti þegar inn­ herji býr yfir innherjaupplýsingum en beitir engum svikum. Það geti til dæmis átt við í tilfellum þegar tveir innherjar búa yfir nákvæmlega sömu innherjaupplýsingum og vilja eiga viðskipti. Sem dæmi sé nýting innherjaupp­ lýsinga gerð að skilyrði innherja­ svika í markaðssvikatilskipun Evr­ ópusambandsins frá árinu 2003, sem núgildandi innherjasvika­ ákvæði verðbréfaviðskiptalaganna á rætur sínar að rekja til. „Niðurstaða Landsréttar er því eðlileg, enda fer hún í engu gegn þeim verndarhagsmunum sem bannreglu innherjasvikaákvæðis­ ins er ætlað að gæta, þar sem mark­ aðurinn virðist hafa verið upplýstur að öllu leyti um þessi tilteknu við­ skipti. Þá er niðurstaðan í samræmi við dómaframkvæmd bæði Evrópu­ dómstólsins sem og Hæstaréttar Danmerkur. Niðurstaðan er auk þess í sam­ ræmi við þá réttarstöðu sem verður hér á landi þegar ákvæði markaðs­ svikareglugerðar Evrópusambands­ ins nr. 596/2014 hafa verið innleidd í íslensk lög,“ segir hann. Samkvæmt umræddri reglugerð, sem er stefnt að því að innleiða í íslenskan rétt í lok ársins, er nýting innherjaupplýsinga forsenda þess að innherjar geti gerst sekir um inn­ herjasvik. kristinningi@frettabladid.is Skýrir réttarstöðu innherja Ákvæði um innherjasvik á ekki við um innbyrðis viðskipti þeirra sem búa yfir sömu innherjaupplýs- ingum samkvæmt dómi Landsréttar. Lögmaður á LEX segir dóminn skýra óljósa réttarstöðu innherja. Landsréttur sýknaði um miðjan síðasta mánuð Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, af ákæru um umboðs- og innherjasvik. Framseldi eignarhaldsfélagið bréf í sinni eigu í bankanum fyrir 570 milljónir. Málið er það síðasta sem ákært var í vegna fjármálahrunsins 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Stóru viðskiptabankarnir þrír ættu að geta náð markmiði sínu um tíu prósenta arðsemi af reglulegum rekstri þrátt fyrir óvissu í efnahagsmálum vegna heims­ faraldurs kórónaveirunnar. Þetta er mat greinenda hagfræðideildar Landsbankans. Í nýrri umf jöllun hagfræði­ deildarinnar um uppgjör bankanna fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins, sem Markaðurinn hefur undir höndum, er bent á að bætt arðsemi þeirra geti komið til vegna meðal annars lægri bankaskatts og eiginfjárkrafna og strangs kostnaðaraðhalds. Eldri vandræðaeignir og hátt eiginfjár­ hlutfall hafi hingað til torveldað þeim að ná arðsemismarkmiðum sínum. Greinendur hagfræðideildarinn­ ar nefna að hagkvæmari fjármagns­ skipan, með útgáfu víkjandi lána, og minni kostnaður hafi meðal ann­ ars stuðlað að bættri afkomu bank­ anna, auk þess sem merki séu um að grunnrekstur þeirra fari batnandi. Þrátt fyrir að kórónaveiran muni setja mark sitt á afkomu bankanna á þessu ári og því næsta og vekja upp spurningar um virði eigna sé ekki útilokað að þeir geti náð áður­ nefndu markmiði um tíu prósenta arðsemi. Í umfjöllun hagfræðideildarinnar er bent á að virðisrýrnun útlána bankanna – Arion banka, Íslands­ banka og Landsbankans – hafi verið heldur meiri en á meðal annarra norrænna banka á fyrsta fjórðungi ársins. Þannig hafi virðisrýrnun hér­ lendra banka numið í kringum 0,4 prósentum af lánasöfnum þeirra á meðan norrænir bankar hafi almennt verið íhaldssamari í mati sínu og hlutfallið þar ekki farið yfir 0,25 prósent. Er meginskýringin á muninum, að mati greinenda Landsbankans, þjóðhagslegt vægi ferðaþjónustunnar hér á landi. – kij Tíu prósenta arðsemi enn möguleg Tap var á rekstri kísilvers PCC á Bakka við Húsavík á fyrstu þremur mánuðum ársins en framleiðsla þess var umtalsvert minni á fjórðungnum en búist hafði verið við. Þetta kemur fram í fjórð­ ungsuppgjöri þýska móðurfélagsins PCC SE. Þar kemur auk þess fram að slökkt hafi verið á öðrum af tveimur ljósbogaofnum kísilmálmverk­ smiðjunnar og er ekki gert ráð fyrir að kveikt verði á honum að nýju fyrr en í sumar. Erfiður vetur er sagður í upp­ gjörinu hafa leitt til nokkurs framleiðslutaps með tilheyrandi áhrifum á sölu og rekstur. Auk þess hafi verðhækkanir á kísilmálmi á fjórðungnum ekki nýst kísilverinu að fullu enda hafi það þurft að full­ nægja nokkrum eldri samningum á lægri verðum. Þá er tekið fram í uppgjöri þýska félagsins, sem fer með tæplega 87 prósenta hlut í kísilverinu á móti þrettán prósenta hlut Íslandsbanka og íslenskra lífeyrissjóða, að teymi á þess vegum vinni nú hörðum höndum að því að hrinda í fram­ kvæmd ýmsum aðgerðum í því augnamiði að auka skilvirkni og draga úr kostnaði við rekstur verk­ smiðjunnar. Vinnan miði að því að bæta afkomu hennar til framtíðar litið. Miklar tafir og erfiðar aðstæður á hrávörumörkuðum hafa ein­ kennt starfsemi kísilversins frá gangsetningu á vormánuðum árs­ ins 2018. Eins og Markaðurinn greindi frá í síðustu viku náðu forsvarsmenn kísilversins nýverið samkomulagi við verktakann sem byggði verk­ smiðjuna, þýska fyrirtækið SMS, um að síðarnefnda fyrirtækið greiði því fyrrnefnda um einn milljarð króna í tafabætur vegna fram­ kvæmdanna. Vegur eingreiðslan að hluta upp á móti tapi fyrsta árs­ fjórðungs. Sem kunnugt er gengu stjórnend­ ur kísilversins frá samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu þess við lánveitendur og hluthafa í mars síðastliðnum. – kij Tap og minni framleiðsla hjá kísilverinu PCC á Bakka Nokkur röskun var á framleiðslu kílsvers PCC á fyrsta ársfjórðungi. Verð- hækkanir á kísilmálmi nýttust ekki kísilverinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Virðisrýrnun útlána íslensku bankanna var meiri en norrænna. 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.