Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 4
Við skiljum ekki af hverju víkinga- sveitin var kölluð til út af svona smátilefni og okkur finnst eins og víkingasveitin sé orðin dálítið aðgangshörð. Karl Magnús Kristjánsson, oddviti í Kjósarhreppi Gerir sláttinn auðveldari Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is LÖGREGLUMÁL „Ég sá að lögreglan var búin að loka veginum og stopp- aði bílinn. Þá komu þrír lögreglu- menn að og einn með skamm- byssu,“ segir Höskuldur Pétur Jónsson, maður á áttræðisaldri sem var handtekinn af sérsveit lög- reglunnar á sunnudag í Kjós. Lögreglan segist hafa fengið til- kynningu um ógnandi tilburði og hættu á að vopnum yrði beitt. Hösk- uldur segir svo ekki vera en að lög- reglan hafi brotist inn í hús dóttur hans og tekið óvirkan riffil. „Þetta er ágreiningsmál á milli manna þarna upp frá um girðingar,“ segir Valgarður Valgarðsson, aðal- varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu. „Það var grunur um að maður ætlaði að beita vopnum á hinn aðilann.“ Málið snýst í grunninn um landa- merkjadeilu sem er í kæruferli á milli eigenda tveggja jarðarhluta sem áður tilheyrðu Þúfukoti. Taldi Höskuldur sig í rétti til að laga girð- ingu á hluta jarðarinnar sem hafði verið rifin niður. Segir hann girð- inguna jafnframt innan veghelg- unarsvæðis. Kom þá nágranninn að og munnhjuggust þeir í skamma stund, uns nágranninn fór og Hösk- uldur kláraði lagfæringuna. „Ég spurði hvort þá vantaði eitt- hvað,“ segir Höskuldur um þá stund þegar hann mætti lögreglunni. „Rifu þeir þá upp hurðina, ég var tættur út úr bílnum, skellt í drull- una og handjárnaður.“ Hafi þetta gerst svo snöggt að ekki hafi gefist rúm til að setja bílinn í stöðvun- argír og minnstu hafi munað að jeppinn endaði framan á lögreglu- bílnum. Lögreglan sjálf hafi rétt náð að stöðva jeppann. Höskuldur, sem er 72 ára gamall og fatlaður eftir reiðslys, var ekki yfirheyrður á staðnum heldur var farið með hann á lögreglustöðina við Hlemm og hann vistaður þar í sex klukkutíma. Eftir skýrslutöku var honum sleppt, peningalausum og forugum. Átti hann í erfiðleikum með að komast heim í Kjós aftur. Höskuldur segir að lögreglan hafi einnig ruðst inn í hús dóttur hans og gert þar mikla leit. Hafi hún tekið gamla rússneska og óvirka hagla- byssu sem hékk uppi á vegg. Valgarður segir að ekki hafi verið farið fram á gæsluvarðhald yfir Höskuldi, heldur var honum sleppt eftir skýrslutöku. Aðspurður hvað- an upplýsingar um ógnanir hafi komið segir hann þær frá hinum aðilanum, nágrannanum. „Hann hefur sjálfsagt haft í hótunum eða eitthvað álíka og þá förum við að gát í það og tryggjum allt og alla.“ Aðspurður hvort hann hafi beitt hótunum í garð nágranna síns segir Höskuldur svo ekki vera. Hann hafi þó verið reiður og bölvað. Frétta- blaðið náði ekki tali af umræddum nágranna. Karl Magnús Kristjánsson, odd- viti Kjósarhrepps, segir handtök- una hafi verið í vitna viðurvist og að fólki hafi fundist þetta mjög und- arleg aðgerð. Til dæmis að skamm- byssu hafi verið miðað á Höskuld. „Við skiljum ekki af hverju vík- ingasveitin var kölluð til út af svona smátilefni og okkur finnst eins og víkingasveitin sé orðin dálítið aðgangshörð,“ segir Karl og veltir því fyrir sér hvernig standi á því að hægt sé að kalla sveitina til án þess að kanna mál til hlítar. kristinnhaukur@frettabladid.is Sérsveit handtók aldraðan mann eftir girðingarvinnu Sérsveit lögreglunnar handtók fatlaðan mann á áttræðisaldri í Kjósarsýslu eftir að hann hafði lagfært girðingu á landi sem hann deilir um við nágranna sinn. Hreppstjóri undrast vinnubrögð lögreglunnar í málinu. Lögreglan segist hafa fengið upplýsingar um ógnandi hegðun mannsins frá nágrannanum. Höskuldur átti erfitt með að koma sér aftur heim í Kjós eftir að honum var sleppt úr haldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI STJÓRNSÝSLA Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, braut jafnréttislög með því að skipa Pál Magnússon í embætti ráðuneytisstjóra í stað konu. Er það niðurstaða kærunefndar jafnréttis- mála að ráðherra hafi vanmetið konu í samanburði við Pál. Fjórir voru metnir hæfastir af hæfnisnefnd, Páll, tvær konur og annar karl. Hafdís Helga Ólafsdótt- ir, skrifstofustjóri í forsætisráðu- neytinu, sem sótti um stöðuna, var ekki þar á meðal,kærði ráðninguna. Eftir að hafa fengið gögn frá ráðu- neytinu kærði Hafdís ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála. Í úrskurðinum segir að Lilja hafi vanmetið Hafdísi samanborið við Pál varðandi menntun, reynslu af opinberri stjórnsýslu, leiðtoga- hæfileika og hæfni til að tjá sig í riti. Þá hafi verið verulegur skortur á efnislegum rökstuðningi fyrir ráðningunni og ljóst sé að Páll hafi ekki staðið Hafdísi Helgu framar. Í svari til Fréttablaðsins segir ráðherra að við skipunina hafi verið farið eftir niðurstöðum hæfnisnefndar. „Við mat hæfnis- nefndarinnar og með sjálfstæðu mati ráðherra var horft til málefna- legra sjónarmiða sem fram komu í auglýsingu um embættið. Við sjálf- stætt mat ráðherra taldi hann ekki ástæðu til að víkja frá niðurstöðu hæfnisnefndarinnar en eins og fram kemur í skýringum með lögunum þurfa að liggja fyrir veigamiklar, hlutlægar eða málefnalegar ástæður til að víkja frá mati hæfnisnefndar. Því var skipaður ráðuneytisstjóri úr hópi þeirra fjögurra sem metin höfðu verið hæfust, að undangengn- um viðtölum. Umsækjendunum fjórum, tveimur konum og tveimur körlum, voru gefnar einkunnir sam- kvæmt skýru verklagi.“ – ab, okp Lilja Alfreðsdóttir braut jafnréttislög við skipan ráðuneytisstjóra Kærunefnd telur að ráðherra hafi vanmetið konu sem sótti um. DÓMSMÁL Tryggingastofnun ríkis- ins hefur óskað eftir að blaðið birti eftirfarandi fréttatilkynningu: „Á forsíðu Fréttablaðsins, 2. júní 2020, var því ranglega haldið fram að Sýslumaðurinn á höfuðborgar- svæðinu hafi sent Tryggingastofnun ríkisins (TR) kröfu um fjárnám í kjölfar kröfu tveggja öryrkja sem höfðu ekki fengið greidda dóm- sátt innan hefðbundins greiðslu- frests. TR hafi í kjölfar þess greitt umrædda dómsátt. Hið rétta er að engin slík krafa barst, eða mun berast til TR enda var málið afturkallað. Dómsátt var greidd út á miðvikudeginum 27. maí, 2020. Samkvæmt venju eru gefnir 15 dagar til greiðslu á dómsátt, en í þessu tilfelli liðu 11 virkir dagar umfram hefðbundinn greiðslufrest og harmar TR þá töf.“ Athugasemd ritstj. Fréttablaðið hefur fjárnámsboðun- ina undir höndum, útgefna og undir- ritaða af embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Uppgjör á grundvelli dómsáttar fór fram eftir að hún hafði verið gefin út. Enginn reki er gerður að því í tilkynningu TR að útskýra ástæðu þess að 11 virkir dagar liðu fram yfir greiðslufrestinn. Fréttablaðið stendur við fréttina. Segir frétt ranga KJARAMÁL Atkvæðagreiðsla Fé lags ís lenskra hjúkrunar fræðinga (FÍH) um boðun ótímabundins verkfalls hófst í gærkvöld. Kjara samningar hjúk r unar- fræðinga hafa verið lausir í rúmt ár en samningur sem gerður hafði verið var felldur í lok apríl. Samninga nefndir FÍH og ríkisins hafa fundað nokkuð stíft með ríkis- sátta semjara upp á síð kastið en lítið hefur þó þokað í við ræðunum. Atkvæðagreiðslunni, sem nær til rúmlega 2.500 hjúkrunarfræðinga, lýkur á föstudag. – okp Greiða atkvæði um verkfall 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.