Víkurfréttir - 07.05.2020, Page 10
Grindavíkurbær hefur ákveðið að
gefa öllum starfsmönnum bæjar-
ins tíu þúsund króna gjafabréf til
úttektar í fyrirtækjum í Grindavík.
Þetta var samþykkt í bæjarráði
5. maí.
Í bókuninni segir: „Í ljósi þeirrar
einstöku stöðu sem verið hefur að
undanförnu vegna kórónufarald-
ursins og framlags starfsmanna við
að leysa úr málefnum bæjarfélags-
ins í því sambandi, er lagt til að
veita starfsmönnum umbun í formi
gjafabréfs sem nýta má til úttektar
hjá fyrirtækjum heimamanna í
Grindavík.
Bæjarráð samþykkir að gefa starfs-
mönnum sem eru í starfi í maí 2020
10.000 kr. gjafabréf til nota í fyrir-
tækjum í Grindavík samkvæmt lista
sem samþykktur var á fundinum.“
Húllið er nýtt nafn á viðburðartorgi Grindvíkinga
Samþykkt hefur verið að viðburðartorg Grindvíkinga fái nafnið Húllið. Guðmundur Birkir
Agnarsson sendi inn tillöguna í nafnasamkeppni sem efnt var til. Heitið er sótt í hafsvæðið milli
Reykjaness og Eldeyjar. Röstin er í Húllinu og viðeigandi að viðburðir í Grindavík fari fram í
Röstinni eða Húllinu.
Ákveðið var um miðjan mars að efna til nafna-
samkeppni fyrir viðburðatorgið við Seljabót,
neðan við Kvikuna. Sem kunnugt er svæðið við-
burðasvæði Grindvíkinga og hefur verið það
síðan árið 2003 þegar teknir voru í notkun pallar
í brekkunni. Meðal viðburða sem fram hafa farið
á svæðinu eru Sjóarinn síkáti, hátíðarahöld í
tengslum við 17. júní, þrettándagleði auk fjölda
annarra viðburða.
Í dagskrá viðburða er reglulega vísað til „hátíðar-
svæðisins fyrir neðan Kvikuna“ eða „hátíðar-
svæðisins við Seljabót fyrir neðan Kvikuna“.
Hvort tveggja þykir langt og óþjált. Því var leitað
til bæjarbúa eftir hentugu heiti á þetta verðmæta
svæði sem er sameign okkar Grindvíkinga.
Farið var fram á að heitið sem valið yrði skyldi
sækja innblástur í sjósókn og sjávarútveg. Frí-
stunda- og menningarnefnd lagði til við bæjarráð
að viðburðatorgið neðan við Kvikuna verði nefnt
Húllið eftir að hafa farið vandlega yfir þær tillögur
sem bárust.
Guðmundur Birkir Agnarsson sendi inn til-
löguna varð fyrir valinu og mun hann fá afhenta
viðurkenningu fyrir frumlegt nafn á næstu
dögum.
Um leið og nefndin ásamt bæjarráði þakkar
fyrir þær 65 ólíku tillögur sem bárust frá enn
fleiri aðilum er Grindvíkingum óskað til hamingju
með nafnið á viðburðartorginu. Húllið mun án
efa áfram skapa jákvæðar og góðar minningar,
bæði Grindvíkinga og gesta nú, sem fyrr og til
framtíðar, segir á grindavik.is.
Starfsmenn Grindavíkurbæjar fá
tíu þúsund króna COVID-19-umbun
10 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.