Víkurfréttir - 07.05.2020, Qupperneq 62
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson, einn besti
körfuboltamaður landsins, er hvergi hættur
og skrifaði undir samning við uppeldisfélag sitt
nýlega. Logi veifaði samningnum með bros á
vör skömmu eftir undirritun þegar tíðinda-
maður Víkurfrétta hitti hann. Þetta er 24. árið
sem hann leikur í meistaraflokki en Logi lék í
áratug sem atvinnumaður erlendis. Kappinn
verður 39 ára gamall á þessu ári og vonast til
að ná samningi á næsta ári líka og leika þannig
40 ára í efstu deild á Íslandi.
„Maður er búinn að vera lengi í
þessu og ég verð að segja að það var
ansi sérstakt að þurfa að hætta leik
þegar úrslitakeppnin var handan
við hornið. Nú er ekkert annað að
gera en að horfa til næstu leiktíðar
og koma vel undirbúinn til leiks,“
sagði fyrirliðinn Logi Gunnarsson.
Njarðvík hefur að undanförnu
skrifaði undir samninga við fleiri
leikmenn í karla- og kvennaflokki.
Ólafur Helgi Jónsson er varafyrirliði
Njarðvíkurliðsins en hann hefur nú
sitt þrettánda leikár í úrvalsdeild. Þá
samdi Jón Arnór Sverrisson einnig
við félagið og þar áður framherjinn
Mario Matasovic svo Njarðvíkurlið
næstu leiktíðar er óðar að taka á sig
mynd. Í kvennaflokki skrifuðu Vil-
borg Jónsdóttir og Bryndís María
nýlega undir samninga við liðið.
39 ára gamall
Nokkrir Keflvíkingar
hittu á Loga þegar hann var
að koma úr undirrituninni á
dögunum. Í hópnum voru allt
Keflvíkingar, knattspyrnumenn og
körfuboltakappar,
f.v. Einar Orri Einarsson, Sævar
Sævarsson, Albert Óskarsson,
Davíð Þór Jónsson, Logi, Haraldur
Guðmundsson og Magnús Sverrir
Þorsteinsson. VF-mynd/pket
Logi og Ólafur Helgi Jónsson, varafyrirliði liðsins, með Kristínu
Örlygsdóttur, formanni deildarinnar, á parketinu í Ljónagryfjunni.
Logi mætir aftur á parketið
62 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.