Víkurfréttir - 07.05.2020, Side 69
„Við fluttum hingað öll fjölskyldan á sínum tíma,
við hjónin og dætur okkar, Bríet og Marín. Brí-
et, eldri dóttir okkar, býr hér í Balsta líka með
sænskum manni sínum og tveimur börnum.
Marín býr í Sydney í Ástralíu með sínum manni
og er í háskólanámi þar,“ segir Guðmundur þegar
hann er spurður út í fjölskylduhagi.
– Hvernig stóð á því að þú fluttir til
útlanda?
„Að mestu leyti fluttum við vegna krepp-
unnar 2008 og vegna sífellds óstöðug-
leika sem á sér stað í íslensku efnahagslífi.“
– Var erfið ákvörðun að söðla um og flytja í
annað land?
„Í sjálfu sér ekki svo erfið ákvörðun. Við fluttum
út án þess að hafa vinnu en ég fékk vinnu mjög
fljótt. Það tekur tíma að söðla um en það hjálpar
mikið að Svíþjóð er að mörgu leyti lík Íslandi og
flest virkar svipað.“
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Auðvitað saknar maður vina sinna, foreldra og
systur sem eru enn á Íslandi.“
– Er eitthvað framandi sem hefur komið þér
á óvart þar sem þú býrð núna?
„Eins og ég sagði þá er margt líkt með Íslandi og
Svíþjóð þannig að það er fátt sem kemur manni
á óvart hér. Matur, hefðir og fleira er mjög líkt“
– Hefurðu alltaf búið á sömu slóðum?
„Fyrstu sjö árin bjuggum við í Stokkhólmi en
keyptum okkur hús í Balsta rétt fyrir norðan
Stokkhólm fyrir þremur árum.“
– Hverjir eru helstu kostir þess að búa þar
sem þú býrð?
„Stærsti kosturinn er að búa nálægt dóttur okkar
og barnabörnum. Það er gott að hafa efnahags-
legan stöðugleika. Veðrið, sumarið er töluvert
lengra hér og hærri hiti. Stutt í að ferðast til Evr-
ópu og töluvert ódýrara.“
– Hvernig er hefðbundinn dagur í lífi þínu?
„Það er nú bara að dröslast á lappir snemma, um
hálf sjö og taka lestina til Stokkhólms í vinnuna.
Ég vinn á skrifstofu í miðbæ Stokkhólms. Ég er
yfirleitt komin heim um hálfsex. Á sumrin reyni
ég að spila golf eftir vinnu, fara í gönguferðir,
hringja í vini og þess háttar.“
– Líturðu björtum augum til sumarsins?
„Lít alltaf björtum augum til sumarsins.“
– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið
haft áhrif á þau?
„Já, enginn fótbolti sýndur þannig að það hefur
haft áhrif.“
Guðmundur Þórðarson býr í Svíþjóð í bænum Balsta fyrir norðan
Stokkhólm. Guðmundur vinnur sem kerfisstjóri hjá fyrirtæki sem
heitir Wallenberg Foundations og er staðsett í miðbæ Stokkhólms.
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR // 69