Víkurfréttir - 13.05.2020, Síða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Sterk efnahagsleg
staða Suðurnesjabæjar
„Framundan eru krefjandi tímar með miklum áskorunum í starfsemi og rekstri Suðurnesja
bæjar,“ segir í bókun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar vegna ársreiknings sveitarfélagsins
fyrir árið 2019. Reikningurinn nær yfir fyrsta heila starfsár Suðurnesjabæjar og var sam
þykkur samhljóða eftir síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku.
Í bókun bæjarstjórnar um ársreikn-
ing 2019 segir:
Ársreikningur 2019 nær yfir fyrsta
heila starfsár Suðurnesjabæjar.
Niðurstöður í rekstri málaflokka
var í góðu samræmi við fjárheim-
ildir og heildar niðurstöður nálægt
fjárhagsáætlun ársins. Bæjarstjórn
lýsir ánægju með þá niðurstöðu og
þakkar öllum stjórnendum sveitar-
félagsins fyrir þeirra framlag við
góðan rekstur. Sterk efnahagsleg
staða sveitarfélagsins birtist m.a. í því
að skuldaviðmið samkvæmt nýjum
viðmiðunarreglum í árslok 2019 er
66% og hefur lækkað frá fyrra ári.
Bæjarstjórn lýsir ánægju með þessa
niðurstöðu en samkvæmt fjár-
málareglum sveitarstjórnarlaga má
skuldaviðmið ekki vera yfir 150%.
Á árinu 2019 var haldið áfram því
verkefni að móta nýtt sveitarfélag og
því verkefni er ekki lokið. Starfsfólk
sveitarfélagsins hefur lagt af mörkum
mikla vinnu við þetta verkefni og
fyrir það þakkar bæjarstjórn. Jafn-
framt hafa fjölmargir aðrir aðilar
komið að þeirri vinnu og það er mat
bæjarstjórnar að vel hafi tekist til við
að leysa úr fjölmörgum og ólíkum
verkefnum í tengslum við mótun á
nýju sveitarfélagi.
Framundan eru krefjandi tímar
með miklum áskorunum í starf-
semi og rekstri Suðurnesjabæjar.
Það er markmið bæjarstjórnar að
Suðurnesjabær veiti íbúum sínum
sem mesta og besta þjónustu, þann-
ig að búsetuskilyrði í Suðurnesjabæ
verði áfram eins og best er á kosið.
Ársreikningur ársins 2019 felur í sér
sterka efnahagslega stöðu Suður-
nesjabæjar og á því mun bæjarstjórn
byggja til framtíðar.
Íbúafundur
um aðgerðir í
atvinnumálum
Íbúafundur um aðgerðir í atvinnu-
málum verður haldinn í Reykja-
nesbæ fimmtudaginn 14. maí kl.
17:30. Fundurinn verður sendur
út beint í streymi á Facebook-síðu
Reykjanesbæjar: www.facebook.
com/reykjanesbaer.is/
Íbúar geta tekið þátt í fundinum
og sent inn spurningar á póstfangið
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
Starfsfólk Reykjanesbæjar hefur
undanfarna daga og vikur verið að
kortleggja og greina möguleika á
fjölgun atvinnutækifæra á svæðinu,
meðal annars í gegnum þau úrræði
sem ríkisstjórnin hefur kynnt. Þau
verkefni sem þegar eru á teikniborð-
inu verða kynnt á íbúafundinum á
netinu.
Upptaka af fundinum verður síðan
aðgengileg á sömu síðu fyrir þá sem
ekki geta fylgst með streyminu beint.
Almennar umræður um hátíðar-
höld 17. júní og Fjölskyldudaga
2020 fóru fram í frístunda- og
menningarnefnd Sveitarfélagsins
Voga á síðasta fundi ráðsins.
Nefnd ræddi á fundinum hvort og
þá með hvaða hætti viðburðir sum-
arsins verði haldnir. Ljóst er að við-
burðir verða ekki haldnir með sama
hætti og undanfarin ár. Sveitarfélög
eru að leita nýrra leiða til að gera
daginn hátíðlegan og mun Sveitar-
félagið Vogar horfa til þess hvort
eitthvað slíkt verði gert og hlýða
öllum ábendingum og fyrirmælum
almannavarna.
Hátíðarhöld með
breyttu sniði í
Vogum
Frá bæjarstjórnarfundi í
Suðurnesjabæ nýlega.
2 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.