Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 55

Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 55
Störf í boði hjá Reykjanesbæ Heiðarsel – Deildarstjóri Heiðarsel – Leikskólakennari Holtaskóli – Starfsmaður á bókasafn Holt – Deildarstjóri Tjarnarsel – Deildarstjóri Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum. Fjö lsky ldan var á le ið inn i í he imsókn Karen var farin að hlakka til að fá foreldra sína í heimsókn um páskana en þau eiga enn eftir að koma í heim- sókn til hennar og Stefáns frá því að þau fluttu til Danmerkur. – Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn? „Púha! Ég er nú ein af þeim sem hef samt sem áður verið frekar heppin. Í fyrsta lagi átti ég von á að fá pabba, mömmu og bróðir minn í heimsókn um páskana. Við höfum búið hérna síðan 2016 og þetta hefði orðið fyrsta heimsókn for- eldra minna, ásamt því að ég hafi ekki hitt þau í tvö ár. Einnig áttum við að hitta þau í Frakklandi í ágúst, þar sem pabbi átti að fara að keppa í golfi og við því að ætluðum keyra þangað – en þeirri ferð var aflýst. Ég var komin vel af stað í að kenna hóptíma, sem ég var búin að byggja upp hægt og rólega af þátttakendum, og var bara búin að kenna í fyrsta sinn tvo danstíma. Þannig að því leyti þarf ég nánast að byrja upp á nýtt. Við eigum ferð heim um jólin, sjáum til hvernig það fer. Einnig var ég farin að skoða aðrar vinnur en er heppin að geta enn tekið vaktir á elliheimilinu.“ – Hvernig hefur COVID-19 verið að hafa áhrif þar sem þú býrð? „Við erum á einu af þeirra svæða í Danmörku þar sem fá tilfelli hafa verið en sömu reglur gilda þó í öllu landinu. Það helsta sem gerðist hjá okkur var að landamærin lokuðu. Við höfum ekki verslað þar í tvo mánuði en vorum vön að gera það þrisvar, fjórum sinnum í mánuði.“ – Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst? „Tilveran hefur heilt litið yfir verið fín þar sem við höfum ekki beint misst innkomu, nema hóptíma mína en þá hef ég verið að taka vaktir meira á elliheimilinu í stað- inn. Golfvöllurinn lokaði hins vegar í tólf daga í mars/apríl sem var akk- úrat þegar byrjaði að vora og golfið hefði verið byrjað á fullt. Nú vinn ég á elliheimilinu með plasthlíf fyrir andlitinu. Lokun landamæranna, að fara ekki í heim- sóknir eða fá heimsóknir og svo að komast ekki í ræktina eru auðvitað stærstu breytingarnar.“ Óhrædd v ið að reyna ný ja h lut i Í upphafi sagði Karen að hafi þau ekkert verið búin að ákveða hvort þau ætluðu að búa stutt, lengi eða alla ævi erlendis en aðspurð um hvort þau reikni núna með því að ílengjast eða hvort þau stefni heim segir Karen erfitt að segja, að fátt hafi í raun breyst. „Þó tel ég meiri líkur en minni á að við munum vera lengi búsett erlendis.“ – Er eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum? „Að flytja til útlanda fær mann til að læra betur á sjálfa sig. Ég prófaði t.d. í fyrsta sinn að vera með uppistand eftir að ég flutti út. Núna hef ég gert það þrisvar sinnum, alltaf á íslensku. Mér finnst ég líka hafi samið betri ljóð eftir flutninginn út en ég hef samið í nánast tvo áratugi. Það brjótast öðruvísi tilfinningar út þegar maður hefur prófað búsetu erlendis og þannig verða oft góð ljóð til. Svo hef ég farið í grunnnám í einka- þjálfun hérna í Danmörku og öðlast réttindi hóptímakennara en ég hef ekki náð að halda áfram með námið því ég hef ekki ennþá náð fullum vinnusamningi við ræktarstöð. Þetta eru hlutir sem breyttust hjá mér, því þetta hafði ég aldrei gert á Íslandi áður.“ Hér kyssast hjónin yfir landamæri Danmerkur og Þýskalands. Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.