Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 57

Víkurfréttir - 13.05.2020, Qupperneq 57
Íslandsmót og Mjólkurbikar kvenna Íslandsmót í 1. deild kvenna hefst 18. júní en Keflavík leikur á útivelli í tveimur fyrstu umferðunum, fyrst leika Keflavíkurstúlkur gegn Völ- sungi á Húsavík þann 20. júní og þann 26. júní fara þær til Sauðár- króks og leika gegn Tindastóli. Grindavíkurstúlkur féllu í fyrra og leika í 2. deild, þær heimsækja Hamrana á Akureyri í fyrstu umferð þann 21. júní. Mjólkurbikar kvenna Keppni í Mjólkurbikar kvenna hefst þann 7. júní. Í fyrstu umferð leika Grindavíkurstúlkur gegn Fram á útivelli og fer sá leikur fram þann 8. júní. Keflavík situr hjá í fyrstu umferð og mætir sigurvegara úr leik Aftureldingar og HK á Nettó- vellinum þann 14. júní. AUGLÝSING UM TILLÖGU AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI LÓÐAR STOFNFISKS VIÐ VOGAVÍK Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 29. apríl 2020 að auglýsa tillögu að breytingu á deili- skipulagi lóðar Stofnfisks við Vogavík, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í breytingunni felst að byggingarreitur D færist frá því að vera í norðaustur horninu á lóðinni í suðvestur hornið), ásamt að bílastæði færast til og þeim fækkar. Áður var gert ráð fyrir skrifstofu- og rannsóknabyggingu (eða öðr- um byggingum sem þjóna starfsemi svæðisins) en eftir breytingu er gert ráð fyrir seiða- og skrifstofubyggingu (eða öðrum byggingum sem þjóna starfsemi svæðisins. Byggingarmagn reitsins er aukið í 5.000 m² úr 2.000 m² og hámarkshæð seiða- og skrifstofubyggingar verður 10,0 m. Bygg- ingarreitur A (kerskýli, eldishús, eldisker og önnur mannvirki tengd fiskeldi og fiskvinnslu) minnkar vegna færslu byggingarreits D og bílastæða ásamt nýju aðkomusvæði. Byggingarreitur B (kerskýli, eldishús, eldisker og önnur mannvirki tengd fiskeldi og fiskvinnslu) stækkar yfir það svæði þar sem byggingarreitur D var fyrir breytingu. Bætt er við upplýsingum um þær byggingar sem byggðar hafa verið frá því deiliskipulagið öðlaðist gildi. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með miðvikudeginum 13. maí 2020 til og með miðvikudags- ins 24. júní 2020. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/ Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en miðvikudaginn 24. júní 2020. Vogum, 13. maí 2020 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri AUGLÝSING TILLÖGU AÐ BREYT- INGU Á AÐALSKIPULAGI SVEITAR- FÉLAGSINS VOGA 2008–2028 OG TILLÖGU AÐ DEILISKIPULAGI ÁSAMT UMHVERFISSKÝRSLU VEGNA NÝS VATNSBÓLS Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í breyttri staðsetningu á fyrirhuguðu vatnsbóli þéttbýlisins í Vogum (VB-2). Jafnframt er auglýst tillaga að deiliskipulag vegna nýs vatnsbóls ásamt umhverfisskýrslu skv. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillögurnar eru settar fram á uppdráttum og greinargerð ásamt umhverfis- skýrslu og vísast til þeirra um nánari upplýsingar. Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með miðvikudeginum 13. maí 2020 til og með miðvikudags- ins 24. júní 2020. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi liggur einnig frammi hjá Skipulagsstofnun að Borgartúni 7b, Reykjavík. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/is/thjonusta/ skipulag/skipulag-i-kynningu Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en miðvikudaginn 24. júní 2020. Vogum, 13. maí 2020 f.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Grindverk ehf. styrkir Þrótt frá Vogum „Okkur fannst tilvalið að hvetja Þróttara til frekari dáða í knattspyrnunni,“ segir Sigurður Garðar frá Grindverki en þeir styrkja nú Þróttara frá Vogum og hafa síðustu mánuði unnið að hinum ýmsu verkefnum í Vogum. „Þróttarar frá Vogum hafa verið að gera það gott undanfarin ár í boltanum. Það er mikið afrek að reka öflugt íþróttastarf í svona litlu bæjarfélagi. Ég þekki það hvaða þýðingu það hefur fyrir Vogabúa og bæjarsálina að eiga félag sem nær árangri, komandi frá Vogum,“ en Sigurður Garðar (Bói) ólst upp á Minna Knarrarnesi. „Verkefnin í Vogum hafa gengið vel og bæjarbúar hafa tekið vel á móti okkur. Okkur fannst því tilvalið að hvetja Þróttara til frekari dáða í knatt- spyrnunni.“ Natasha Moraa Anasi, fyrirliði Keflavíkur, fékk íslenskan ríkisborgararétt í vetur og var valin í íslenska landsliðið í fyrsta sinn fyrir æfingamót sem fram fór á Spáni í mars. VF-mynd: Hilmar Bragi VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 57

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.