Fréttablaðið - 06.06.2020, Side 8
Allt í einu hefur
þetta breyst í
einhverja martröð.
Elísabet Agnarsdóttir, eigandi
ferðaskrifstofunnar Tripical
Tvö lán hvíla á ellefu
flugvélum í eigu Icelandair
en lánin hljóða samtals upp
á 13 milljarða.
Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn fimmtudaginn
2. mars 2017 kl. 16.00 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura Víkingasal.
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Að loknum aðalfundarstörfum mun Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH kynna
áfangana í Hringbrautarverkefninu og Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt hjá hönnunarteyminu
Corpus3 segja frá hönnun meðferðarkjarna nýbygginga Landspítala við Hringbraut.
Lokaorð flytur Nichole Leigh Mosty alþingismaður og formaður velferðarnefndar Alþingis.
Stjórnin.
„Spítalinn okkar“
A Ð A L F U N D U R
Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn á Nauthóli,
Nauthólsvík þriðjudaginn 9. júní 2020, kl. 16.00.
DAGSKRÁ
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
Að loknum aðalfundarstörfum verða áhugaverð erindi:
Skyggnst inn í nýjan meðferðarkjarna Landspítala:
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt
Hlutverk meðferðarkjarna á tímum farsótta:
Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdóma Landspítala
Lokaorð flytur María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Tækninýjungar og framtíðarsýn í heilbrigðismálum.
Allir velkomnir
Stjórn „Spítalans okkar“
FLUGMÁL Sjö af ellefu Icelandair
þotum sem skráðar hafa verið eign
félagsins Airco ehf., þrátt fyrir að
því félagi hafi verið slitið 19. des
ember í fyrra, hafa nú verið f luttar
yfir á nafn Icelandair í loftfaraskrá
Samgöngustofu.
Haft var eftir Ásdísi Ýr Péturs
dóttur, upplýsingafulltrúa Ice
landair, í Fréttablaðinu 28. maí síð
astliðinn að Icelandair hefði staðið
skil á öllum gögnum til Sam
göngustofu. „Það sem út af stend
ur eru ákveðnar staðfestingar
erlendis frá sem von er á á næstu
dögum,“ bætti upplýsingafulltrúinn
þó við.
Samkvæmt veðbókarvottorðum
áðurnefndra ellefu f lugvéla hvíla
á þeim tvö lán upp á samtals jafn
virði rúmlega þrettán milljarða
króna. Fimm þotur eru veðsettar
fyrir 35,1 milljón dollara og á sex
þotum hvílir 65,2 milljóna dollara
lán. Bæði eru lánin tekin á síðasta
ári. Lægra lánið er frá 20. júní og
hærra lánið var gefið út daginn fyrir
gamlársdag í fyrra. Lánveitandinn í
báðum tilvikum er CIT Bank sem er
með höfuðstöðvar í Pasadena í Kali
forníu. – gar
Þotur Icleandair settar að
veði fyrir 13 milljörðum
Icelandair veðsetti þotur fyrir erlendum lánum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI „Heimsfaraldurinn hefur
snert okkur mjög illa. Við höfum
borgað öllum okkar samstarfs
aðilum en fáum ekki krónu endur
greidda frá erlendum hótelum eða
f lugfélögum. Ef við endurgreiðum
allt þá fellur fyrirtækið,“ segir Elísa
bet Agnarsdóttir, eigandi ferðaskrif
stofunnar Tripical. Hún stendur nú
frammi fyrir því að þurfa að endur
greiða þeim rúmlega 650 útskriftar
nemum sem eiga pantaða ferð hjá
Tripical á næstu dögum og vikum,
það mun setja fyrirtækið í þrot og
falla þá niður ferðir hjá þeim rúm
lega tvö þúsund manns sem eiga
pantaða ferð síðar.
„Ég hef verið með lögmenn í
margar vikur til að fá endurgreiðsl
ur erlendis. Það vill enginn endur
greiða okkur. Þetta er vonlaust
dæmi.“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa
dóttir, ráðherra ferðamála, til
kynnti á fimmtudag að hún gerði
ekki ráð fyrir að frumvarp hennar
um inneignarnótur frá ferðaskrif
stofum yrði afgreitt frá Alþingi, en
með því hefði skyldu ferðaskrifstofa
til að endurgreiða ferðir að fullu
verið aflétt. Ein af ástæðunum væri
að lönd væru að opna landamæri
sín mun fyrr en áður var talið. „Við
vorum búin að bíða eftir þessum
lögum í þrjá mánuði,“ segir Elísa
bet. „Ef þau hefðu orðið að veruleika
þá gætum við notað þær inneignir
sem við eigum úti og reynt að snúa
bátnum.“
Elísabet gagnrýnir stjórnvöld
harðlega. „Ríkið hefur valdið okkur
miklu tjóni, ríkisstjórnin lætur
okkur bíða og á meðan getum við
engu svarað. Við sitjum uppi með
gríðarlegan kostnað á meðan ekk
ert kemur inn og við getum ekk
ert gert,“ segir hún. „Við erum sex
manna fyrirtæki sem hefur gengið
vel, við höfum ekki verið að greiða
neinn arð og álagningin er í lág
marki. Allt í einu hefur þetta breyst
í einhverja martröð.“
Hún hefði viljað að ríkið aðstoð
aði ferðaskrifstofur þegar verið væri
að hvetja landsmenn til að af bóka
ferðir. „Sóttvarnalæknir hefur vald
ið okkur miklu tjóni, hann hefur
tvisvar sagt Íslendingum að ferðast
bara innanlands á þessu ári. Nú er
verið að opna landamæri Íslands og
í öðrum löndum Evrópu og treyst á
að ferðamannaiðnaðurinn vakni til
lífsins. Það er því talað í kross sem
veldur óvissu og misskilningi bæði
hjá okkur og ferðamönnum,“ segir
Elísabet.
Eina leiðin núna til að endur
greiða sé að fara með fyrirtækið í
þrot. „Við erum 100 prósent tryggð.
Tryggingakerfið virkar þannig að
eina leiðin til að virkja það er að
fyrirtækið fari í þrot. Það getur
tekið allt að tvö ár og myndum við
því telja að það væri betra fyrir
neytendur að fá inneignarnótur.“
Á fimmtudaginn var greint frá
því að útskriftarnemar við Mennta
skólann á Akureyri væru mjög reið
ir yfir því að fá ekki endurgreiddar
alls 40 milljónir króna vegna ferðar
til Ítalíu sem bókuð er á mánudag
inn. Ekki stendur til að endurgreiða
ferðina. „Við getum efnt þessa ferð.
Við getum líka boðið þeim ferð til
Krítar, Krít hefur komið mjög vel
út úr faraldrinum, mun betur en
Ísland. Það þarf heldur enginn að
fara í sóttkví, hvorki þar né hér.“
Telur hún að Tripical hafi teygt
sig eins langt og hægt sé. „Við getum
boðið þeim allt nema endurgreiðslu
þar sem við höfum nú þegar greitt
okkar samstarfsaðilum erlendis.
Inneign í fjögur ár sem þau geta
framselt án kostnaðar eða fært
ferð sína eftir þeirra óskum. Við
höfum boðið útskriftarhópunum
upp á ferðir innanlands í takt við
ráðleggingar og ábendingar frá for
eldrum. Costa del Hella, f lott fimm
daga prógramm með hótelgistingu,
afþreyingu og skemmtun. Nemarn
ir myndu þá fá inneign fyrir afgang
inum sem þeir geta notað síðar eða
framselt.“
Elísabet vísar því á bug að erfitt
sé að ná sambandi við Tripical. „Við
erum að svara í símann og svörum
öllum tölvupóstum eins f ljótt og
auðið er. Vandinn er sá að ástand
heimsfaraldursins breytist dag frá
degi og það sem við skrifum í pósti
stenst kannski ekki daginn eftir,“
segir Elísabet. „Við erum nú með tvo
lögmenn í fullri vinnu við að verja
okkur. Okkur berast lögfræðibréf
daglega.“
Margir eru reiðir yfir að fá ekki
ferðirnar endurgreiddar. „Við höfum
fullan skilning á því að margir séu
reiðir og ósáttir við stöðuna. Okkur
hefur því miður verið hótað. Það
er hótað að koma heim til mín.
Starfsfólkið tekur þetta nærri sér,
enda höfum við alltaf staðið við
okkar skuldbindingar hingað til,“
segir Elísabet. Hún hefur þó fullan
skilning á því að fólk vilji fá endur
greitt. „Ég skil það fullkomlega, en
þetta er vonlaus og erfið staða sem
við erum í.“ arib@frettabladid.is
Endurgreiðslur setji Tripical í þrot
Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical segir að fyrirtækið fari í þrot ef útskriftarnemar sem eiga pantaða ferð til Ítalíu fá endurgreitt.
Hún segir starfsfólk fá hótanir og gagnrýnir stjórnvöld harðlega. Staðan sé erfið þar sem engar endurgreiðslur berist fyrirtækinu.
Elísabet segir að hótanir berist sér og starfsmönnum Tripical. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð