Fréttablaðið - 06.06.2020, Qupperneq 12
SAMFÉLAG „Þetta lítur betur út
núna. Svíþjóð valdi eins og Ísland
þá leið að loka ekki samfélaginu
og það var til dæmis ekki gripið til
útgöngubanns. Á Íslandi var auð-
vitað ráðist í umfangsmikla skimun
fyrir veirunni sem var ekki gert í
Svíþjóð,“ segir Håkan Juholt, sendi-
herra Svíþjóðar á Íslandi.
Í gær var tilkynnt um 77 dauðs-
föll í Svíþjóð af völdum COVID-19
en alls hafa rúmlega 4.600 látist og
heildarfjöldi smitaðra er kominn
upp í tæplega 43 þúsund. Á blaða-
mannafundi sænskra heilbrigðis-
yfirvalda í gær kom fram að meðal-
tal síðustu daga sýni að faraldurinn
sé á hægri en öruggri niðurleið.
„Stóru mistökin voru þau að ná
ekki að vernda aldraða á hjúkr-
unarheimilum en smit kom upp
á mörgum þeirra. Nú er rætt um
ástæðurnar og hver beri ábyrgðina.
Það mun taka einhvern tíma að fara
yfir þau mál,“ segir Håkan.
Sendiherrann hefur verið tíður
viðmælandi sænskra f jölmiðla
undanfarnar vikur um ástandið á
Íslandi. „Okkur Svíum þykir mikið
til árangurs Íslands koma og hversu
vel yfirvöld voru undirbúin. Það er
talað mikið um þetta í Svíþjóð og
hvað við getum lært af Íslendingum.“
Håkan segist búast við að sumar-
ið verði með líku sniði í Svíþjóð og á
Íslandi. Sænsk stjórnvöld tilkynntu
í fyrradag að frá og með 13. júní
yrði dregið úr ferðatakmörkunum
innan lands. Fólk verði engu að
síður að sýna ábyrgð og ekki ferðast
nema það sé einkennalaust.
„Flestir munu velja að vera heima
og ferðast innanlands eins og ég
held að raunin verði á Íslandi. Það
munu koma færri ferðamenn en
landið verður jafn fagurt og áður.“
Svíar halda í dag upp á þjóð-
hátíðardag sinn en vegna ástands-
ins verða hátíðarhöld með breyttu
sniði. Sendiráðið á Íslandi ætlar að
halda uppteknum hætti og efnir til
rafrænnar hátíðar en undanfarið
hafa viðburðir verið rafrænir.
„Eftir því sem ég veit best hefur
ekkert sendiráð Svíþjóðar nokkurs
staðar eða nokkurn tímann haldið
svona upp á þjóðhátíðardaginn.
Við viljum hafa þetta notalega og
skemmtilega dagskrá um Svíþjóð
og Ísland.“
Útsendingin frá hátíðinni hefst
klukkan 17 í dag á Facebook-síðu
sendiráðsins. Bogi Ágústsson frétta-
maður mun stýra dagskránni en
fjöldi gesta kemur fram.
Håkan segir að ólíkt f lestum
löndum haldi Svíar ekki upp á þjóð-
hátíðardaginn til að fagna sjálfstæði
eða lokum stríðs. Raunar þekki fáir
Svíar þá sögulegu atburði sem tengj-
ast 6. júní sem eru krýning Gústafs
Vasa árið 1523 og breytingar á 19.
öld sem drógu úr valdi konungs.
„Svíar fara ekki út með fánana til
að fagna þessum atburðum. Þess
vegna fögnum við í staðinn því sem
Svíþjóð er. Lýðræðinu, okkar góðu
nágrönnum, Abba, Spotify, Volvo
og Avicii.“
Þriggja ára skipunartíma Håkans
lýkur í byrjun september. Hann
mun starfa áfram fyrir Svíþjóð á
einhvern hátt en hvar liggur ekki
enn fyrir.
Spurður út tíma sinn á Íslandi
segir hann að hægt væri að skrifa
heila bók um hann.
„Markmið mitt var að auka
tengslin og búa til nýja þræði milli
landanna. Ég held að okkur hafi
tekist það vel. Við höfum fundið
fyrir miklum áhuga Íslendinga á
auknum tengslum við Svíþjóð en
annars hefði þetta ekki verið mögu-
legt.“ sighvatur@frettabladid.is
Árangur Íslands umtalaður í Svíþjóð
Sænski sendiherrann á Íslandi segir ástandið í Svíþjóð vera að batna. Stóru mistökin hafi verið að vernda ekki aldraða á hjúkrunar-
heimilum. Sendiherrann, sem yfirgefur Ísland í haust, stendur í dag fyrir rafrænum hátíðarhöldum vegna þjóðhátíðardags Svía.
Slakað verður á ferðatakmörkunum vegna COVID-19 faraldursins innanlands í Svíþjóð um næstu helgi. MYND/EPA
STJÓRNMÁL Mótmælaaldan sem
hefur riðið yfir Bandaríkin hefur
orðið til þess að öryggisverðir Hvíta
hússins hafa víggirt aðsetur for-
setans. Trump steig hins vegar út
fyrir girðinguna í gær og ræddi við
blaðamenn. Þar sagðist hann von-
ast til þess að George Floyd sem lést
eftir ofbeldi af hálfu lögreglumanns
liti niður frá himnum og sæi hversu
frábær dagur þetta væri fyrir Banda-
ríkin.
Aðaláherslan í máli Trumps var
hins vegar að fagna því að farið væri
að rofa til í efnahagsmálum eftir erf-
iða daga í kórónaveirufaraldrinum
og að atvinnuleysi færi minnkandi.
„Lögreglan á að koma fram við
borgara landsins á sama hátt í
aðgerðum sínum óháð kynþætti,
litarhætti, kyni eða stöðu. Það verða
allir að njóta sanngirni þegar lög-
reglan er að beita valdi sínu. Þetta
má ekki gerast aftur. Vonandi er
George að horfa niður til okkar og
lítur það sömu augum og við, að
ástandið horfi til betri vegar og það
séu frábærir hlutir að gerast á banda-
rískri grundu.“
Þá gaf hann sér einnig tíma til þess
að hrósa og þakka lögreglumönnum
fyrir þeirra störf á erfiðum og við-
sjárverðum tímum.
Atburðir síðustu daga hafa vakið
hörð viðbrögð en stór fyrirtæki,
framámenn í viðskiptalífinu og
íþróttum hafa á einn eða annan hátt
stutt baráttu þeldökkra fyrir rétt-
inum til að fá líf sitt metið að sömu
verðleikum og annarra. Þannig sagði
NFL-leikmaðurinn Drew Breesp í
gær að leikmenn deildarinnar yrðu
að gera meira en að tala um hlutina
og láta verkin tala.
„Núna verðum við að taka á
þessu vandamáli með raunveruleg-
um aðgerðum í stað þess að koma
með endurteknar yfirlýsingar um
að eitthvað verði að gera. Þegar
samfélag þeldökkra ræðir um þær
þjáningar sem þeir þurfa að þola
þurfum við virkilega að hlusta og
gera eitthvað,“ segir Breesp en hann
og kollegar hans í deildinni sem og
annars staðar í íþróttaheiminum
hafa mótmælt birtingarmynd kyn-
þáttafordóma sem lögregluof beldi
í garð þeldökkra er með því að
krjúpa á annað hnéð við ýmiss
konar aðstæður. – hó
Bandaríkjaforseti segir
landið vera að rísa aftur
Trump kom út úr víggirtu Hvíta húsinu til að tala við blaðamenn. MYND/AFP
Eftir því sem ég veit
best hefur ekkert
sendiráð Svíþjóðar nokkurs
staðar eða nokkurn tímann
haldið svona
upp á þjóð-
hátíðardag-
inn.
Håkan Juholt,
sendiherra
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð