Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 23
manni að skerpa fókus, sem er held-
ur betur gott þegar við reynum að
stilla hugann.“
Nú á sunnudaginn stendur
Kamilla fyrir viðburði í Ljós-
heimum sem hún kallar KakóRó
og segir hún viðburðinn vera fyrir
alla þá sem vilja fá smá ró í líf sitt og
prófa eitthvað nýtt. „Þetta er bæði
fyrir byrjendur og þá sem iðka hug-
leiðslu, jóga eða hvers konar sjálfs-
vinnu. Ég held reglulega viðburði
fyrir fólk til að njóta hvíldar og hlúa
að sér.“
Kamilla hefur staðið fyrir slíkum
viðburðum undanfarin fjögur ár og
segir þá breytast eftir því sem hún
sjálf læri meira. „Kakóið hefur þó
VIÐ ERUM Í RAUN BARA
GANGANDI VATNSPOKAR
ENDA UM 70 PRÓSENT
VATN OG ÞVÍ GETUR
HLJÓÐ HAFT MIKIL ÁHRIF
Á OKKUR.
Heilnæmt kakóið fær Kamilla alla leið frá Gvatemala. MYND/AÐSEND
tónar, hljóð og tónlist notuð til að
bæta líkamlega og andlega heilsu
og vellíðan. „Við þekkjum það lík-
lega öll að tónlist getur haft mikil
tilfinningaleg áhrif á okkur, fengið
okkur til að gráta eða vilja dansa.
Hún er einfaldlega það kraftmikil
og tónheilun er ekki ný af nálinni,
en bæði Grikkir og Egyptar til forna
notuðu tónheilun sérstaklega til að
kanna andlegar víddir og komast
nær sjálfinu. Jógar og ýmsir and-
legir iðkendur hafa svo ómað og
kyrjað um aldir alda, til að róa og
hreinsa hugann.
Hljóð eða tíðni hafa áhrif á efni,
sér í lagi vatn. Við erum í raun bara
gangandi vatnspokar, enda um 70
prósent vatn og því getur hljóð haft
mikil áhrif á okkur. Fólk finnur
virkilega fyrir hljóðunum sem
notuð eru í hljóðbaði um allan lík-
amann. Rannsóknir sýna til dæmis
fram á að tónlist og tónheilun geta
styrkt ónæmiskerfið, dregið úr
streitu og bætt svefn.“
En hvað er hljóðbað?
„Í hljóðbaði skapa ég hljóðheim
með aðstoð kristalsskála, gongs og
fleiri hljóðgjafa til að hjálpa fólki að
slaka á, njóta hvíldar og tengja sig
inn á við. Svo nota ég hreint kakó
frá Gvatemala, öndunaræfingar og
ýmislegt, til að gera fólki kleift að
gefa eftir inn í slökunina. Hver og
einn liggur á sinni dýnu, undir teppi
og hefur tækifæri til að núllstilla sig
og finna fyrir friðsæld. Hljóðböð
eru mjög róandi. Alla vega þau sem
ég geri,“ segir Kamilla í léttum tón.
Kakó er flóknasta baun jarðar
Kakódrykkja hefur verið vinsæl í
tengslum við ýmiss konar slökun
og áhrif þess dásömuð, og er þá
um að ræða hreint kakó, en eins og
fyrr segir notar Kamilla kakó frá
Gvatemala. „Um er að ræða hreinan
kakómassa sem er eins lítið unn-
inn og mögulegt er, til að viðhalda
næringarefnum og virkum efnum.
Kakóbaunin er einhver f lóknasta
baun sem vex á jörðinni, er blóð-
flæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif
á úthald og orku, minnkar bólgur,
ýtir undir framleiðslu á gleðiboð-
efninu serótónín, lækkar streitu-
hormónið kortisól og örvar vel-
líðunarstöðvar í heilanum og
framleiðslu á endorfíni.
Að auki inniheldur það króm,
theobromine, mangan, sink, kopar,
járn, C-vítamín, omega-6 fitusýrur
og trýptófan, svo eitthvað sé nefnt
af þeim fjölmörgu efnum sem
kakóið inniheldur,“ segir Kamilla og
heldur áfram; „Í menningu Maya-
fólksins í Mið-Ameríku hefur kakó
og kakóplantan gegnt veigamiklu
hlutverki í árþúsundir og hlotið
nafnbótina fæða guðanna. Það má
rekja kakódrykkju 4.200 ár aftur
í tímann og því tími til kominn
að þessi dásemdardrykkur rati til
Íslands.“
Dásamleg viðbót
Kamilla er sannfærð um áhrifamátt
kakósins og er viss um að það hjálpi
til við slökun líkamans. „Það er stút-
fullt af magnesíum og það er bara
þannig að áður en hugurinn getur
farið að slaka á, verður líkaminn að
geta slakað á. Kakóið er til dæmis
dásamleg viðbót við hugleiðslu þar
sem það inniheldur efni sem hjálpa
alltaf verið rauður þráður í því sem
ég geri. Svo er ég líka með hlaðvarp
með vinkonu minni sem heitir
Leiðin að sjálfinu og þar ræðum við
alls kyns andleg viðfangsefni eins
og heilun og kakó. Það má finna á
Spotify og Apple Podcasts.“
Eins og fyrr segir fer KakóRó
fram í Ljósheimum, sem er andleg
miðstöð í Borgartúni 3. „Þar er hægt
að iðka jóga, fara í hljóðbað, kaupa
kristalla, fara í heilun og nudd. Ljós-
heimar eru sannkölluð vin í Borgar-
túninu,“ segir Kamilla að lokum.
Allar upplýsingar um viðburði
Kamillu má finna á kako.is og frek-
ari upplýsingar um starfsemi í Ljós-
heimum má finna á ljosheimar.is.
Styrktarsjóður Lyfju hefur opnað fyrir
umsóknir. Markmið sjóðsins er að veita
styrki til heilsueflandi verkefna sem stuðla
að auknum lífsgæðum landsmanna eða
hafa forvarnargildi.
Við hvetjum alla áhugasama
aðila að sækja um á lyfja.is/styrkir
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2020.
Verslanir Lyfju eru um allt land - lyfja.is
Aukin lífsgæði
– lengra líf
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23L A U G A R D A G U R 6 . J Ú N Í 2 0 2 0