Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 35

Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 35
 Laus staða málstjóra á fjölskyldusviði Undir fjölskyldusvið heyra félagsþjónusta, málefni aldraðra, málefni fatlaðra, æskulýðsmál, forvarnarmál, leik-, grunn- og tónlistarskóli og íþrótta- og tómstundamál. Markmið sviðsins er meðal annars að stuðla að farsæld barna í barnvænu, heilsueflandi og valdeflandi samfélagi. Málstjóri sér um að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu við hæfi og stýrir þróunarverkefni um samþættingu skóla og velferðarþjónustu í anda snemmtækrar íhlutunar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjölskyldusviðs og er starfið laust frá 1. ágúst n.k. Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar- félaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veitir Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sími 433-7100. Helstu verkefni og ábyrgð: • Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns samkvæmt óskum foreldra, skóla og/eða barns • • Aðstoðar við að tryggja aðgang að mati og/eða greiningu á þörfum barns Ber ábyrgð á og leiðir stuðningsteymi og gerð stuðningsáætlunar • Fylgir því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við stuðningsáætlun • Veitir þeim sem sitja í stuðningsteymi ráðgjöf og upplýsingar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barns Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem kennslufræði, þroskaþjálfafræði, félagsráðgjöf eða sálfræði • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg • Reynsla af starfsemi skóla-og/eða félagsþjónustu æskileg • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum Umsóknarfrestur er til og með 22. júní n.k. borgarbyggd.is Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) Umsóknarfrestur: 21. júní 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör taka mið af kjarasamningi BHM við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum um stjórn sveitarfélagsins ræður sveitarstjórn sviðsstjóra. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Húnaþing vestra auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Sviðsstjóri heyrir beint undir sveitarstjóra og er staðgengill hans. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og aðlögunarhæfni að síbreytilegum aðstæðum og fjölbreyttum verkefnum. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í liði, ásamt því að vera sjálfstæður í starfi. Viðkomandi þarf að vera skipulagður og hafa gott vald á íslenskri tungu. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg • Reynsla af rekstri og stjórnun • Leiðtogahæfileikar • Frumkvæði og skipulagshæfileikar • Reynsla af opinberri stjórnsýslu • Góð færni í mannlegum samskiptum • Gott vald á íslensku í ræðu og riti • Hreint sakavottorð • Yfirmaður fjármála- og stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins • Staðgengill sveitarstjóra • Umsýsla fundarboða, fundargerða og afgreiðsla erinda byggðarráðs og sveitarstjórnar • Daglegur rekstur skrifstofu sveitarfélagsins • Ábyrgð á uppfærslum á samþykktum, reglum og gjaldskrám sveitarfélagsins • Fjármálastjórnun og úrvinnsla fjárhagsupplýsinga • Ábyrgð á fjárhagsáætlanagerð og vinnu við ársreikninga • Umsjón með menningar- og atvinnumálum í samstarfi við sveitarstjóra Sveitarfélagið var stofnað árið 1998 við sameiningu hinna sjö gömlu hreppa Vestur-Húnavatnssýslu og árið 2012 stækkaði það með sameiningu þess við fyrrum Bæjarhrepp í Strandasýslu. Íbúar sveitarfélagsins eru 1.222 talsins. Þéttbýliskjarnar eru þrír í sveitarfélaginu. Hvammstangi, Laugarbakki og Borðeyri. Hvammstangi er stærstur þeirra með ríflega 600 íbúa og þar er að finna alla helstu þjónustu og atvinnustarfsemi héraðsins. Um helmingur íbúa sveitarfélagsins býr í dreifbýli og er landbúnaður ein helsta meginstoð atvinnuuppbyggingar sveitarfélagsins. Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt starf fer fram í leik-, grunn- og tónlistarskóla. Aðstaða til íþróttaiðkunar er mjög góð og er mikið framboð af íþrótta- og tómstundastarfi. Hjá sveitarfélaginu starfa 130 starfsmenn. Nánari upplýsingar má finna á: www.hunathing.is Menntunar- og hæfniskröfur: Helstu verkefni og ábyrgð:

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.