Fréttablaðið - 06.06.2020, Síða 76
Við tókum ákvörðunina nokkuð snemma um að af lýsa ekki hátíðinni og tilkynna dagskrána. Okkur fannst sú ákvörð-un ekki djörf þá, en hún
virkaði djarfari eftir því sem leið á
vorið,“ segir Vigdís Jakobsdóttir list-
rænn stjórnandi Listahátíðar í Reykja-
vík 2020, sem hefst í dag.
Hátíðin hefur venjulega staðið yfir í
um þrjár vikur en mun að þessu sinni
teygja sig út árið. „Það syrti aðeins í
álinn eftir því sem leið á og við fórum
að velta fyrir okkur hvort þetta hefði nú
verið skynsamlegt,“ segir Vigdís. „Svo
núna er aftur farið að birta til og okkur
sýnist þetta allt eiga að geta gengið.“
Vigdís segir að þrátt fyrir að breyttar
kringumstæður geti verið erfiðar, þá
felist einnig í þeim vissir kostir. „Það
skapast aukið andrými í kringum við-
burðina. Vegna þess að opnunarhelgin
verður ekki jafn stór í sniðum og hún
hefði verið, þá fær hver atburður meira
svigrúm til að njóta sín.“ Þá séu einnig
vissir atburðir sem henti betur á mis-
munandi árstímum. „Wagner óperan
sem átti að vera núna í upptaktinum
fyrir hátíðina færist yfir til vetrar, og
það hentar henni kannski bara betur.“
COVID-faraldurinn sjálfur hefur líka
sett annan blæ á vissa viðburði. „Þetta
breytir rosalega hvernig maður les í
hlutina og hvernig listafólk hugsar,“
segir Vigdís og nefnir sem dæmi verkið
Innsetningu sem verður opnað í IÐNÓ
í dag. „Listamennirnir voru búnir að
móta hugmyndina að þessu löngu fyrir
COVID, en verkið hefur tekið á sig aðra
mynd vegna faraldursins.“
Í dag verða þrjár sýningar á hátíðinni
opnaðar. Þær eru ljósmyndasýningin
Vitni eftir Christopher Lund í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, Innsetning í
IÐNÓ og fyrri hluti samsýningarinnar
Common Ground í SÍM-salnum, Hafn-
arstræti 16. Næstu viðburðir hátíðarinn-
ar verða svo síðar í júní, og geta áhuga-
samir kynnt sér dagskrána á heimasíðu
Listahátíðarinnar, www.listahatid.is.
arnartomas@frettabladid.is
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is
Stofnað 1990
Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Minningarkort á hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gissur Þór Sigurðsson
húsasmíðameistari,
Fífusundi 1, Hvammstanga,
lést 1. júní á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands, Hvammstanga.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðrún Valgerður Árnadóttir
Lukka S. Gissurardóttir Þorkell Helgason
Ragna Gissurardóttir Larsen Kristján R. Larsen
Sunneva Gissurardóttir
Sigurrós Gissurardóttir Arnþór Stefánsson
Árni Jón Gissurarson Laufey Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Christopher Lund beinir athygli að
ferðamanninum í sýningunni Vitni.
Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík.
Hvað er hér á seyði? Baldur Helgi Snorrason er listamaðurinn sem sést hér gægjast
inn í Sérstæðu, innsetningu sem verður opnuð í Iðnó í dag.
Aukið andrými á afmæli
Listahátíðar í Reykjavík
Listahátíð í Reykjavík hefst í dag. Hátíðin, sem fagnar 50 ára afmæli, verður með öðru
sniði en venjulega og mun teygja sig út allt árið. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar segir
að breyttum kringumstæðum fylgi áskoranir, en jafnramt ýmsir óvæntir kostir.
Þessi hárbrúskur er hluti af sýningunni
Com’on sem er fyrsti hluti sýningarinnar
Common Ground.
Ástkær faðir, afi, bróðir,
frændi og vinur okkar,
Friðmar Pétursson
frá Gili, Fáskrúðsfirði,
sem lést 9. apríl sl.
verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju, 12. júní kl. 13.00.
Una Sjöfn, Sindri Þór, Hjördís Lilja
Anna Þóra Pétursdóttir Björgvin Baldursson
Jóhannes Marteinn Pétursson
Sigurður Ágúst Pétursson Fjóla Sesselja Þorsteinsdóttir
Pétur Einar Pétursson
Herdís Pétursdóttir Kristmann E. Kristmannsson
Haraldur Leó Pétursson Michaela Schinnerl
fjölskyldur og Hildur Ársælsdóttir.
Vegna þess að opnunarhelgin
verður ekki jafn stór fær hver
atburður meira svigrúm til að
njóta sín.
Merkisatburðir
1523 Gústaf Vasa er kosinn konungur Svíþjóðar.
1584 Guðbrandsbiblía er gefin út á Hólum.
1644 Mansjúríumenn hertaka Peking.
1654 Karl 10. Gústaf tekur við embætti
Svíakonungs.
1859 Nýlendan Queensland er stofnuð í Ástralíu.
1915 Íþróttafélagið Þór er stofnað
á Akureyri.
1925 Walter Percy Chrysler stofnar
bílafyrirtækið Chrysler.
1933 Fyrsta bílabíóið er opnað í New
Jersey í Bandaríkjunum.
1946 NBA-deildin í körfubolta er stofnuð.
1982 Ísrael gerir innrás í Líbanon.
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT